Lífið
Ekki lögð í einelti í skóla Leikkonan Emma Watson úr Harry Potter-myndunum hefur vísað á bug fregnum um að hún hafi hætt í Brown-háskólanum á Rhode Island í Bandaríkjunum vegna þess að hún hafi verið lögð í einelti. Watson ákvað fyrir skömmu að taka sér frí frá námi í eina önn. Í yfirlýsingunni sagðist hún aldrei hafa lent í einelti, hvorki í Brown né annars staðar. Hún er ekki viss um hvað tekur við í haust þegar þriðja námsárið hefst. Hugsanlega fer hún í nám í öðru landi. Lífið 1.5.2011 00:01
Húðflúrari Tyson bálreiður Ef kynningarmyndband væntanlegrar kvikmyndar Hangover 2 er skoðað má greinilega sjá að Ed Helms vaknar upp með nákvæmlega eins húðflúr og Mike Tyson lét setja á andlitið á sér árið 2003. Húðflúrarinn, S. Victor Whitmill, sem bæði teiknaði og húðflúraði listaverkið í andlitið á Tyson er brjálaður út í Warner Bros, framleiðanda kvikmyndarinnar því hann telur sig eiga höfundarréttinn á listaverkinu. S. Victor hefur kært Warner Bros og fer fram á stjarnfræðilega háar fjárhæðir. Lífið 30.4.2011 21:43
Prinsessan greinilega sátt við brúðkaupsnóttina Ef meðfylgjandi myndir, sem teknar voru af Vilhjálmi Bretaprins, 28 ára, og Katrínu Middelton, 29 ára, í dag, laugardag, eru skoðaðar líta þau út fyrir að vera í sjöunda himni eftir brúðkaupið þeirra sem fram fór í Westminster Abbey í gær að viðstöddu fjölmenni. Þá má einnig sjá þyrluna sem flaug með hjónakornin burt frá Bretlandi á ónefndan stað þar sem þau ætla að eyða helginni saman. Opinberu brúðkaupsmyndirnar sem teknar voru af þeim eftir athöfnina má einnig skoða í meðfylgjandi myndasafni. Lífið 30.4.2011 20:33
Eignuðust tvíbura í dag Söngkonan Mariah Carey, 41 árs, og eiginmaður hennar, Nick Cannon, 30 ára, eignuðust tvíbura í dag, dreng og stúlku, á fjögurra ára brúðkaupsafmælinu þeirra, klukkan 12:07, á Los Angeles spítalanum. Eiginkona mín gaf mér ótrúlegustu gjöf sem hægt er að hugsa sér á brúðkaupsafmælinu okkar. Ég á aldrei eftir að toppa hana, skrifaði Nick á Twitter síðuna sína í dag. Hjónin hafa ekki gefið tvíburunum nöfn en þau hlustuðu saman á vinsælt lag Mariuh We Belong Together strax eftir að börnin fæddust. Lífið 30.4.2011 20:06
Maó í Madrid Þessi litla íbúð í miðborg Madrid á Spáni með mynd af Maó á stofuveggnum er í risi á eldgamalli klassískri byggingu þar sem áður voru geymslur. Með því að mála rýmið hvítt, lóðrétt og lárétt, er tilfinningunni fyrir lítilli lofthæð í stórum hluta íbúðarinnar minnkuð. Rýmið úr rjáfri niður í gólf flæðir fallega í eina heild eins og sjá má í myndasafni. Tíska og hönnun 30.4.2011 16:33
Haustlína Victoriu Beckham 2011 Haustlínu Victoriu Beckham 2011 má skoða í meðfylgjandi myndasafni. Tíska og hönnun 30.4.2011 16:26
Cut Copy til Íslands í sumar "Ég held að þetta eigi eftir að verða besta partí sumarsins, jafnvel þótt það sé á miðvikudegi. Bestu partí sumarsins eru alltaf á virkum dögum,“ segir Steinþór Helgi Arnsteinsson tónleikahaldari. Lífið 30.4.2011 16:00
