Erlent

Frelsisstyttan opnuð á ný

Frelsisstyttan verður opnuð fyrir ferðamönnum á morgun, í fyrsta sinn eftir árásirnar ellefta september 2001. Öryggisviðbúnaður í New York og Washington var aukinn um helgina vegna hættu á hryðjuverkaárásum en þrátt fyrir það telja yfirvöld öryggi við styttuna nægjanlegt. Á þeim þremur árum sem aðgangur að henni hefur verið bannaður hefur verið bætt við brunaúðurum, eldvarnaveggjum og fleiri útgönguleiðir hafa verið gerðar. Gestir mega reyndar ekki fara alveg upp í topp styttunnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×