Lífið
Á leið í Evróputúr Rokksveitin Sólstafir er á leiðinni í eins mánaðar tónleikaferð um Evrópu. Ferðin hefst í Finnlandi 16. september. Til að hita upp fyrir ferðina spilar hún með hinu goðsagnarkennda bandi XIII á Sódómu Reykjavík næsta laugardag. Lífið 9.9.2009 06:00
Hefur ekki séð annað eins klúður á tuttugu ára ferli „Þetta hafði alla burði til að verða stórkostlegur viðburður og þetta hefði átt að vera stórkostlegt. Ég var búinn að leggja mikið á mig til að fá hingað fjölmiðlafólk frá ýmsum þekktum tískutímaritum og unga, efnilega hönnuði og þess vegna finnst mér mjög miður að svona skyldi fara,“ segir Andrew Lockhart, einn skipuleggjenda Iceland Fashion Week. Lífið 9.9.2009 05:30
Semur fyrir Bjarnfreðarson „Þetta er mikið tækifæri og það verður gaman að takast á við þetta aftur," segir tónlistarmaðurinn Pétur Ben. Lífið 9.9.2009 05:00
Reykir rafeinda-rettur Þegar iðjuþjálfinn Sigurður Hólm Gunnarsson sest inn á kaffihús, dregur upp rettu og byrjar að reykja, verður eðlilega uppi fótur og fit. Hann er þó í fullum rétti enda ekki að reykja „venjulega sígarettu“ heldur fyrirbæri sem hann pantaði á netinu og heitir e-cigarette, rafeinda-retta. Þessar gervirettur líta mjög „eðlilega“ út og það rýkur meira að segja úr þeim. Lífið 9.9.2009 04:00
Osama þráir Whitney Houston Lítið hefur heyrst af hryðjuverkamanninum Osama bin Laden enda hafa engin ný myndbönd af honum þusandi í helli birst upp á síðkastið. Nú berast óvæntar fréttir af Osama því í ævisögu sinni segir Kola Boof að hann sé sjúklega ástfanginn af Whitney Houston. Koof, sem er skáldkona frá Súdan og segist hafa verið kynlífsþræll Osama, lýsir í ævisögu sinni hvernig ástsýki Osama lýsir sér. Lífið 9.9.2009 03:00
Með sópran í eftirdragi Söngskemmtun var það kallað á síðustu öld þegar söngvarar buðu upp á dagskrá blandaða gömlu og nýju, dramatískum lögum og skoplegum. Lífið 9.9.2009 02:00
Grínkvöld í fyrsta sinn Fyrsta grínkvöldið af mörgum verður haldið í „Komedí kjallaranum" á Kaffi Cultura klukkan 21 í kvöld. Rökkvi Vésteinsson verður með uppistand og sigurlið síðustu Leiktu betur-keppni úr MR verður með spunagrín. Lífið 9.9.2009 02:00
Fjöldi góðra gesta Fjöldi góðra gesta kemur við sögu á útgáfutónleikum Sigríðar Thorlacius og Heiðurspilta í Austurbæ í kvöld. Þar verður fagnað útkomu plötunnar Á Ljúflingshól sem er samsafn laga Jóns Múla Árnasonar við texta bróður hans Jónasar. Lífið 9.9.2009 01:00
Skildu á 42 sekúndum sléttum Glyðran Jordan, eða Katie Price, og fornfrægi poppsöngvarinn Peter André skildu á 42 sekúndum samkvæmt götublaðinu The Sun. Þau höfðu verið gift í fjögur ár og eiga eitt barn saman. Svo tókst þeim að skilja á 42 sekúndum. Lífið 8.9.2009 23:30
