Skellur hjá íslenska liðinu 29. júlí 2004 00:01
Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik fékk þungan skell í þriðja leik sínum á Promotion Cup í Andorra í gær. Þá tapaði liðið með átta stiga mun gegn Azerbaidjan sem var fyrirfram talið mun veikara lið en það íslenska. Azerbaidjan komst mest í 30-18 í fyrri hálfleik en tveimur stigum munaði á liðunum í hálfleik, 30-32. Þrátt fyrir þessa viðvörun í fyrri breyttist lítið til batnaðar í seinni hálfleik og Azerbaidjan hafði tögl og hagldir á leiknum allan tímann. Erla Þorsteinsdóttir var stigahæst með 17 stig, Birna Valgarðsdóttir gerði 13 og Alda Leif Jónsdóttir var með 12. Skotnýting íslenska liðsins var skelfileg og til marks um það hitti liðið aðeins úr 3 af 23 þriggja stiga skotum. Þá tóku leikmenn Azerbaidjan 23 sóknarfráköst og náðu þannig að leika oft á tíðum langar sóknir sem virtust slá íslensku stelpurnar útaf laginu. Það var ljóst á leik íslenska liðsins að stórir sigrar á Skotum (85-44) og Andorra (96-35) höfðu stigið íslensku stelpunum til höfuðs því þær voru andlausar og nánast óþekkjanlegar í leiknum frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Það eina góða við leikinn er að hann skiptir ekki öllu máli, því ætli stelpurnar sér í úrslitaleikinn þá hefðu þær hvort sem er þurft að vinna Möltu í lokaleiknum í riðlinum á morgun. Malta hefur unnið alla sína leiki og lagði Skota að velli með 18 stiga mun í dag, 57-39.
Íþróttir Mest lesið Dahlmeier látin en ómögulegt að ná líki hennar af fjallinu Sport Ólympíumeistari stórslösuð eftir grjóthrun Sport Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Handbolti Hvernig hefur Liverpool efni á Alexander Isak? Enski boltinn Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik Körfubolti UEFA tapaði milljörðum króna á Evrópumóti kvenna Fótbolti Með á fótboltaspjöldum þrátt fyrir ákæru vegna nauðgunar Enski boltinn Wirtz með fyrsta markið sitt fyrir Liverpool Enski boltinn Gott að koma til Íslands en skrýtið að mæta Blikunum Fótbolti Flóðbylgjuviðvörunin hefur ekki áhrif á leik Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Þrettán íslenskir dómarar að dæma í Evrópu í vikunni NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Ósyndar NFL-stjörnur biðja Michael Phelps um aðstoð Félix sá fjórði dýrasti samanlagt Halldór óttast ekki að fá annan skell Dahlmeier látin en ómögulegt að ná líki hennar af fjallinu Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Wirtz með fyrsta markið sitt fyrir Liverpool Dregið í riðla á HM í Las Vegas Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Gott að koma til Íslands en skrýtið að mæta Blikunum UEFA tapaði milljörðum króna á Evrópumóti kvenna Sömdu við manninn með sex fingur á hægri hendi Vefsíða Arsenal hrundi í miðju Gyokeres æði Bayern staðfestir kaupin á Diaz: „Lucho ist hier“ Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Flóðbylgjuviðvörunin hefur ekki áhrif á leik Liverpool Hvernig hefur Liverpool efni á Alexander Isak? Ólympíumeistari stórslösuð eftir grjóthrun Með á fótboltaspjöldum þrátt fyrir ákæru vegna nauðgunar Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik Dagskráin í dag: Ómögulegt verkefni Breiðabliks og ensk úrvalsdeildarlið Uppbótartíminn: Hvernig lið er Stjarnan? „Ætlum að fara þarna og sækja þennan bikar“ Njarðvík á toppinn Trafford segist hundrað sinnum betri í dag Ákvörðunin að reka Horner að mestu vegna slaks árangurs „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Uppgjörið: Valur - FH 2-3 | Hafnfirðingar í úrslit í fyrsta sinn Þjálfarinn Wiegman stal senunni í fagnaðarlátum enska liðsins Sjá meira