Lífið

Ósigrandi minnipokamenn

The Losers er hrá, sveitt og á köflum alveg hreint ferlega töff hasarmynd. Gallalaus er hún þó ekki og líður einna helst fyrir lapþunnt handrit, frekar slappa og klisjukennda sögu og leikarahóp sem er vægast sagt misgóður. Myndin rís hins vegar undir göllunum, aðallega vegna þess að hún tekur sig aldrei alvarlega og þykist ekki vera neitt annað en það sem hún nákvæmlega er. Spennumynd með sprengingum, byssubardögum og slagsmálum og þeir sem fara sjálfviljugir á myndir eins og The Losers eru að sækjast eftir einmitt þessu án þess að hafa of miklar áhyggjur af umgjörðinni eða vitrænni framvindu sögunnar.

Lífið

Dikta bjargar ímynd landsins

„Mér finnst þetta skemmtilegt framtak - og sniðugt að ætla að hamra járnið á meðan það er heitt og nýta neikvæðu kynninguna sem Ísland hefur vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og láta koma eitthvað jákvætt í staðinn," segir Haukur Heiðar Hauksson, söngvari hljómsveitarinnar Dikta.

Lífið

Úr fótbolta í flugfreyjuna

Eggert Stefánsson, fyrrverandi leikmaður Fram í fótbolta, hefur algjörlega söðlað um starfsvettvang og er farinn að skenkja kaffi í háloftunum. Eggert er kominn úr mikilli íþróttafjölskyldu en bræður hans eru Ólafur Stefánsson handboltakappi og Jón Arnór Stefánsson körfuboltamaður.

Lífið

Pierce vill ekki Bond aftur

„Ég naut þess að leika Bond á sínum tíma en ég sakna hans ekki. ég hef engan áhuga á að taka að mér hlutverk einkaspæjarans aftur,“ segir leikarinn Pierce Brosnan. Þrátt fyrir þetta bætir Brosnan við að hugsanlega hafi hann ekki líkamsstyrkinn sem til þarf en leikarinn er að nálgast sextugsaldurinn.

Lífið

Baksviðs á Grímunni - myndband

Rakel Garðarsdóttir framkvæmdastýra Grímunnar leyfði okkur að kíkja örstutt baksviðs í Þjóðleikhúsinu þar sem undirbúningur fyrir Grímuna stendur yfir. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt og sjáðu hvað liðið er afslappað og í góðum gír.

Lífið

Klikkuð orka og örfáir miðar - myndband

„Það er einhver orka sem myndast hérna. Þetta er bara töfrastund og eina málið er að það eru bara tuttugu miðar eftur núna,“ sagði Páll Óskar þegar við hittum hann fyrir utan Café Flóru í Laugardalnum í dag þar sem hann og Monika munu halda tónleika 20. Júní næstkomandi. „Hún er svo klár hún Monika maður hún varð 66 ára um daginn. Hún lítur nú ekki út fyrir það beint.“

Lífið

Fær lánuð föt á Grímuna - myndband

„Heyrðu ég hugsa að ég fari niður í bæ á eftir og bara svona.. ef ég sé eitthvað sem mér líst á, hitti einhvern sem er í flottum fötum, reyni ég að fá það lánað,“ svaraði Björn Ingi.

Lífið

Tónlist.is græjar sig fyrir iPad

iPad-væðingin er hafin út um allan heim og svo virðist sem Ísland verði þar engin undantekning. Þessi byltingakennda tölva frá Apple verður fáanleg hérlendis í haust en veffyrirtæki landsins eru þegar byrjuð að undirbúa komu hennar.

Lífið

Brilljant að brenna kaloríum svona - myndband

„Þetta er ganga með sérhannaða stafi og við náum umtalsverðri brennslu með stafgöngunni,“ sagði Guðný Aradóttir leiðbeinandi hjá Stafganga.is þegar við ræddum við hana í Laugardalnum í gær. „Við náum 20 % meiri brennslu heldur en í venjulegri göngu. Vegna þess að þú ert að nota efri hluta líkamann mikið meir með því að beita stöfunum." Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá Guðný sýna hvernig stafirnir eru notaðir.

Lífið

Ekki borðið þið herðatré? - myndir

Á meðfylgjandi myndum má sjá Selfyssinga fagna tveggja ára afmæli 800 Bar sem staðsettur er á Selfossi. „Að sjálfsögðu voru strákarnir úr Skímó fengnir til að spila," sagði Eiður Birgisson eigandi þegar við spurðum hann út í afmælispartýið. „Þegar Skímó spila á heimavelli þá er bara eitthvað sem gerist á Selfossi. Það er erfitt að lýsa því en það mæta gjörsamlega allir á ball og allir líta út eins og þeir hafi borðað herðatré. „Það brosa allir svo mikið og eina leiðin til að fá strákana til að hætta spila er að slá út rafmagnið í húsinu," sagði Eiður.

