Viðskipti innlent
Miklar hækkanir í kauphöllinni Viðskipti með verðbréf í Nasdaq OMX kauphöll Íslands einkenndust af miklum hækkunum í dag. Mest varð hækkunum á bréfum Marels en þau hækkuðu um 2,58 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 159. Þá hækkuðu bréf í Icelandair Group um 2,51 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 9,82. Viðskipti innlent 30.1.2013 16:49
Tillaga fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins: Köstum krónunni Samkvæmt drögum að tillögum um efnahags- og viðskiptamál, fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins, sem fram fer 21. til 24. febrúar, verður afnám gjaldeyrishafta gert að forgangsmáli, og það með upptöku alþjóðlegrar myntar. Einkum er horft til þess að skoða upptöku Bandaríkjadals og Kanadadals, að því er segir í tillögunum, sem birtar voru á vefsvæði Sjálfstæðisflokksins í morgun. Viðskipti innlent 30.1.2013 13:17
Vínbúðirnar hefja sölu á forboðnum drykkjum ÁTVR hefur í kjölfar niðurstöðu EFTA dómstólsins í máli fyrirtækisins HOB-vín gegn ÁTVR ákveðið að gefa öllum áfengisheildsölum sem fengið höfðu höfnun á skráningu vörutegunda færi á að skrá þær að nýju og hefja sölu. Viðskipti innlent 30.1.2013 10:40
Innlán heimilanna lækkuðu um 5 milljarða í desember Innlán heimilanna hjá innlánsstofnunum lækkuðu um 5,0 milljarða kr. í desember síðastliðnum. Er þetta öllu meiri lækkun í einum mánuði en var annars á síðastliðnu ári, en allt árið í fyrra lækkuðu innlán um 17,7 milljarða kr. Viðskipti innlent 30.1.2013 10:37
Kauphöllin vísaði 21 máli til FME á síðasta ári Kauphöllin afgreiddi samtals 69 mál á síðasta ári, þar af var 21 máli vísað til Fjármálaeftirlitsins (FME) til frekari skoðunar. Viðskipti innlent 30.1.2013 10:19
Vísitala framleiðsluverðs lækkar um 1,1% Vísitala framleiðsluverðs í desember s.l. var 214,0 stig og lækkaði um 1,1% frá nóvember. Viðskipti innlent 30.1.2013 09:16
Atvinnuleysið 4,7% á fjórða ársfjórðungi í fyrra Á fjórða ársfjórðungi síðasta árs voru að meðaltali 8.400 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 4,7% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 5,4% hjá körlum og 4% hjá konum. Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi var 168.400 manns eða 75% af mannfjölda. Hlutfall starfandi karla var 77% og starfandi kvenna 73,1%. Viðskipti innlent 30.1.2013 09:07
Vodafone fær fljótlega aðgang Vodafone mun fljótlega geta boðið upp á sjónvarpsútsendingar um ljósnet Símans, í samræmi við úrskurð Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) frá því í desember. Viðskipti innlent 30.1.2013 08:00
Bjartsýni eykst í upphafi ársins Væntingavísitala Capacent Gallup sýnir að Íslendingar eru bjartsýnir í upphafi ársins. Viðskipti innlent 30.1.2013 06:23
Gjaldþrotum fyrirtækja fækkaði um 30% milli ára Alls urðu 1.109 fyrirtæki gjaldþrota á síðasta ári. Þetta er 30% fækkun frá árinu á undan að því er segir á vefsíðu Hagstofunnar. Flest gjaldþrot í fyrra voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 227 talsins. Viðskipti innlent 30.1.2013 06:21
