Erlent

Alþjóðlegt heimskautaár 2007

Alþjóðlegt heimskautaár hefst árið 2007. Þá munu vísindamenn hefja nýjar boranir í Grænlandsjökli í þeim tilgangi að öðlast meiri þekkingu um fortíðina. Þetta kemur fram í frétt frá NRK í Noregi. Verkefnið nefnist "International Partnerships in Ice Core Sciences". Ætlunin er að bora bæði á Grænlandi og á Suðurskautslandinu en þegar hafa verið valdir nokkrir borunarstaðir á Grænlandi. Markmið vísindamannanna er að varpa ljósi á það hvers vegna tímabilið á milli ísalda breyttist úr 40.000 árum í 100.000 ár. Auk dýptarboranna í ísinn ætla vísindamennirnir einnig að bora á strandlengjunni bæði á Grænlandi og Suðurskautslandinu. Í jöklum nær láglendinu ætti að vera að finna mikilvægar viðbótaupplýsingar um viðkomandi svæði síðustu 10.000 árin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×