Lífið
Júlí Heiðar í samkeppni við KK Popparinn Júlí Heiðar Halldórsson hefur samið lag um þjóðhátíð í Eyjum og er nýtt myndband við það komið inn á Youtube. Fetar hann þar í fótspor KK sem hefur þegar samið hið opinbera þjóðhátíðarlag í ár, ballöðuna Viltu elska mig á morgun. Lífið 27.7.2010 04:30
Aldurinn ekkert vandamál Spænsku leikkonunni Penelope Cruz finnst ekkert tiltökumál að eldast og lýgur þess vegna aldrei til um aldur sinn. Lífið 27.7.2010 04:00
Sendu inn verðlaunamyndina þína Ljósmyndasamkeppni Panasonic og Vísis er hafin. Okkur hafa borist fjöldinn allur af frábærum myndum í keppnina. Deildu bestu myndum þínum með okkur og þú átt möguleika á glæsilegum verðlaunum. Vertu með og sendu inn ljósmyndir fyrir 21. ágúst 2010. Sjá nánar hér. Ljósmyndasamkeppnin á Facebook. Lífið 26.7.2010 17:17
Ég svelti mig aldrei Fyrrum ofurfyrirsætan Jodie Kidd, 32 ára, varð heimsfræg í fyrirsætubransanum þegar hún var aðeins 16 ára gömul. Þá var hún harðlega gagnrýnd fyrir að vera allt of grönn. Jodie heldur því ennþá fram að hún hafi ekki svelt sig á þessum tíma. „Ég var mjög ung og mjög horuð. Ég var bara unglingur," segir Jodie. „Stærð núll var alls ekki málið fyrir mig persónulega í þá daga. Ég vildi líta út eins og Cindy Crawford sem var með mjúkar línur en í góðu formi." Jodie hefur farið upp um nokkrar fatastærðir og er hætt að starfa sem fyrirsæta. Hún vinnur sem sjónvarpsþulur og segist vera 100% sátt við líkama sinn eins og hann er í dag. Lífið 26.7.2010 16:00
Þráir börn og mann fyrir 2015 Söngkonan Kelly Rowland, 29 ára, ætlar að gifta sig og eignast börn fyrir árið 2015. Söngkonan, sem hefur ekki enn fundið ástina, segist stefna að því að stofna fjölskyldu innan fimm ára. „Vonandi verð ég gift þá. Ég er tilbúin að eignast börn núna," sagði Kelly. Kelly, sem vinnur hörðum höndum að því að klára þriðju sólóplötuna sína, segir tónlistina hafa verið í fyrsta sæti hjá sér allt of lengi og fyrst núna er hún tilbúin að líta í kringum sig og gefa ástinni tækifæri. „Ég elska vinnuna mína og að hafa nóg fyrir stafni. Þetta er það sem ég kann og er best í." Lífið 26.7.2010 15:00
Sefur ekki hjá á fyrsta stefnumóti Paris Hilton sem hefur reynslu af því að hitta karlmenn segir reynslu sína af stefnumótum vera erfiða. Nánast allir karlmenn sem ég hef hitt í gegnum tíðina vildu nota mig af því að ég á pening og er fræg. Í flestum tilfellum vildu þeir stunda kynlíf með mér og þess vegna hef ég það fyrir reglu að sofa ekki hjá á fyrsta stefnumóti. Aldrei!" sagði Paris. Við gerðum könnun á síðunni okkar á Facebook þar sem við spurðum: Hvað skal varast á fyrsta stefnumóti? „Tala ekki of mikið um sjálfa sig, hlusta líka. Vera hrein og snyrtilega vel til höfð, alls ekki tala um fyrri sambönd á fyrsta deiti." „Ekki sofa hjá vil ég bæta við." „Og ekki segja já við öllu þótt þú meinir nei ef þú ert spurð að einhverju. Hafðu þínar eigin skoðanir, það má alveg líka vera ósammála um ýmsa hluti, áhugamálin meiga líka alveg vera ólík." „Ekki sofa hjá, einhverstaðar las ég það, að það ætti ekki að gerast fyrr en á þriðja deiti. Kynnumst fyrst, sjáum hvort hinn aðilinn heilli til þess og vekjum eftirvæntingu, leyfum okkur að hafa smá spennu í þessu." „Það er svo erfitt nefnilega að fara reyna vera einhver önur en þú ert og svo ef maður verður lengur með viðkomandi, þá þarf maður að „breyta" sér yfir í sig sjálfa.. skiljiði? Ekki cool!" „... svo held ég að það sé um að gera að láta vita eða gefa í skyn hvort maður vilji second date eða ekki, hvort það sé áhugi eða not.. ekki draga viðkomandi í gegnum moldina og sandinn ef þú ætlar síðan ekki að tala við viðkomandi aftur! ef þú ert á versta fyrsta deiti ever, mundu þá að deitið þitt gæti verið á sínu besta! and vice versa!" Lífið 26.7.2010 12:30
