Erlent

Berserkur myrðir í Osló

Norska lögreglan leitar manns sem gekk berskerksgang í sporvagni í gær og varð farþega að bana með hníf í gær og særði fimm aðra, tvo alvarlega, eftir því sem greint er frá á heimasíðu Verdens gang. Sjónarvottar segja að maðurinn í kjölfarið flúið sporvagninn, tekið Mercedes Benz bifreið ófrjálsri hendi og ekið á brott. Bíllinn fannst skömmu síðar en maðurinn er ófundinn. Lögreglan í Noregi segir að maðurinn sé á fimmtugsaldri, um 190 sentímetrar á hæð og af afrísku bergi brotinn, að öllum líkindum frá Sómalíu miðað við framburð sjónarvotta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×