Heilbrigðisþjónusta Stöðvar 2 Stöð 2 mun frá og með deginum í dag bjóða áskrifendum uppá daglega vitjun frá eftirsóttustu læknum í Bandaríkjunum. The Doctors eru glænýir spjallþættir framleiddir af Opruh Winfrey þar sem fjórir framúrskarandi læknar - sérfræðingar á fjórum ólíkum sviðum - veita afar aðgengilegar og gagnlegar upplýsingar um þau heilsufarsmál sem hvað helst brenna á okkur. Þátturinn hefur slegið í gegn í Bandaríkjunum síðastliðinn vetur og verður sýndur í dagdagskrá Stöðvar 2 fimm daga vikunnar. Dr. Travis Stork er einn fremsti sérfræðingur Bandaríkjanna í almennu heilbrigði og hvernig best sé að temja sér hollari lífstíl. Barnalækningar er sérfræðigrein Dr. James M. Sears. Dr. Lisa M. Masterson er einn eftirsóttasti læknir á sínu sviðum sem eru kvensjúkdómalækningar, kynfræðsla, ófrjósemi, barneignir og fjölskylduráðgjöf og Dr. Drew P. Ordon er annálaður lýtalæknir. Leitið ekki langt yfir skammt. Læknarnir á Stöð 2 vita ráð við öllum okkar meinum - og gott betur. Lífið 8.9.2009 12:00
Starfsmenn Nýja Kaupþings styrktu krabbameinssjúk börn Formaður starfsmannafélags Nýja Kaupþings afhenti í dag forsvarsmönnum átaksins á Allra vörum tæplega ellefu hundruð þúsund krónur að gjöf frá starfsfólki bankans. Lífið 8.9.2009 11:56
Hallarbylting hönnuða á Iceland Fashion Week „Tískuvikan var hryllileg, algjör hörmung. Ég skil ekki hvernig þessi kona hefur getað unnið svona lengi við þetta," segir bandaríski blaðamaðurinn Cator Sparks. Lífið 8.9.2009 06:00
Ætla að hertaka hægri hlið Laugavegar Hermann Fannar Valgarðsson og Valdimar Geir Halldórsson reka saman kaffihúsið Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda auk farfuglaheimilisins Reykjavík Backpackers. Nú hafa þeir félagar einnig tekið við rekstri kaffihússins Tíu dropa við Laugaveg. Lífið 8.9.2009 06:00
Fær loksins að syngja í karlakór „Ég er búinn að suða í henni í tíu ár,“ segir garðyrkjumaðurinn og fréttahaukurinn Magnús Hlynur Hreiðarsson. Lífið 8.9.2009 05:30
Vatn ekki bara vatn „Í grunninn á sýningin að fjalla um vatn, margbreytileika þess, mikilvægi og töfra og eru það þrír trúðar sem leiða sýninguna og segja sögu vatnsins. Við erum einnig að leita eftir frásögnum fólks um minningu eða upplifun sem tengist vatni, svokallaðar vatnssögur. Sögurnar geta til dæmis fjallað um fyrsta skiptið sem maður smakkaði sjó, grét eða horfði á grýlukerti bráðna,“ segir Sigrún Þorgeirsdóttir, verkefnastjórni sýningarinnar. Lífið 8.9.2009 05:00
Danir koma í Réttir Danska hljómsveitin The State, The Market & The DJ, sem vakti verðskuldaða athygli á SPOT-hátíðinni í vor og á Hróarskelduhátíðinni í sumar, hefur bæst á dagskrána á tónleikaröðinni Réttir. Fyrsta plata hljómsveitarinnar, New Speak, féll í góðan jarðveg hjá löndum hljómsveitarmeðlima og víðar þegar hún kom út fyrr á árinu. Lífið 8.9.2009 04:30
Sala hafin á Airwaves Miðasala á elleftu Iceland Airwaves-tónlistarhátíðina er hafin. Miðaverð verður á sérstöku forsöluverði, 8.900 kr., og veitir miðinn aðgang að öllum átta tónleikastöðum hátíðarinnar í þá fimm daga sem hún stendur yfir, frá 14. til 18. október. Lífið 8.9.2009 04:00
