150 manns hafa leitað í dag 11. september 2005 00:01
Nærri hundrað og fimmtíu manna lið björgunarsveita hefur í dag leitað þrjátíu og fjögurra ára gamals manns sem er enn saknað eftir sjóslysið á Viðeyjarsundi í gær. Orsök slyssins er enn ókunn. Þegar kvölda tók í gær var ákveðið að gera hlé á leitinni en mannsins hafði þá verið leitað frá því eldsnemma morguns. Laust fyrir klukkan níu í morgun hófu kafarar svo leitina að nýju. Fimmtán kafarar í fimm hópum fóru þá út með bátum og meðferðis var meðal annars nákvæm neðansjávarmyndavél, sem einnig er ómskoðunartæki. Upp úr hádegi voru svo fleiri bátar sendir á vettvang til að kemba sjóinn í námunda við slysstað. Fljótlega eftir það var svo haldinn fundur með fjölmennu liði leitarmanna við Sundahöfn þar sem nærri hundrað manns var skipt niður í rösklega tuttugu hópa. Leitin í dag náði eftir allri strandlengjunni, allt frá Gróttu að Kjalarnestánni. Þorvaldur sagðist um miðjan daginn reikna með að leitin stæði þangað til rökkva tæki en kafararnir gætu jafnvel haldið áfram lengur þar sem þeir væru ekki jafnháðir birtunni. Laust fyrir hálfsjö hafði leitin enn ekki skilað árangri. Kona um fimmtugt, sem fannst látin fljótlega eftir að tilkynnt var um slysið, var eiginkona mannsins sem er leitað. Hinum þremur sem voru í bátnum var bjargað af kili. Hjón, sem voru flutt alvarlega slösuð á gjörgæslu eftir slysið, eru bæði á batavegi og voru útskrifuð þaðan síðdegis í dag og liggja nú á almennri deild. Það varð þeim til happs að tíu ára sonur þeirra, sem slapp lítið meiddur, var með farsíma og hringdi eftir hjálp. Ekki er enn vitað hvað olli slysinu en báturinn virðist hafa siglt á fullri ferð utan í Skarfasker og sokkið strax í kjölfarið. Af ummerkjum að dæma hefur skipstjórinn ekki fylgt réttri siglingaleið sem mörkuð er með tveimur baujum á svæðinu og því aldrei átt að vera nærri skerinu. Reyndir skipstjórar á smærri bátum stytta sér reyndar stundum leið og fara inn fyrir skerið en strangt til tekið á aldrei að gera það. Rannsóknardeild lögreglunnar hefur hafið rannsókn á aðdraganda slyssins en þeir sem voru um borð hafa ekki verið ítarlega yfirheyrðir enn sem komið er.MYND/TeiturMYND/Teitur
Fréttir Innlent Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Hljóp á sig Innlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira