Einn fékk reykeitrun í eldsvoðanum 11. september 2005 00:01
Á annan tug manna björguðust út þegar eldur kom upp í svefnskála við Kárahnjúka í nótt. Einn maður var fluttur til Egilsstaða til meðferðar vegna reykeitrunar en öðrum varð ekki meint af. Sjálfvirkt viðvörunarkerfi sendi boð um eldinn um klukkan hálfeitt og um svipað leyti varð fólk á staðnum vart við eldsvoðann. Grunur leikur á að eldurinn hafi kviknað út frá logandi kerti í anddyri skálans og myndaðist mikill reykur. Tólf konur búa í skálanum, sem er svokallaður dömuskáli, en einnig voru nokkrir karlmenn þar og reyndi einn þeirra fyrst að slökkva með handslökkvitæki áður en slökkvilið vinnusvæðisins kom að. Leó Sigurðsson, öryggisstjóri við Kárahnjúka, var á vettvangi í nótt og segir hann fólk ekki hafa verið í teljandi hættu. Aðvörunarkerfi hafi farið í gang sem gaf fólki möguleika á að yfirgefa skálann í tíma. Slökkvilið hafi svo komið á vettvang skömmu síðar og ráðið niðurlögum eldsins. Eldur blossaði svo aftur upp stuttu síðar en var slökktur fljótlega. Nýjustu fréttir af líðan mannsins sem fékk snert af reykeitrun voru þær laust fyrir hádegi að hann væri búinn að ná sér og yrði útskrifaður af sjúkrahúsi. Konurnar sem búa í skálanum eru íslenskar, portúgalskar, taílenskar og filippseyskar. Tveir reykkafarar voru sendir inn í öryggisskyni til að kanna hvort einhver væri inni. Töluverða skemmdir urðu á skálanum, einkum í sameiginlegu rými við anddyri þar sem eldurinn er talinn hafa komið upp.
Fréttir Innlent Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Sjá meira