Dómur EFTA jákvæður en gjaldeyrishöft valda enn vanda Fitch lánshæfismatsfyrirtækið segir að dómur EFTA dómstólsins í gær sé jákvæður fyrir lánstraust Íslands en framhald gjaldeyrishafta hafi ennþá neikvæð áhrif á lánstraustið. Þetta kemur fram á vef Fitch í dag. Viðskipti innlent 29.1.2013 11:57
Verðbólgan óbreytt frá fyrri mánuði Tólf mánaða verðbólga er 4,2%, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Vísitala neysluverðs í janúar var 403,3 stig og hækkaði um 0,27% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 384,1 stig og hækkaði um 0,21% frá desember. Viðskipti innlent 29.1.2013 09:42
Ljósnetið á landsbyggðina Síminn útvíkkar enn þjónustu sína á landsbyggðinni með því að færa 53 nýjum bæjum Ljósnetið á árinu. Í tilkynningu frá Símanum segir að þegar er unnið að því að uppfæra netið á Akranesi, Keflavík og Njarðvík. Ljósnet þýðir meiri hraða, öflugra net og bætta sjónvarpsþjónustu fyrir þúsundir landsmanna. Viðskipti innlent 28.1.2013 20:38
Niðurstaðan mikilvæg fyrir íslenskt efnahagslíf Greiningadeild Danske Bank segir að niðurstaðan í Icesave-málinu komi nokkuð á óvart. Flestir sérfræðingar á sviði lögfræði hafi spáð því að Ísland myndi tapa málinu. Þá segir Greiningadeildin að þessi niðurstaða hafi hugsanlega áhrif á milliríkjaviðskipti á bankamarkaði og því ætti að fylgjast með því hvernig Evrópusambandið muni bregðast við niðurstöðunni. Viðskipti innlent 28.1.2013 13:47
Eignir bankakerfisins nálgast 3.000 milljarða markið Heildareignir innlánsstofnana námu 2.947,5 milljörðum kr. í lok desember s.l. og hækkuðu um 13,8 milljarða kr. í mánuðinum eða um 0,5%. Viðskipti innlent 28.1.2013 07:51
Icesavedómur gæti orðið þungur skellur fyrir ríkissjóð Fyrir hádegið mun dómur EFTA dómsstólsins í Icesave málinu verða kveðinn upp. Óhagstæður dómur gæti orðið þungur skellur fyrir ríkissjóð. Viðskipti innlent 28.1.2013 06:15
Fríverslunarviðræðum við Kína miðar vel Sjötta lota fríverslunarviðræðna Íslands og Kína var haldin í vikunni í Peking. Utanríkisráðuneytið segir að umtalsverður árangur hafi náðst í öllum málaflokkum og urðu samningsaðilar ásáttir um að halda áfram vinnunni með það að takmarki að ljúka samningum sem fyrst. Viðskipti innlent 26.1.2013 13:08
Tekjur Man. Utd og Haga svipaðar Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte birti á fimmtudag árlega skýrslu sína um tekjur stærstu knattspyrnuliða heims. Spænsku risarnir Real Madrid og Barcelona tróna á toppi tekjulistans fjórða árið í röð en tekjur knattspyrnurisanna eru svipaðar tekjum íslensk Viðskipti innlent 26.1.2013 07:00
Höfuðstöðvar Orkuveitunnar seldar á 5,1 milljarð Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag kauptilboð í höfuðstöðvar fyrirtækisins að Bæjarhálsi 1 og Réttarhálsi 1 í Reykjavík. Höfuðstöðvarnar voru seldar á 5,1 milljarð króna, og verður hagnaður OR, um 600 milljónir króna. Viðskipti innlent 25.1.2013 17:43
Fyrsti tunnuþroskaði bjórinn framleiddur á Íslandi „Við útveguðum okkur notaðar koníakstunnir frá Frakklandi sem við lögðum bjórinn í," segir Valgeir Valgeirsson, bruggmeistari hjá Borg. Viðskipti innlent 25.1.2013 16:00
