Vill verndaða vinnustaði burt 21. september 2005 00:01
Verndaða vinnustaði fyrir fatlaða ætti að leggja niður í núverandi mynd. Þetta segir írskur iðjuþjálfi sem hélt fyrirlestur um atvinnumál fatlaðra hér á landi. Höfuðáherslu á að leggja á að skapa fötluðum tækifæri til að komast út á almennan vinnumarkað. Á þriðja hundrað fatlaðir íslendingar starfa úti á hinum almenna vinnumarkaði. Hanna Lilja Bjarnadóttir er ein þeirra, en undanfarið ár hefur hún starfað á Fréttablaðinu. Hanna segir mjög fínt að vinna þar. Hún sjái um kaffivélarnar og pappírinn auk þess að sjá um að allt sé fínt. Aðspurð segist hún vinna til klukkan tvö á daginn. Christy Lynch iðjuþjálfi segir að með því að beita aðferð sem nefnist Atvinna með stuðningi hafi menn komist að því fólk sem sé að jafnaði mjög fatlað geti komið til starfa á vinnumarkaðnum og lagt sitt af mörkum. Það sé mun betra fyrir hinn fatlaða og gefi lífinu tilgang og hann finni að hann leggi margt af mörkum til þjóðfélagsins. Christy Lynch er menntaður iðjuþjálfi og hefur haldið fyrirlestra víða um heim um mikilvægi þess að fatlaðir komist út á hinn almenna vinnumarkað með stuðningi hins opinbera og fyrirtækjanna sjálfra. Hann vill hreinlega að verndaðir vinnustaðir verði lagðir niður. Hann segist vilja að fatlað fólk sé úti í samfélaginu og lifi lífinu til hins ýtrasta eins og aðrir. Allir sem hafi gert þetta segist lifa betra lífi, séu jákvæðari og fái meiri lífsfyllingu. Þetta eigi að gera fyrir fatlaða. Þeir séu oft hræddir því þetta sé þeim framandi en með þessu fái þeir meiri stuðning. Hann telur tækifærin fyrir Íslendinga vera fjölmörg og að flestir fatlaðir ættu að geta fengið vinnu. Hann bendir á að landið sé fámennt og því sé fjöldi fatlaðra ekki mikill. Efnahagur landsins sé mjög góður og þúsundir atvinnutækifæra séu fyrir fatlaða. Það þurfi bara að láta atvinnurekendur og fatlaða mætast á miðri leið. Starfið á Fréttablaðinu skiptir Hönnu miklu máli. Hún segir að verkefnið Atvinna með stuðningi hjálpi fötluðum mikið. Þó séu sumir sem þurfi alls ekki á slíkri aðstoð að halda, þeir séu fullfærir um að komast á vinnumarkaðinn á eigin forsendum. Hanna segir enn fremur að henni hafi fundist það gott að eiga kost á því að komast í þetta starf og þeir sem taki þátt í verkefninu hafi verið fljótari að fá vinnu en hinir. Hún ætli sér að vinna lengi á Fréttablaðinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Breskt herskip siglir um Hvalfjörð Innlent Fleiri fréttir Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Sjá meira