Óþekkjanleg Jennifer Lopez Söngkonan og American Idol dómarinn Jennifer Lopez, 41 árs, var nánast óþekkjanleg með risastór sólgleraugu á nefinu, ómáluð í andliti, með hárið tekið upp í snúð, klædd í bleikar joggingbuxur og svartan síðerma rúllukragabol eins og sjá má á myndunum sem voru teknar í fyrradag. Það var hinsvegar allt annað að sjá söngkonuna klædda í gylltan glamúrgalla eftir Zuhair Murad og Christian Louboutin skó. Þetta kvöld var Jennifer stórglæsileg eins og sjá má í myndasafni. Um var að ræða heljarinnar partý sem hún hélt í Los Angeles tilefni af nýju plötunnar hennar Love?. Burtséð frá nýju plötunni er nóg að gera hjá Jennifer. Hún og eiginmaður hennar Marc Anthony ásamt Simon Fuller, sem er hugmyndasmiðurinn á bak við Idol, skipuleggja nú nýjan sjónvarpsraunveruleikaþátt sem ber heitið Que Viva. Þátturinn gengur út á að uppgötva nýja hæfileikaríka söngvara sem eiga ættir sínar að rekja til suður ameríku. Þá hefur Jennifer einnig tekið að sér að taka þátt í að talsetja væntanlega teiknimynd Ice Age: Continental Drift. Lífið 30.4.2011 16:00
Ítalskur dagskrárstjóri ráðinn til RIFF Ítalinn Giorgio Gosetti hefur verið ráðinn dagskrárstjóri Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF. „Ég get fullyrt það að hann er tvímælalaust einn af bestu dagskrárstjórum í Evrópu og þótt víðar væri leitað,“ segir Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF. Lífið 30.4.2011 14:00
Lifði af tímann með Mínus Storme Withy-Grubb frá Englandi tekur þátt í fræðslukvöldi Útóns á þriðjudaginn. Hún hefur skipulagt tónleikaferðir með frægum hljómsveitum á borð við Bloc Party, Kaiser Chiefs, CSS og hina íslensku Mínus. Lífið 30.4.2011 13:00
Vinsælir á Tribeca Leikstjórinn Gaukur Úlfarsson er ánægður með viðtökurnar sem heimildarmynd hans Gnarr fékk á kvikmyndahátíðinni Tribeca í New York. Lífið 30.4.2011 12:00
Katy Perry leiðir listann Breska tónlistartímaritið NME kannar um þessar mundir hvaða listamaður er magnaðasti popptónlistarmaður allra tíma. Hvorki meira né minna. Lífið 30.4.2011 11:00
Brjálaður út í sjálfan sig Rapparinn Ja Rule hefur tjáð sig í fyrsta sinn um yfirvofandi fangelsisvist sína. Hann byrjar í júní afplánun á tveggja ára dómi sem hann fékk fyrir vopnaburð árið 2007. Ja Rule, sem heitir réttu nafni Jeffrey Atkins, er reiðubúinn að fara í steininn en finnur til með eiginkonu sinni og þremur börnum þeirra. „Ég er brjálaður út í sjálfan mig. Dóttir mín er fimmtán ára og er á leiðinni í menntaskóla. Hún þarf á föður sínum að halda. Strákarnir mínir þurfa líka á mér að halda, rétt eins og konan mín. Pabbi klúðraði sínum málum,“ sagði hann. Lífið 30.4.2011 10:00
Tenórarnir í Hörpu Tenórar hefja upp raust sína á síðustu óperutónleikunum í Gamla bíói, sem hýst hefur íslenskar óperur til margra ára. Tenórarnir hafa gjarnan kallað sig tenórana þrjá, en í kvöld verða þeir reyndar fjórir; Garðar Thor Cortes, Gissur Páll Gissurarson, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Snorri Wium. Menning 30.4.2011 10:00
