Lífið

Brjóstagjöf lykill að kjörþyngd

Mamma brasilísku ofurfyrirsætunnar Gisele Bündchen er hetjan hennar. Gisele, sem á soninn Benjamin fyrir níu mánuðum, með eiginmanni sínum Tom Brady elskar móðurhlutverkið. Mamma hennar, Vânia, er fyrirmyndin í lílfi hennar. Mamma er hetjan mín. Ég kann virkilega að meta allt sem hún hefur gert. Hún ól upp sex börn samhliða vinnunni og nágrannarnir hjálpuðu okkur. Hverfið var eins og ein stór fjölskylda," sagði Gisele. Gisele var mætt aftur í vinnuna aðeins sex vikum eftir að hún eignaðist drenginn en hún þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að grennast aftur. Hún borðaði holla fæðu yfir meðgönguna og heldur því fram að brjóstagjöfin hafi hjálpað til að ná kjörþyngd á ný. Hún tekur drenginn með sér hvert sem hún fer. Ég er svo heppin að geta tekið hann með mér hvert sem ég fer. Ég geri ekkert án hans. Við höfum verið aðskilin í þrjá klukkutíma," sagði Gisele.

Lífið

Troðfullt á súlukeppni

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Íslandmeistaramótinu í Súluformi sem fram fór Re-Play Sportbar um helgina. „Keppnin gekk afskaplega vel. Stelpurnar sýndu atriðin sín sem voru ekkert smá flott. Húsið var troðið og mögnuð stemming," svaraði Inga Dungal framkvæmdastjóri keppninnar spurð hvernig til tókst. Sólveig Steinunn Pálsdóttir sigraði en hana sjá hér (youtube) og Eva Rut Hjaltadóttir landaði öðru sætinu eins og sjá má hér (youtube). Myndirnar tók Sveinbi ljósmyndari hjá Súperman.is.

Lífið

Tískuvikurnar byrjaðar

Nú eru tískuvikur haustsins að fara af stað og er það New York sem reið á vaðið um helgina. Verið er að sýna tískustrauma og stefnur næsta vors og sumars. Stjörnurnar flykkjast til borgarinnar til að sýna sig og sjá aðra sem og að drekka í sig tískuna.

Lífið

Jay-Z vill eiga Arsenal

Rapparinn Jay-Z hefur mjög mikinn áhuga á að fjárfesta í enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal. Jay-Z, sem er kvæntur söngkonunni Beyoncé Knowles, hefur verið aðdáandi liðsins síðan Frakkinn Thierry Henry lék með því fyrir nokkrum árum.

Lífið

Super Mario 25 ára í dag

Super Mario og félagar hans í samnefndum tölvuleikjum fagna 25 ára afmæli sínu í dag. 250 milljón leikir hafa verið seldir frá því fyrsti Super Mario leikurinn var gefinn út af Nintendo tölvuleikjarisanum og því er um að ræða vinsælustu tölvuleikjaröð í sögunni.

Leikjavísir

Skólahreysti vettvangur nýrrar bíómyndar

Unglingakeppnin Skólahreysti, þar sem grunnskólnemar landsins keppa í allskyns íþróttaþrautum, verður miðpunktur nýrrar íslenskra unglingamyndar sem framleiðslufyrirtækið Saga Film hyggst gera.

Lífið

Hefur ekki sungið í fimmtán ár

Jónmundur Grétarsson gerði garðinn frægann fyrir fimmtán árum í leikritinu Bugsy Malone þar sem hann heillaði áhorfendur með sóp í hönd raulandi lagið „Á morgun“. Nú hefur hann ákveðið að dusta rykið af leikaraferlinum og fer með hlutverk Sams Cook í söngleiknum Buddy Holly. „Það hefur alltaf

Lífið

Sér fyrir endann hjá Kylie

Söngkonan Kylie Minogue segist enn eiga í erfiðleikum vegna krabbameinsmeðferðar sinnar en hlakkar til þegar henni lýkur á næsta ári. Eins og kunnugt er greindist Kylie með brjóstakrabbamein árið 2005 og nú fimm árum síðar er hún enn í lyfjameðferð sem á að tryggja að sjúkdómurinn taki sig ekki upp að nýju.

Lífið

Sofia Coppola sigraði í Feneyjum

Leikstjórinn Sofia Coppola hlaut Gullna ljónið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum um helgina fyrir kvikmynd sína Somewhere. Myndin fjallar um Hollywoodstjörnu sem reynir að ná aftur til ungrar dóttur sinnar. Með aðalhlutverk í myndinni fara Stephen Dorff og Elle Fanning.