Dagskrá bókmenntahátíðar í dag Þriðji í bókmenntahátíð er runninn upp og hefst gamanið í dag á hádegi í Norræna húsinu: tveir gestir sitja þar fyrir svörum. Fyrst spyr Gauti Kristmannsson Ngugi wa Thiong’o spjörunum úr en næsti sólarhringur er á vissan hátt helgaður þessu landflótta Keníu-skáldi. Hann les úr verkum sínum í kvöld í Iðnó og um miðjan dag á morgun, miðvikudag, er hann með fyrirlestur í Hátíðasal Háskólans. Lífið 8.9.2009 03:30
Pete reyndi sjálfsvíg Vandræðagemlingurinn Pete Doherty reyndi að fremja sjálfsvíg í París í mars. Hann ætlaði að stökkva fram af hótelþaki eftir að hafa drukkið óhóflega á þrítugsafmælinu sínu. Lífið 8.9.2009 03:00
Margir minnast Helga Hós „Mér þætti það ferlegt ef allar stundirnar sem karlinn stóð hérna á horninu myndu bara gleymast,“ segir Alexander Einarsson, stofnandi Facebook-síðu um það baráttumál að minnisvarða verði komið upp um Helga Hóseasson á horni Langholtsvegar og Holtavegar. Þar stóð Helgi með sín heimatilbúnu skilti og ávann sér sæmdarheitið „Mótmælandi Íslands“. Helgi lést á elliheimilinu Grund á sunnudaginn, 89 ára að aldri. Lífið 8.9.2009 02:00
Bítlakassar á leið í búðir Nú stendur yfir Bítla-átak, og ekki í fyrsta sinn. Allar þrettán plötur Bítlanna (Hvíta albúmið var tvöfalt), auk tveggja smáskífu- og afgangslagasafna (Past Masters 1 og 2), verða fáanlegar í kassa í fyrramálið. Lífið 8.9.2009 01:00
Góð þátttaka á Guitar-Hero móti Mikill áhugi og stemmning var hjá ungu kynslóðinni fyrir óopinberu Íslandsmóti í Guitar Hero - World Tour tónlistartölvuleiknum fyrir PlayStation 3 í versluninni Sense Senter í Kringlunni um síðustu helgi. Í tilkynningu frá Sense segir að 17 lið hafi skráð sig til leiks en keppt var í 3-4 manna liðum þar sem liðsmenn spiluðu á gítar, bassa, trommur og sungu með. Leikjavísir 7.9.2009 16:09
Fúl Fox - myndir Leikkonan Megan Fox, 23 og kærastinn hennar, Brian Austin Green, 32 ára, yfirgáfu í gærdag sushi stað í Toronto í Kanada. Nærstaddir ljósmyndarar reyndu allt hvað þeir gátu til að fá leikkonuna til að brosa en hún setti hinsvegar upp fýlusvip og arkaði áfram eins og sést á myndunum. Lífið 7.9.2009 14:00
Garðar: Popp er ekki heilsufæði „Svarið er að halda matardagbók," svarar Garðar Sigvaldason líkamsræktarþjálfari í Sporthúsinu aðspurður um góð ráð fyrir fólk sem vill komast í gott form. „Í matardagbók skrifar fólk hvað það borðar og klukkan hvað. Tilgangurinn með henni er að halda utan um hvað er borðað. Með henni hefur fólk betri yfirsýn yfir hvað það hefur borðað og hvort það borðar rétt." „Eins og að borða á þriggja tíma fresti og hvort það er eithvað sem það hefði getað látið fara öðruvísi yfir daginn í mataræðinu. Hvort það borðaði rétt fæði þann dag og þá hvers vegna," segir útskýrir Garðar. „Staðreyndin er sú að það er himinn og haf á milli árangurs hjá þeim sem halda dagbók og þeim sem ekki gera það. Matardagbók er fyrir alla, byrjendur jafnt sem lengra komna." Blekkir fólk sjálft sig þegar matur, snakk og draslfæði er annars vegar? „Já og í raun og veru finnst fólki það vera miklu betra en það er en með matardagbókinni