Smíðaði einstakt hljóðfæri fyrir Björk Guðmundsdóttur Björgvin Tómasson orgelsmiður lauk nýverið við að smíða nýtt hljóðfæri handa tónlistarkonunni Björk. Hljóðfærið mun leika veigamikið hlutverk á næsta hljómdiski Bjarkar. Lífið 30.4.2011 08:00
Big Boi með Modest Mouse Isaac Brock og félagar í hljómsveitinni Modest Mouse vinna nú að fimmtu breiðskífu sinni. Á meðal þeirra sem hafa unnið með hljómsveitinni í hljóðverinu er rapparinn Big Boi úr OutKast-dúettinum, en ekki liggur fyrir hvað hann hefur fram að færa. Big Boi greindi frá þessu á Twitter-síðu sinni og bætti við að meðlimir Modest Mouse væru svölustu kettir allra tíma (e. coolest cats ever). Lífið 30.4.2011 06:00
Sjáðu hattana og kjólana Hattanir og kjólarnir voru misfallegir eins og þeir voru margir í brúðkaupi Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton í Westminster Abbey í London í dag eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Hattur Victoriu stal senunni. Hún var stórglæsileg með svartan Phillip Treacy hatt og hárið tekið í tagl. Þá var hún klædd í kjól eftir sjálfa sig og sérsniðnum Christian Louboutin hælaskóm. Eiginmaður hennar, David var klæddur í Ralph Lauren smóking. Sjáðu brúðarkjól prinsessunnar hér og skvísuna sem skyggði á prinsessuna þennan dag. Lífið 29.4.2011 20:50
Fer aftur í meðferð Richie Sambora, gítarleikari rokksveitarinnar Bon Jovi, hefur ákveðið að fara í meðferð vegna vímuefnavandamála sinna. Sambora, sem hefur lengi barist við fíkniefnadjöfulinn, fór síðast í meðferð fyrir fjórum árum. Ári síðar var hann handtekinn fyrir að aka undir áhrifum og lýkur hann afplánun þriggja ára skilorðsbundins dóms síðar á þessu ári. Næstu tónleikar Bon Jovi eru fyrirhugaðir á morgun en óvíst er hvort af þeim verður vegna vandamála gítarleikarans. Lífið 29.4.2011 20:00
Gettu hver skyggði á prinsessuna í dag? Pippa Middleton, 27 ára, systir prinsessunnar, skyggði heldur betur á systur sína í dag. Pippa fangaði athygli heimspressunnar þegar hún mætti fantaflott í aðsniðnum kjól hugsandi um það eitt að kjóll brúðarinnar liti sem best út. Getur verið að sæta ólofaða systirin hafi verið sætari en prinsessan á sjálfan brúðkaupsdaginn? Kíktu á myndirnar af Pippu hér. Lífið 29.4.2011 19:17
Rigningarhús í Seattle Rigningarhúsið í Seattle sem byggt var árið 2006 má skoða í meðfylgjandi myndasafni. Húsið endurspeglar blautt veðurfar borgarinnar í sterkum vatnsheldum efnum með takmarkaðir notkun efna sem illa þola stöðuga vætutíð. Þetta hús myndi sóma sér vel í slyddunni hér á Íslandi. Húsið er staðsett í austurhluta Seattle borgar. Lóðin er lítil í þröngu skipulagi borgarinnar og hvert herbergi hússins tekur mið að því að hámarka nýtingu rýmisins. Einfalt og nútímalegt hús í þessari frábæru borg rigninganna á norðuvesturströnd Bandaríkjanna. Tíska og hönnun 29.4.2011 18:57