Lífið

Smith-barnið í tónlistina

Willow Smith, níu ára gömul dóttir leikarahjónanna Wills Smith og Jada Pinkett Smith, er að hasla sér völl innan tónlistargeirans. Fyrsta smáskífa stúlkunnar hefur lekið á Netið og fær afbragðs dóma, meðal annars frá gagnrýnanda LA Times. Laginu „Whip my hair“ er sagt geta verið frá stórstjörnum á borð við Rihönnu og Keri Hilson og þykir Willow Smith hafa alla burði til að ná langt á sviði tónlistar.

Lífið

Útvarp er leikhús ímyndunaraflsins

Vetrardagskrá Útvarpsleikhússins hefst á sunnudag þegar leikritið Djúpið eftir Jón Atla Jónasson verður frumflutt. Útvarpsleikhúsið hefur breyst frá því sem var, að mati Viðars Eggertssonar leikhússtjóra og forsendur og möguleikar útvarpsins höfð í fyrirrúmi.

Lífið

Trúarvakning í bókaútgáfu

Bókaforlagið Veröld hefur gefið út bókina Þú sem ert á himnum – rýnt í bresti biblíunnar með guði almáttugum eftir Úlfar Þormóðsson. Í bókinni fer Úlfar í

Lífið

Ólafur biskup í hlandskálum

„Það tókst aldrei að dæma hann og okkur fannst það leiðinlegt. Þetta er okkar framlag í því máli,“ segir Össur Hafþórsson, einn af eigendum skemmtistaðarins Sódómu Reykjavík.

Lífið

Orðin sérfræðingur um kossa og kynlífsstellingar

„Þetta er náttúrlega aðallega bara hrikalega óþægilegt, að lýsa kynlífsathöfnum í smáatriðum,“ segir Anna Svava Knútsdóttir leikkona hlæjandi en hún er þessa dagana að leggja lokahönd á handrit að sjónvarpsþáttum byggðum á bókinni Makalaus. Fylgifiskur þess er að

Lífið

Leikur alka í nýrri mynd

Samkvæmt breska blaðinu Daily Mail hefur Gwyneth Paltrow samþykkt að leika áfengissjúka tónlistarkonu í kvikmyndinni Country Strong. Gwyneth er auðvitað gift Chris Martin, oftast kenndum við Coldplay, og því ættu

Lífið

Í brúðkaupsferð til Ítalíu

Anna Paquin og eiginmaður hennar, Stephen Moyer, eru nú stödd í Ravello á Ítalíu til að halda upp á brúðkaup sitt. Þau játuðust hvort öðru í Malibu fyrir tveimur vikum og sáust ákaflega hamingjusöm á hinum vinsæla ferðamannastað, Amalfi-ströndinni, á mánudag.

Lífið

Europe-stjóri aðstoðaði Noise

Bandaríski upptökustjórinn Beau Hill lagði lokahönd á þriðju plötu rokksveitarinnar Noise sem kemur út á mánudaginn. Hann er þekktastur fyrir að hafa tekið upp plötur með Alice Cooper, Warrant og Europe og hafa þær útgáfur selst í hátt í fimmtíu milljónum eintaka.

Lífið

Lou Reed vildi ekki sjá Boyle

Breskir fjölmiðlar greindu frá því í vikunni að farþegar hefðu kvartað undan ónæði af hálfu söngkonunnar Susan Boyle um borð í flugi frá New York til London í vikunni. Boyle ku hafa sungið hátt og grátið með reglulegu millibili auk þess sem henni þótti ekkert verra að fá sér í tána inn á milli. Bandaríski slúðurvefurinn TMZ komst í gær yfir tölvupóst frá talsmanni Boyle þar sem málið er útskýrt.

Lífið

Erlendur snýr aftur í nóvember

Erlendur Sveinsson, einn ástsælasti rannsóknar-lögreglumaður Íslands, snýr aftur í nóvember í fjórtándu skáldsögu Arnaldar Indriðasonar. Erlendur hefur lítið komið við sögu í síðustu bókum Arnaldar og leyft aðstoðarmönnum sínum, þeim Elínborgu og Sigurði Óla, að eiga sviðið.

Lífið

Borgarfulltrúar í karate

Borgarfulltrúar Besta flokksins skelltu sér á karateæfingu í hádeginu í gær og slóst Gísli Marteinn Baldursson í hópinn. Stefnt er að því að meira verði um álíka hópefli í borgarstjórn.

Lífið

Ætlar að sigrast á krabbameininu

Michael Douglas eru gefnar áttatíu prósent líkur á því að sigrast á krabbameini sem hann greindist með á dögunum. Hann er í baráttuhug. Michael Douglas kveðst vera bjartsýnn á að honum takist að sigrast á krabbameini sem hann greindist með í hálsi í síðasta mánuði. Hann viðurkennir þó að bæði geisla- og lyfjameðferðin dragi úr honum kraft og hann komist ekki yfir allt sem hann langi til að gera yfir daginn.