sér fólk það á svörtu og hvítu," svarar Garðar. Ráðleggur þú fólki að telja ofan í sig kaloríurnar? „Nei. Ég ráðlegg ekki fólki að telja ofan í sig allar hitaeiningar en aftur á móti er mjög gott að það er meðvitað hvað það setur ofan í sig." En popp til dæmis er það gott á milli mála? „Nei popp er ekkert heilsufæði og ekki gott á milli mála. Í 100 grömmum af poppi eru nær 500 hitaeiningar sem er svipað og í súkkulaði og snakki. Frekar mæli ég með ávöxtum eða léttum prótein drykkjum. Því í dag er hægt að fá tilbúna og mjög bragðgóða próteindrykki þannig að það er engin afsökun að fólk hafi ekki tíma til að borða millimál,“ segir Garðar. Lífið 7.9.2009 11:49
Margt óvænt í ævisögu Vigdísar forseta Útgefandinn Páll Valsson er um þessar mundir að leggja lokahönd á ævisögu Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands. Bókin, sem kemur líklega út í nóvember, nefnist Vigdís - Kona verður forseti. Lífið 7.9.2009 06:30
Fögnuðu hvalahryllingi Hryllingsmyndin Reykjavík Whale Watching Massacre var forsýnd í Bíóhöllinni Álfabakka á dögunum. Aðstandendur myndarinnar voru þar samankomnir til að fagna afrakstrinum. Lífið 7.9.2009 06:00
Fyrrum bankamaður flengir útrásarvíkinga Menn beita margvíslegum brögðum til að losa sig við reiði og spennu vegna bankakreppunnar. Nú er enn ein leiðin komin fram; að slá útrásarvíkinga með golfkylfu. Lífið 7.9.2009 05:00
Flórída fílaði Nögl í tætlur Rokksveitin Nögl frá Grundarfirði er nýkomin heim frá Flórída í Bandaríkjunum þar sem hún spilaði á fernum tónleikum, sem voru jafnframt þeir fyrstu utan landsteinanna. „Þetta var hörkustuð og frábært veður. Fólk var að fíla þetta í tætlur,“ segir gítarleikarinn og söngvarinn Kristófer Eðvarðsson. Þeir félagar spiluðu einnig órafmagnað á háskólaútvarpsstöð til að kynna tónleikana og féll það vel í kramið hjá hlustendum. Lífið 7.9.2009 04:00
Bróðir Michael Jackson brjálaður Randy Jackson, ekki Idol-dómarinn heldur bróðir Michael Jackson, er æfur útí bandaríska fjölmiðla. Þeir hafa um helgina sýnt myndbrot úr jarðaför bróður hans en Jackson-fjölskyldan hafði farið fram á það við bandarísku pressuna að hún myndi sýna þeim þá virðingu að leyfa sér að kveðja sinn frægasta son sinn í kyrrþey. Einhverjir fjölmiðlar hundsuðu þessa bón og þegar Jackson var lagður til hinsu hvílu á fimmtudaginn sveimuðu þyrlur yfir Forest Lawn-kirkjugarðinum í Glendale og tóku myndir. Lífið 7.9.2009 03:00
Átti að rannsaka framhjáhald „Ég gerði þetta í einhverju flippi,“ segir Valdimar Bergstað sem er skráður sem einkaspæjari í símaskránni. Hann segist einu sinni hafa lent í því að hringt hafi verið í sig vegna verkefnis. „Það var kona sem var að forvitnast hvort ég gæti séð hvort maðurinn hennar væri að halda framhjá. Ég sagði bara við hana að ég væri ekki að stunda þetta,“ segir Valdimar sallarólegur. Þeir sem vilja tryggja sér þjónustu einkaspæjara ættu því að hugsa sig tvisvar um áður en þeir slá á þráðinn til hans. Lífið 7.9.2009 02:00