Logi hættir með landsliðinu 22. júlí 2004 00:01
Hinn 22 ára gamli Logi Geirsson, sem lék með FH-ingum á síðasta tímabili og spilar með þýska stórliðinu Lemgo á komandi tímabili, hefur ákveðið að hætta að æfa með landsliðinu sem undirbýr sig nú af kappi fyrir Ólympíuleikana í Aþenu. Logi tilkynnti Guðmundi Guðmundssyni landsliðsþjálfara þetta á þriðjudaginn, daginn eftir að liðið kom frá Ungverjalandi þar sem það lék tvo vináttulandsleiki. Logi var ekki valinn í hópinn sem fór til Ungverjalands og var einn þriggja leikmanna sem sat eftir heima en auk hans voru Patrekur Jóhannesson og Vignir Svavarsson sem fóru ekki með í ferðina. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari staðfesti í samtali við Fréttablaðið í gær að Logi væri hættur en vildi að öðru leyti lítið tjá sig um málið. Hann sagði þó að þetta væri hans val og að enginn væri þvingaður til að æfa með landsliðinu. Guðmundur neitaði því staðfastlega að ósætti hefði verið á milli hans og Loga eða leikmannanna og Loga og vildi ekki gefa neinar skýringar á því að Logi hætti. "Þú verður að spyrja hann að því," sagði Guðmundur aðspurður. Logi sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að hann væri hættur í bili og ástæðan fyrir því myndi ekki fara í blöðin. "Þetta er á milli mín og þjálfarans og þannig verður þetta," sagði Logi og bætti við að hann hefði ekkert upp á Guðmund á klaga; "Hann er toppkarl," sagði Logi sem heldur utan til Þýskalands á sunnudaginn þar sem hann hefur nýtt líf sem atvinnumaður hjá þýska stórliðinu Lemgo.
Íþróttir Mest lesið Fáránleg hegðun á Hlíðarenda: Plastglas í höfuð og miðfingur á loft Fótbolti Bein útsending: Dagur eitt á heimsleikunum í CrossFit 2025 Sport Allt liðið gekk út á völl í Súperman búningum Fótbolti Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Íslenski boltinn Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Enski boltinn Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Enski boltinn Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Enski boltinn Lýsir því hvernig Dahlmeier dó Sport Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Enski boltinn Gaf tannlækninum teinanna sína Fótbolti Fleiri fréttir „Sýna að maður eigi það skilið“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Sigur í fyrsta leik hjá Jóhannesi Kristni Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Má ekki æfa fyrr en hann léttir sig Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn Verstappen slekkur á öllum sögusögnunum Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Bein útsending: Dagur eitt á heimsleikunum í CrossFit 2025 „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Spilar með bestu frisbígolfspilurum heims Einvígið á Nesinu safnar í ár fyrir minningarsjóð Bryndísar Klöru Dönsk þrenna á Akureyri, dramatík í Víkinni og óheppni á Hlíðarenda Newcastle hafnar tilboði Liverpool Niko markahæstur og Gylfi stoðsendingahæstur í Sambandsdeildinni Jón Þór Evrópumeistari á nýju Íslandsmeti Fáránleg hegðun á Hlíðarenda: Plastglas í höfuð og miðfingur á loft Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Gaf tannlækninum teinanna sína Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Missti ömmu sína á sama degi og hún vann EM Lýsir því hvernig Dahlmeier dó Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Sjá meira