Lífið

Elskaði að vera á lausu

Breski leikarinn Stephen Moyer sem leikur vampíruna Bill Compton í sjónvarpsþáttaröðinni True Blood á móti eiginkonu sinni, leikkonunni Önnu Paquin, rölti um Lundúnarborg þegar hann var laus og liðugur og sötraði vín samhliða því að semja léleg ljóð. Stephen er í sjöunda himni yfir því að hafa hitt Önnu. Ég er elskaði að vera á lausu. Þá naut ég þess að rölta um London með rauðvínsflösku og samdi léleg ljóð," sagði Stephen. Hann segir að samband hans við Önnu sé frábært því þau eru opin gagnvart hvort öðru og ræða öll heimsins mál. Það er gott að tala við Önnu. Ef mér líður illa yfir einhverju er ekkert mál að ræða við hana," sagði hann.

Lífið

Íhugar að kýla á klámbransann

Leikarinn Justin Long hefur skyndilega fengið áhuga á að leikstýra eða leika í klámmynd. Um þessar mundir kynnir Justin kvikmyndina Going the Distance sem segir frá pari í fjarbúð. Hann hefur mikinn áhuga á að kynna sér klámiðnaðinn að eigin sögn. Ég veit að þetta hljómar eins og brandari en ég hef verið að kynna mér framtíðarstörf innan klámbransans," sagði Justin. Jafnvel sem leikari, leikstjóri eða handritshöfundur. Kannski tekst ég bara á við klámið næsta árið."

Lífið

Fastur gestalisti á P Bar

Meðfylgjandi myndir voru teknar á nýjum bar sem er staðsettur þar sem Austurstræti og Pósthússtræti mætast. Barinn ber heitið P Bar og það sem vekur athygli er að aldurstakmarkið er 25 ár. Staðurinn er lítill og kósý og þar hefur undanfarnar vikur myndast eftirsóknarvert andrúmsloft," svarar Daddi diskó, sem er plötusnúður, spurður út í nýja staðinn. P Bar höfðar mjög sterkt til þeirra sem gera kröfur um góða þjónustu, þægilegt andrúmsloft og vilja gera vel við sig. Staðurinn opnar snemma og við byrjum að spila um tíu leitið skemmtilega kokteiltónlist en um miðnættið er það púkatónlistin sem ræður ríkjum og þá getur allt gerst. Þetta hefur mælst gríðarlega vel fyrir og gestir hafa lýst yfir ánægju með það að loks sé í boði staður af þessu tagi í miðbænum," segir Daddi. Útgangspunkturinn er gott partý meðal vina," bætir hann við. Við erum með fastan gestalista líkt og ég kom á á Thorvaldsen bar í denn enda leggjum við áherslu á að mæta kröfum okkar viðskiptavina um persónulega þjónustu og persónuleg samskipti. P Bar notar Facebook til að halda utan um þann hóp sem er á föstum gestalista hér.

Lífið

K-Fed kemur Britney til varnar

Kevin Federline dúkkar upp í bandarískum fjölmiðlum með reglulegu millibili. Ekki þó vegna þess að þeir séu svo áhugasamir um dans-eða rappferil hans heldur af því að þeir vilja vita hvað honum finnist um hin og þessi mál sem tengjast fyrrum eiginkonu hans, popp-prinsessunni Britney Spears

Lífið

Hraunar yfir klæðaburð Victoriu

Sænska leikkonan Britt Ekland, 67 ára, hraunar yfir kjólana sem Victoria Beckham klæðist. Britt segist frekar fremja sjálfsmorð en að klæðast kjólum eftir Victoriu. Britt, sem er fyrrum Bond stúlka, segir að þægindin skipti hana miklu meira máli en merkin þegar kemur að fatnaði og fylgihlutum. Hún vill frekar klæðast gallabuxum og þægilegum skóm heldur en að ganga um á hælaskóm og þröngum kjólum líkt og Victoria gerir. Ég myndi frekar drepa sjálfa mig heldur en að ganga í kjólum eins og Victoria Beckham og að ekki sé minnst á hælaskóna sem hún gengur í dag eftir dag," sagði Britt. Hér áður fyrr var ég mikið fyrir rándýran fatnað og skartgripi en ég hef engan áhuga á slíku í dag."

Lífið

Keypti þjónustu rándýrra erlendra tónlistarmanna

Bandaríski rapparinn Chino XL er í gestahlutverki á fyrstu sólóplötu Authentic the Exception, sem heitir réttu nafni Magnús Þór Gylfason. „Það kostaði hálft ár í bið og 1.500 dollara að fá hann. Það þurfti mikið af

Lífið