DV greiðir skattaskuld Nýr hluthafi mun koma inn í hóp eigenda útgáfufélags DV og nokkrir þeirra sem þegar eru á meðal eigenda munu auka við hlutafé sitt. Hlutafjáraukningu er að ljúka. "Það verður stjórnarfundur eftir hálfan mánuð þar sem gengið verður endanlega frá þessu," segir Ólafur Magnússon, stjórnarformaður útgáfufélagsins, í samtali við Vísi. Hann vill ekki segja hver nýi hluthafinn er. "Ég ætla ekki að gera það fyrr en ég er búinn að funda með starfsmönnum," segir hann. Viðskipti innlent 25.1.2013 14:59
Dráttarvextir verða óbreyttir Dráttarvextir haldast óbreyttir og verða áfram 13,00% fyrir febrúarmánuð. Þetta kemur fram á vefsíðu Seðlabankans. Viðskipti innlent 25.1.2013 07:44
Lífeyrissjóðir munu eignast Skipti Skipti, móðurfélag Símans, Skjásins og Mílu, er komið í fjárhagslega endurskipulagningu. Breyta á kröfum skuldabréfaeigenda í hlutafé. Þeir munu þynna núverandi eiganda að mestu út. Skipti skilaði góðum rekstrarhagnaði í fyrra en tapaði samt yfir tveimur Viðskipti innlent 25.1.2013 07:00
Lítil breyting á gengi krónunnar í janúar Lítil breyting hefur orðið á gengi krónunnar það sem af er þessum mánuði ársins eftir umtalsverða veikingu á genginu undir lok síðasta árs. Viðskipti innlent 25.1.2013 06:54
Stærsta mál sérstaks saksóknara til þessa Gögn sérstaks saksóknara í al-Thani málinu telja um 7000 blaðsíður, segir Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá sérstökum saksóknara, í samtali við Vísi. Aðspurður segir hann líklegt að þetta sé umfangsmesta mál sem sérstakur saksóknari hefur ákært í þegar horft er til skjalafjölda. Viðskipti innlent 24.1.2013 14:38
VÍS í söluferli Klakki ehf., eigandi Vátryggingafélags Íslands hf. (VÍS), hefur hafið undirbúning að sölu á VÍS og er stefnt að því að nýir eigendur geti komið að félaginu nú á vormánuðum. Viðskipti innlent 23.1.2013 19:14
Liðakeppni nú möguleg í Ávöxtunarleiknum Keppendur í Ávöxtunarleiknum geta nú stofnað lið og boðið vinum sínum á Facebook að keppa saman. Viðskipti innlent 23.1.2013 15:36
Óttast að það sé ekki vilji til að afnema höftin Vilmundur Jósefsson hyggst ekki gefa kost á sér sem formaður Samtaka atvinnulífsins á ársfundinum 6. mars næstkomandi. Hann segir afar brýnt að koma fjárfestingu af stað í atvinnulífinu og óttast að fjármagnshöft verði fyrir hendi hér á landi í mörg ár til viðbótar, ef ekki verði gripið til róttækra aðgerða. Viðskipti innlent 23.1.2013 14:08
Segja ekkert óeðlilegt við verðlagningu Samherja Sérfræðingar frá endurskoðunarstofunni Baker Tilly í Bretlandi hafa komist að þeirri niðurstöðu að ekkert hafi verið athugavert við verðlagningu á sölu afurða Samherja til skyldra aðila. Vegna ásakana Seðlabanka Íslands um undirverðlagningu á sölu afurða Samherja til skyldra aðila lét Seagold Ltd, dótturfélag Samherja í Bretlandi, gera óháða greiningu og úttekt á rekstri fyrirtækisins. Viðskipti innlent 23.1.2013 13:46
Björgólfur Jóhannsson gefur kost á sér sem formaður SA Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti formanns Samtaka atvinnulífsins en nýr formaður verður valinn í aðdraganda aðalfundar SA þann þann 6. mars næstkomandi með rafrænni kosningu. Viðskipti innlent 23.1.2013 11:32