Konur leggi niður störf 24. okt. 21. september 2005 00:01
Aðstandendur baráttuhátíðar kvenna, sem haldin verður í tilefni að því að 30 ár eru liðin frá kvennafríinu, hvetja konur til leggja niður störf á kvennafrídeginum 24. október. Í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar eru konur eru hvattar til að leggja niður störf klukkan 14:08 en þá hafi þær unnið fyrir launum sínum ef litið sé til munar á atvinnutekjum karla og kvenna sem séu 64,15% af launum karla. Samkvæmt þessu séu konur búnar að vinna fyrir sínum launum eftir fimm tíma og átta mínútur ef miðað sé við vinnudag frá klukkan 9 til 17. Kröfuganga verður farin frá Skólavörðuholti klukkan 15 þennan dag, niður Skólavörðustíg og að Ingólfstorgi. Yfirskrift göngunnar er „Konur höfum hátt“ og eru konur hvattar til að taka með sér eldhúsáhöld, svo sem potta og járnsleifar til að framkalla hávaða. Hugmyndin er sú að konur hafa verið hljóðar of lengi og nú sé kominn tími til að þær láti í sér heyra og krefjist jafnréttis núna, eins og segir í tilkynningunni. Á Ingólfstorgi verður svo baráttufundur þar sem haldnar verða stuttar ræður og flutt menningardagskrá. Markmið kvennafrísins er það sama og fyrir 30 árum, að sýna fram á verðmæti vinnuframlags kvenna fyrir íslenskt efnahagslíf, en hvergi í heiminum er atvinnuþátttaka kvenna jafnmikil og hér á landi. Kvennafrídagurinn var fyrst haldinn á afmælisdegi Sameinuðu þjóðanna, 24. október 1975. Kvennaárið 1975 var upphafsár kvennaáratugar SÞ. Talið er að um 25.000 konur hafi safnast saman á baráttufundi á Lækjartorgi og var þetta líklega einn stærsti útifundur Íslandssögunnar. Langflestar konur lögðu niður störf þennan dag og atvinnulífið lamaðist, en aðgerðin vakti athygli víða um heim. Tugþúsundir kvenna eru félagar í þeim samtökum sem eiga aðild að því að undirbúa viðburði til að minnast merkisviðburða í sögu íslenskra kvenna á þessu ári. Félögin eru: Femínistafélag Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennakirkjan, Kvenréttindafélag Íslands, Kvennasögusafn Íslands, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands, Samtök um kvennaathvarf, Stígamót og UNIFEM á Íslandi. Kvennafundurinn á Þingvöllum 19. júní var afrakstur þessa samstarfs.
Fréttir Innlent Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Sjá meira