Lífið

Margt óvænt í ævisögu Vigdísar forseta

páll valsson
Páll er að leggja lokahönd á ævisögu Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands.
páll valsson Páll er að leggja lokahönd á ævisögu Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands.
Útgefandinn Páll Valsson er um þessar mundir að leggja lokahönd á ævisögu Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands. Bókin, sem kemur líklega út í nóvember, nefnist Vigdís - Kona verður forseti.

Páll efast ekki um að margt eigi eftir að koma fólki á óvart við lestur bókarinnar. „Þarna er fjallað mjög ítarlega um hennar uppvöxt, áhrifavalda, mótunaröfl og þau ýmsu áföll sem hún hefur orðið fyrir,“ segir hann. „Ég man eftir því í kosningabaráttunni að þá var talað um að hún hefði fæðst með silfurskeið í munni en það er aldeilis öðru nær. Hennar líf er miklu meiri barátta en ég hafði gert mér grein fyrir.“

Bókin er skrifuð í þriðju persónu og vinnsla hennar hefur staðið staðið í á annað ár. „Ég reyni að fara í gegnum hennar sögu, forfeður og foreldra, teikna upp baklandið og reyni að svara spurningunni: „Hver er Vigdís Finnbogadóttir?“,“ segir Páll. „Henni er fylgt fram á daginn í dag. Þegar þú skrifar um persónu sem er lífs þá gildir það að nýta kosti þess að hún er ennþá lifandi. Þannig að síðasti kaflinn fjallar bara um stöðu okkar hér og nú, hugleiðingar um hrunið og stöðu Íslands eins og það blasir við okkur.“

Eins og gefur að skilja átti Vigdís samskipti við fjölmarga í embætti sínu, bæði erlenda leiðtoga og innlenda. Páll segist hafa talað við fjölda fólks en vill ekkert tjá sig um hverjir það eru eða hvort þeir fái yfirhöfuð pláss í bókinni. „Ég hef talað við vini, samstarfsmenn og alls konar fólk en þetta eru allt trúnaðarsamtöl,“ segir hann dulur. „En þetta hefur verið mjög mikill lærdómur fyrir mig að kynnast henni svona vel. Þetta er mjög skemmtilegt verkefni en um leið þá reynir það á.“ -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×