Fráskilin byrjuð með módeli Kate Winslet, 34 ára, sem skildi við leikstórann Sam Mendes fyrr á þessu ári, er að hitta fyrirsætuna Louis Dowler, 34 ára, en þau voru kynnt fyrir hvort öðru í byrjun sumars. „Louis hefur eytt miklum tíma með Kate. Þau voru bæði stödd í New York fyrir stuttu þar sem þau léku saman í auglýsingu. Þeim kemur mjög vel saman," er haft eftir heimildarmanni. Lífið 26.7.2010 11:30
Tók tónlistarmyndband upp á síma „Ég þurfti bara að hlaða símann einu sinni í þennan eina og hálfa dag sem tökurnar stóðu yfir,“ segir Isak Winther grafískur hönnuður sem tók upp myndband við lagið Þriggja daga vakt en það sem þykir óvanalegt við myndabandið er að það var allt tekið upp gegnum myndavél á síma. Lífið 26.7.2010 10:15
Félagar þrátt fyrir ólíkar skoðanir „Við erum góðir félagar og maður lætur þetta ekkert á sig fá,“ segir Erpur Eyvindarson rappari um samstarf hans og söngvarans Henrik Biering í laginu Keyrumettígang en það hefur vakið athygli að kapparnir eru á sitthvorum endanum í pólitík. Erpur er þekktur fyrir að liggja ekki á sínum vinstrisinnuðum stjórnmálaskoðunum á meðan Henrik er sjálfstæðismaður. Lífið 26.7.2010 10:00
Sprautar ilmvatni í föt kærastans Söngkonan Rihanna sprautar ilmvatninu sínu í föt kærastans svo hann gleymi henni ekki þegar hún er fjarverandi. Rihanna varð ástfangin af körfuboltastjörnunni Matt Kemp fyrr á þessu ári. Þau eru í einskonar fjarbúð en Rihanna er þessa dagana á tónleikaferðalagi um Evrópu og Matt býr í Los Angeles. „Matt varaði félaga sína við og sagði þeim að hann lyktaði eins og kona því Rihanna sprautar stöðugt ilmvatni í fötin hans, sagði náinn vinur hans. Lífið 26.7.2010 09:58
Framleiðandi Toms Cruise í viðræðum við Íslendinga Bandaríski kvikmyndaframleiðandinn Paula Wagner, sem hefur unnið náið með Tom Cruise, er í viðræðum við þá Richard Scobie og Kristinn Þórðarson um að taka þátt í framleiðslu kvikmyndar eftir handriti þeirra 66 gráður norður. „Þetta einfaldlega gerbreytir öllu fyrir okkur og setur Lífið 26.7.2010 08:00
Tekur hjólhýsið fram yfir lúxuslífið Pamela Anderson, 43 ára, er fullkomlega hamingjusöm að búa í hjólhýsinu sínu á Malibu strönd. Fyrrum Baywatch stjarnan og synir hennar Brandon, 13 ára, og Dylan, 11 ára, fluttu í eins herbergja hjólhýsi á síðasta ári þegar Pamela lét taka húsið þeirra í gegn. Verutími þeirra í hjólhýsinu lengdist því við tóku alvarleg peningavandræði hjá Pamelu. „Ég og strákarnir elskum hjólhýsagarðinn. Það er mjög sérstakt samfélag en við erum mjög hamingjusöm þar. Ég vil ekki skipta þessu heimili út fyrir neinn lúxus. Hér vil ég búa," sagði Pamela. Pamela er ekki gjaldþrota en segir peningavandræði sín tilkomin vegna vangoldinna skulda þar sem eitt leiddi af öðru. „Kjaftasagan um að ég sé gjaldþrota er bull og vitleysa. Fjöldi fólks hefur þurft að ganga í gegnum fjárhagserfiðleika undanfarin ár og ég er þar meðtalin." Lífið 26.7.2010 07:37