Haustlína Comme des Garçons 2011 Haustlínu Comme des Garçons 2011 má skoða í myndasafni. Tíska og hönnun 29.4.2011 18:45
Haustlína Acne 2011 Meðfylgjandi má sjá myndir frá tískusýningu Acne á tískuvikunni í París á dögunum þar sem haustlína 2011 var sýnd. Tíska og hönnun 29.4.2011 18:28
G-Star haustlínan 2011 Í meðfylgjandi myndasafni má sjá haustlínu G-Star fyrir árið 2011. Tíska og hönnun 29.4.2011 18:13
Kaloríulausar kræsingar Erla Ósk Arnardóttir er hugmyndasmiðurinn á bak við kræsingarnar sem sjá má í meðfylgjandi myndskeiði en sætindin eru gerð úr sápu sem hún býr til sjálf frá grunni. Við heimsóttum Erlu Ósk í dag, fengum að skoða sápurnar hennar og spurðum hana hvernig hugmyndin að Sápubakaríinu sem hún rekur varð til og hvernig viðtökurnar við afurðinni hafa verið. Sápubakaríið hennar Erlu á Facebook. Lífið 29.4.2011 16:14
Blúndubrúðarkjólar ekki vinsælir á Íslandi Sigurdís Ólafsdóttir eigandi brúðarkjólaleigunnar Tvö Hjörtu í Bæjarlind fylgist vel með hvað íslenskar brúður vilja þegar brúðarkjólar eru annars vegar. Við litum við hjá henni í dag til að forvitnast um brúðarkjóla og slör í tilefni af brúðkaupi Vilhjálms bretaprins og Katrínar. Lífið 29.4.2011 15:48
Konunglegur koss Meðfylgjandi má sjá fyrsta opinbera koss Vilhjálms og Katrínar á svölum Buckingham hallar í dag. Eins og heyra má brutust út gríðarleg fagnaðarlæti á meðal fjöldans þegar prinsinn kyssti prinsessuna sína. Lífið 29.4.2011 15:22
Dansinn sem allir eiga að geta lært Alþjóða dansdagurinn er í dag. Hátíðarhöld verða á Ísafirði, Akureyri og í höfuðborginni en dagskrá hefst í Smáralind klukkan 17. Í tilefni dagsins var saminn hip hop dans sem ætlunin er að dansa á öllum hátíðunum. Ísland í dag kíkti á krakka í Dans Center sem fluttu lengri útgáfu af dansinum eins og sjá má hér fyrir ofan. Aðstandendur dagsins segja að allir eigi að geta lært dansinn. Þeir sem vilja negla sporin geta einnig kíkt á kennslumyndband sem sett var á YouTube. Lífið 29.4.2011 15:14
Steelheart flytur She's Gone á Nasa í sumar Bandaríska "hár-metal“ hljómsveitin Steelheart spilar á Nasa 8. júní. Hún er þekktust fyrir kraftballöðuna She"s Gone þar sem söngvarinn Miljenko "Mili“ Matijevic nær ótrúlegum tónhæðum. Dagur Sigurðsson, sem vann Söngkeppni framhaldsskólanna fyrir skömmu, er mikill aðdáandi Steelheart, einkum söngvarans Mili. Lífið 29.4.2011 14:00
Snuðra um fólk og staði Snoop-around er ný ljósmynda- og viðtalsvefsíða þar sem heimili, vinnustaðir og vinnustofur skapandi fólks eru heimsótt. Markmið síðunnar er að gefa innsýn í líf áhugaverðs fólks bæði í máli og myndum. Lífið 29.4.2011 13:00
Prinsessan yfirveguð við altarið Prinsessan Katrín Middleton var áberandi yfirveguð eins og hún hefði ekki gert neitt annað um ævina þegar hún gekk að eiga Vilhjálm bretaprins í Westminster Abbey í dag. Þú ert gullfalleg, sagði Vilhjálmur við Katrínu þegar faðir hennar, Michael Middleton, var um það bil að gefa honum hönd dóttur sinnar. Lífið 29.4.2011 12:42