Viðskipti innlent

Vísitala framleiðsluverðs lækkar um 1,1%

Vísitala framleiðsluverðs í desember s.l. var 214,0 stig og lækkaði um 1,1% frá nóvember.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 269,8 stig, sem er lækkun um 0,1% frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 225,7 stig, lækkaði um 2,0% (vísitöluáhrif -0,7%). Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,3% (-0,1%) en vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 1,8% (-0,3%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 1,1% (-0,3%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 1,1% (-0,8%).

Miðað við desember 2011 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 1,2% og verðvísitala sjávarafurða hækkað um 1,2%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 0,4% en matvælaverð hefur hækkað um 2,9%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×