Erlent

Svartfellingar hýsa ekki Fischer

Svartfellingar munu ekki skjóta skjólshúsi yfir skákmeistaranum Bobby Fischer vegna andstöðu Bandaríkjamanna að sögn forseta Svartfjallalands. Talsmenn Fischer lögðu víst til að hann myndi sækja um hæli þar, en hann er ákærður fyrir að brjóta viðskiptabann sem hvíldi á Júgóslavíu árið 1992 þegar hann tefldi við Borís Spasskí. Fischer hefir verið í haldi í Japan í þrjár vikur en vegabréf hans reyndist útrunnið þegar hann ætlaði að yfirgefa landið. Bandaríkjamenn hafa farið fram á að Fischer verði framseldur. Hann hefur sótt um hæli í Japan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×