Lífið

Collin Russell spilar með Ultra Mega Technobandinu

Elektró-þjóðlagapopparinn Collin Russell er mættur til landsins og ætlar að spila með Ultra Mega Technobandinu Stefáni á nokkrum tónleikum á næstunni. „Við höfum alltaf verið að bíða eftir hinu fullkomna tækifæri til að fá hann til Íslands og nú er það komið,“ segir Sigurður Ásgeir Árnason Olsen.

Lífið

Búa saman í 500 fm glæsibýli í Edinborg

„Þetta er mjög fínt, en lítur sennilega betur út á blaði,“ segir Elsa Harðardóttir. Elsa og kærasti hennar, fótboltakappinn Eggert Gunnþór Jónsson, búa saman í Edinborg. Hann spilar þar með úrvalsdeildarliðinu Hearts og hefur verið þar síðastliðin fimm ár. Elsa flutti út til hans fyrir tveimur árum.

Lífið

Nýr kærasti

Amy Winehouse er komin með nýjan mann, framleiðandann Reg Traviss, og er Winehouse svo ástfangin að hún ætlar að hætta að drekka. Hún drakk ótæpilega í síðustu viku og fór það illa í Traviss.

Lífið

Bassaleikari í gítarsmíði í LA

Daníel Smári Hallgrímsson er einn af átta nemendum sem fengu inngöngu í hinn fræga Musicians Institut í Los Angeles. Daníel er nýútskrifaður frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og mun leggja stund á eins árs nám í gítarsmíði. Han er bassaleikari í hljómsveitinni í Mikado.

Lífið

Vill hitta Muse

Leikkonan Kate Hudson og Matt Bellamy, söngvari hljómsveitarinnar Muse, sáust á vappi saman í New York í síðustu viku og eiga þau að hafa verið að hitta hvort annað á laun í heilan mánuð. Samkvæmt heimildarmönnum er komin nokkur alvara í sambandið og hyggst parið sækja Glastonbury-tónlistarhátíðina saman síðar í mánuðinum.

Lífið

Börnin kunna ekki að ljúga - myndband

„Og ég bara... nei ókei það er allt í lagi og hann bara já hérna þau eru ekkert það leiðinleg," sagði Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir leik- og söngkona meðal annars þegar við ræddum um viðbrögð íslenskra barna við nýja disknum hennar Bara plata sem hún gaf nýverið út. Lífið á Facebook (sjá Ísgerði syngja). Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá viðtalið við Ísgerði. Bara plata á Facebook.

Lífið

Nýtur kvenhylli eins og Tiger - myndband

„Ja... ég er hrikalega duglegur að lyfta, æfa og teygja og hlaupa...“ segir Sigurþór Jónsson golfari eða Sissó eins og hann er kallaður þegar við hittum hann í morgun. „Jú ég vill meina að hann sé næsti Tiger Woods Íslands," sagði Svavar Jóhansson sem er ráðgjafi Sissó. Svavar vill meina að kylfingar hafi í gegnum árin ekki viljað snerta lóð. Sissó spilar með gofklúbbi Keili í Hafnarfirði.

Lífið

Herra Hinsegin með 2. stigs bruna - mynd

Herra Hinsegin Vilhjálmur Þór Davíðsson skaðbrenndist í vinnunni í gær en hann er vaktstjóri á veitingastaðnum Domo. Við höfðum samband við Villa og spurðum hvað kom eiginlega fyrir? „Ég festi hendurnar í sjóðandi heitri strauvél í vinnunni. Þetta er tæki sem er notað til að strauja servíettur. Það lokaðist á hendurnar á mér," segir Villi og heldur áfram: „Ég er með annars stigs bruna á sex puttum. Ég er búinn að vera að deyja í fingrunum síðan í gær," segir hann greinilega kvalinn.

Lífið

Maggi Mix er hvergi nærri hættur - myndband

Undanfarið hefur lítið farið fyrir Magnúsi Valdimarssyni, öðru nafni Magga Mix, sem sló í gegn á Netinu í byrjun sumars með skemmtilegum matreiðslumyndböndum. Við heimsóttum Magga á heimili hans í morgun bæði til að kanna hvernig hann hefði það og til að létta okkur lundina. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá Magga taka nokkur vel valin dansspor meðal annars.

Lífið