Erlent

Gíslarnir enn í haldi

Þeir sjö gíslar sem ríkisstjórn Kenýa sagði að hefðu verið sleppt í dag, eru enn í haldi mannræningja í Írak að sögn atvinnuveitenda mannanna en þeir voru bílstjórar fyrir kúweiskt fyrirtæki í Írak. Samningaviðræður standa því enn yfir við mannræningja. Írakskur sáttasemjari sem hefur séð um samningaviðræður fékk þó í hendur bréf frá mannræningjunum þar sem hann var beðinn um að draga sig í hlé.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×