Hatar ræktina og elskar súkkulaði Leikkonan Eva Mendes viðurkennir að hún hatar að æfa og elskar að borða. Eva, sem hefur setið fyrir léttklædd fyrir Calvin Klein tískuframleiðandann meðal annars, segist virkilega þurfa að hafa fyrir því að passa í uppáhalds gallabuxurnar sínar. „Ég er alveg eins og aðrar konur. Ég elska súkkulaði og hata að fara í ræktina en sannleikurinn er sá að ég verð að fara. Ég elska að borða og get ekki haldið aftur af mér þannig að ég mæti í ræktina og hreyfi mig, sagði Eva. „Ég get ekki hugsað mér að sleppa úr máltíð þannig að ég þyngist auðveldlega en ég er þakklát fyrir hvað það er auðvelt að halda sér í formi og njóta þess að borða súkkulaði í leiðinni." Lífið 25.7.2010 10:21
Einbeitir sér að viðskiptum Breska söngkonan Lily Allen, 25 ára, ætlar að eyða tíma sínum fyrir aftan skrifborðið. Fyrr á þessu ári tilkynnti söngkonan að hún ætlar að einbeita sér að viðskiptum í meira mæli í stað þess að semja tónlist. Markmiðið er að opna vintage verslun sem selur notaðan fatnað ásamt systur sinni og stofna sitt eigið útgáfufélag. „Ég er með litla skrifstofu í Soho og sit fyrir afttan skrifborðið mitt þar á hverjum degi. Það er virkilega gaman," segir Lily. Hún viðurkenni þó að það er ekki eins gaman að hanga á skrifstofunni og að ferðast um heiminn og halda tónleika. Lífið 25.7.2010 09:30
SATC ævintýrið búið Leikkonan Kristin Davis, 45 ára, segir að Sex and the City ævintýrið sé endanlega búið. Kristin, sem fór með hlutverk Charlotte York Goldenblatt í bandarísku sjónvarpsþáttaröðinni Sex and the City, segir að hún og leikkonurnar Sarah Jessica Parker, Kim Cattrall og Cynthia Nixon séu mjög stoltar yfir því sem þær hafa gert saman í sjónvarpi og á hvíta tjaldinu í gegnum tíðina. „Ég held það verði ekki framhald á okkar samstarfi. Ég vildi óska að svo væri," svaraði Kristin spurð hvort framhald verði á SATC ævintýrinu. Hún segir fjöldan allan af sögum að vinkonunum vera ósagðar. „Ég gæti haft rangt fyrir mér en horfurnar á framhaldi eru ekki góðar eins og er." Lífið 24.7.2010 20:32
Gleði og hamingja í opnunarpartí Kiosk Verslunin Kiosk Búðardóttir, sem rekin er af tíu ungum hönnuðum, opnaði á fimmtudaginn. Verslunin er staðsett við Laugaveg 33. Lífið 24.7.2010 14:00
Gerir grín að pabba Jaden Smith, sonur Hollywood leikarans Will Smith vakti mikla athygli á blaðamannafundi í Osló á dögunum en þar er fjölskyldan stödd til að kynna nýjustu mynd táningsins og Jackie Chan, Karate Kid. Jaden, sem er 12 ára gamall, var öryggið uppmálað þegar hann mætti pressunni enda orðin fjölmiðlavanur þrátt fyrir ungan aldur. Lífið 24.7.2010 12:00
Hljómsveitin Þeyr kemur saman í Norræna húsinu „Þetta verður svolítið hátíðlegt. Þetta verður ekki svona rokk og ról eins og Rúdólf eða Killer Boogie,“ segir Guðlaugur Kristinn Óttarsson, gítarleikari hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Þeys. Lífið 24.7.2010 11:00
Frelsisbaráttu Tíbet á RIFF 36 kvikmyndir hafa verið tilkynntar til þátttöku á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, RIFF, sem verður haldin 23. september til 3. október. Lífið 24.7.2010 10:00
Mugison samdi útilegulag í jarðarför Tónlistarmaðurinn Mugison hefur samið lagið „Stingum af“ sem hann ætlar að frumflytja á nýrri tónlistarhátíð sem verður haldin á Hótel Laugarhóli á Ströndum í dag. Lífið 24.7.2010 09:00
Ragnhildur Steinunn best klædda kona Íslands Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir fjölmiðlakona er best klædda kona Íslands að mati álitsgjafa okkar sem eru lesendur Lífsins. Lesendum Lífsins gafst kostur á að kjósa best klæddu konu Íslands í gegnum Facebook síðuna sem við höldum úti. Ragnhildur Steinunn, sem sigraði með yfirburðum, eignaðist hárprúða 16 marka stúlku 28. júní síðastliðinn. Unnusti hennar og barnsfaðir er Haukur Ingi Guðnason knattspyrnumaður. Lífið 24.7.2010 08:00
