Erlent

Viðbúnaður Bandaríkjanna aukinn

Óupplýst handtaka á 25 ára tölvunarfræðingi þann 13. júlí leiddi til þess að viðbúnaðarstig bandarískra stjórnvalda var hækkað á sunnudag. Bandaríska alríkislögreglan, CIA, segir tölvunarfræðinginn, Muhammad Naeem Noor Khan, hafa gefið pakistönsku alríkislögreglunni miklar og greinargóðar upplýsingar. Hann hafi hjálpað við gerð tölvuforrits svo hægt væri að dulkóða upplýsingar ætluðum al-Kaída. Í ljós kom að hryðjuverkamenn hafi verið farnir að kanna byggingar í New York, Newak og Washington löngu fyrir árásina 11. september 2001. Upplýsingum um aðgengi að byggingunum, mannmergð á misjöfnum tíma og hvort hægt væri að ráðast á þær með flutningabílum hafi verð safnað. Khan hlaut 25 daga þjálfun í herbúðum í Afganistan í júní 1998 og kynntist bróður indónesíska al-Kaída liðans Hambali. Um Osama bin Laden sagði Khan að hæstsettu menn innan hreyfingarinnar vissu ekki einu sinni hvar hann væri niðurkominn, segir í The New York Times.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×