FH-ingar á toppinn 19. júlí 2004 00:01
FH-ingar komust á topp Landsbankadeildarinnar í fyrsta sinn í sumar þegar þeir lögðu Fylkismenn, 1-0, í Kaplakrika í gærkvöld í uppgjöri toppliða deildarinnar. Þetta var jafnframt fyrsti sigur FH-inga á Fylki í deildinni í sex leikjum og fjórði leikurinn í röð sem Fylkis spilar án sigurs. Fylkismenn hófu leikinn af miklum krafti og Björgólfur Takefusa var hársbreidd frá því að koma þeim yfir tvívegis á fyrstu fjórum mínútum leiksins. Fyrst varði Daði Lárusson, markvörður FH, frá honum úr dauðafæri og síðan átti hann skot beint úr aukaspyrnu rétt yfir. Eftir snarpa byrjun fór allur kraftur úr leikmönnum liðanna og erfitt var að sjá að tvö af bestu liðum landsins væru að etja kappi saman. Fylkismenn voru meira með boltann en þeim gekk illa að skapa sér færi. Að sama skapi áttu FH-ingar erfitt með að finna taktinn sóknarlega fyrsta hálftímann. Þeir fengu sitt fyrsta almennilega færi eftir 36 mínútur en þá skallaði Emil Hallfreðsson yfir úr góðu færi eftir fallega sendingu frá Heimi Guðjónssyni. Jónas Grani Garðarsson fékk síðan dauðafæri til að koma FH-ingum yfir á 40. mínútu en hann skaut beint í fang Bjarna Þórðar Halldórssonar, markvarðar Fylkis, af stuttu færi eftir góðan undirbúning Atla Viðars Björnssonar. Staðan var því markalaus í hálfleik, hálfleik sem tvískiptur því Fylkismenn réðu ferðinni fyrri hlutann í hálfleiknum en FH-ingar seinni hlutann. FH-ingar hófu seinni hálfleikinn af miklum krafti og á 54. mínútu átti danski framherjinn Allan Borgvardt þrumuskot sem Bjarni Þórður Halldórsson varði vel. Hinn ungi og efnilegi Emil Hallfreðsson kom FH-ingum síðan yfir á 63 .mínútu með þrumuskoti frá vítateig sem Bjarni í marki Fylkis réð ekki við. Þetta mark reyndist vera eina mark leiksins, FH-ingar réðu ferðinni mest allan síðari hálfleikinn og þótt Fylkismenn hefðu pressað nokkuð undir lokin þá tókst þeim aldrei að ógna marki FH-inga að neinu ráði. FH-Fylkir 1-0 1–0 Emil Hallfreðsson 63. Dómarinn Jóhannes Valgeirsson góður Bestur á vellinum Emil Hallfreðsson FH Tölfræðin Skot (á mark) 9–14 (5–6) Horn 8–3 Aukaspyrnur fengnar 14–20 Rangstöður 6–0 Mjög góðir Emil Hallfreðsson FH Sverrir Garðarsson FH Góðir Tommy Nielsen FH Freyr Bjarnason FH Guðmundur Sævarsson FH Ólafur Stígsson Fylki Þórhallur Dan Jóhannsson Fylki Guðni Rúnar Helgason Fylki
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Fótbolti „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Sport Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Maður dagsins á HM: „Það var ekki ég sem uppgötvaði Vini Jr.“ Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Átján ára markahæst: Nýtir pirringinn sem orku og fer glaðbeitt á EM Gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Martin fékk stóra rós í hnappagatið Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum „Ég held að við séum á heimleið“ Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Segja Breka á leiðinni til Benfica Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Okeke farinn frá Álftanesi Børge Lund tekur við stórliði Kiel Thelma hetjan og Häcken á toppinn Sviss tryggði sér toppsætið eftir sigur á Kanada Hörð keppni milli Margrétar Láru og Mistar Bruno um Ronaldo: „Mikilvægt fyrir okkur að hann skoraði“ Kerfið hrundi á Wimbledon-mótinu vegna mikils hita Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi? Goðsögn í alpagreinum handtekin með „töfrasveppi“ í fórum sínum Ronaldinho tók skóna af hillunni eftir níu ár: „Við munum gera eitthvað sérstakt“ Sjá meira