Allsgáðir á tónleikaferð Hinir fimm sameinuðu meðlimir strákabandsins Take That hafa ákveðið að banna áfengi á væntanlegri tónleikaferð um Evrópu á næsta ári. Svo virðist sem partístand sveitarinnar sé á enda runnið, enda hafa Robbie Williams og Mark Owen glímt við áfengisvandamál undanfarin ár. „Strákarnir ræddu Lífið 24.7.2010 06:00
Best klædda kona Íslands Nú stendur yfir kosning á best klæddu konu Íslands. Álitsgjafar eru lesendur Lífsins á Vísi en kosningin hefur staðið yfir í dag á Facebook síðunni okkar. Svala Björgvinsdóttir söngkona, Sara María fatahönnuður og eigandi Forynju, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Hugrún Árnadóttir hönnuður og eigandi Kron kron og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir fjölmiðlakona skipa fimm efstu sætin yfir best klæddu konur landsins. Taktu þátt og kjóstu hér (kosningin stendur yfir til klukkan 08:00 í fyrramálið). Lífið 23.7.2010 19:15
Týndar upptökur komnar í leitirnar Leikararnir Örn Árnason, Sigurður Sigurjónsson og Karl Ágúst Úlfsson, mennirnir á bak við einkaspæjarana Harry og Heimi, fengu í gær afhendar týndar upptökur af tveimur útvarpsþáttum sínum frá árinu 1993. Lífið 23.7.2010 19:00
Mikil aðsókn á Bræðsluna „Þetta er allt að smella saman og fjöldi fólks á svæðinu nú þegar,“ segir Magni Ásgeirson, annar skipuleggjandi Bræðslunnar, sem fer fram um helgina á Borgarfirði eystri, en þegar Fréttablaðið náði af söngvaranum tali var hann í miðjum heyskap í sólinni fyrir austan. „Miðarnir voru að seljast Lífið 23.7.2010 17:00
Gangárinn veit allt um Flateyri Danstvíeikið Vaðall, sem samanstendur af dönsurunum og danshöfundunum Aðalheiði Halldórsdóttur og Valgerði Rúnarsdóttur, sýnir verkið Var það Gangári? á Flateyri á morgun. Lífið 23.7.2010 16:34
Leitar að rétta kjólnum Þýska ofurfyrirsætan Heidi Klum leitar nú logandi ljósum að kjól fyrir Emmy verðlaunahátíðina sem fram fer í lok ágúst. Sjónvarpsþátturinn hennar Heidi, Project Runway, er tilnefndur í flokki bestu raunveruleikaþáttanna.. „Undanfarið hef ég leitað til vina minna í tískugeiranum. Allir tískuhönnuðir eru horfnir í sumarfri þar sem þeir drekka kampavín á lúxussnekkjunum sínum. Enginn hefur tíma til að hanna spennandi kjól fyrir mig á þessum árstíma," sagði Heidi. Lífið 23.7.2010 16:28
Hilmir Snær og Ingvar E. leiða saman hesta sína „Það er óhætt að segja að leikhópurinn sé einstaklega glæsilegur,“ segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins, en nú er loks orðið ljóst hverjir skipa helstu hlutverk í jólasýningu Borgarleikhússins, Lífið 23.7.2010 16:00
Sér eftir að hafa gleypt svefnpillur Söngkonan Courtney Love segist sjá eftir að hafa tekið svefnpillur. Courtney, sem hefur neytt eiturlyfja í fjölda ára, segist leggja sig fram á hverjum einasta degi við að halda sig frá vímunni. Hún viðurkennir að hafa ekki náð að sofa almennilega undanfarið og því brugðið á það ráð að gleypa svefntöflur. „Svefnleysið er að drepa mig og ég græt ofan í koddann minn. Mér líður svo illa yfir þessu og ég er svo sorgmædd," skrifaði hún á Twitter síðuna sína Lífið 23.7.2010 15:45
Sigurjón og DeNiro í tökum í Melbourne Tökur á kvikmyndinni The Killer Elite eru nú í fullum gangi í Melbourne en meðal framleiðenda myndarinnar er Sigurjón Sighvatsson. Lífið 23.7.2010 14:00