Lífið

Pabbi í þriðja sinn

Leikarinn Ryan Phillippe er orðinn faðir í þriðja sinn. Fyrrum kærasta leikarans, fyrirsætan Alexis Knapp, fæddi litla stúlku í vikunni og hefur hún hlotið nafnið Kai.

Lífið

Stone skotin í Hendricks

Leikkonan Emma Stone viðurkenndi í nýlegu viðtali að henni þætti leikkonan Christina Hendricks mjög falleg kona. Stone, sem gert hefur garðinn frægan í gamanmyndum á borð við Superbad og The House Bunny sagði við blaðamann The Advocate að henni þætti Mad Men leikkonan vera ein sú fallegasta í bransanum í dag. „Allt við hana er fallegt, hún er akkúrat mín týpa.“

Lífið

Skilnaður í uppsiglingu hjá Russel og Katy

Vinir Russells Brand og Katy Perry óttast að hjónaband þeirra muni ekki verða langlíft. Sumir spá því að því verði lokið innan fjögurra mánaða.Miklar vinnutarnir hafa tekið sinn toll af hjónabandinu auk stöðugra sögusagna um daður Brands á tökustöðum.

Lífið

Hurts-greiðslan vinsæl á Íslandi

Hárgreiðslan sem Theo Hutchcraft, söngvari Hurts, skartar er sú vinsælasta meðal stráka á Íslandi. Þetta fullyrðir blaðamaður London Evening Standard í viðtali við söngvarann. Hutchcraft segist því ekki hafa neinar áhyggjur ef poppferillinn fari í vaskinn. „Ég get þá alltaf farið til Íslands og opnað hárgreiðslustofu,“ segir hann.

Lífið

Gwyneth borðar aldrei á McDonalds

Leikkonan Gwyneth Paltrow vakti athygli þegar hún sagðist heldur vilja reykja krakk en að borða ost úr spreybrúsa, en slíkan ost er hægt að kaupa víða í Bandaríkjunum.

Lífið

Robbie allur að róast

Söngvarinn Robbie Williams hyggur á barneignir á næstunni með eiginkonu sinni, bandarísku leikkonunni Aydu Field. Hann tekur þó skýrt fram að frúin sé ekki ólétt.

Lífið

Cage og sonurinn saman í meðferð

Weston Cage, sonur leikarans Nicolas Cage, og eiginkona hans, Nikki Williams, hafa skráð sig saman í áfengismeðferð. Hjónakornunum, sem eiga von á sínu fyrsta barni, lenti illilega saman fyrir skömmu og fjölluðu bandarískir fjölmiðlar ítarlega um málið.

Lífið

Vill taka upp lag í geimnum

Matt Bellamy, söngvara Muse, dreymir um að taka upp plötu í geimnum. Þetta segir hann í viðtali á tónlistarvefnum Contact Music.

Lífið

Felldu tár fyrir Potter

Mikið var um dýrðir í London þegar rauða dreglinum var rennt út fyrir leikaralið Harry Potter myndanna. Síðasta myndin í seríunni um vinsæla galdrastrákinn, Harry Potter og dauðadjásnin, seinni hluti, var frumsýnd í London í vikunni.

Lífið

Tvítyngdar Hollywood-stjörnur

Stjörnur eru ekki aðeins fríðar ásýndum heldur eru þær margar einnig vel að sér í tungumálum. Til að mynda tala þau Joseph Gordon-Levitt og Jodie Foster bæði frönsku og Gwyneth Paltrow og Casey Affleck eru þekkt fyrir góða spænskukunnáttu. Aðrar stjörnur eru þó svo heppnar að hafa fengið sitt annað tungumál strax með móðurmjólkinni.

Lífið

Clooney þoldi ekki athyglissýkina

George Clooney og ítalska fjölmiðlakonan Elisabetta Canalis ákváðu í júní að slíta samandi sínu. Mikið hefur verið fjallað um sambandsslitin bæði í ítölskum og bandarískum fjölmiðlum og velta menn því fyrir sér hvað hafi valdið slitunum.

Lífið

Rokkhamborgarar á hjólum

"Ég hef lengi verið að spá og spekúlera í þessa hluti og langað til að gera eitthvað þessu líkt. Ég datt í algjöran lukkupott þegar ég fann þennan bíl,“ segir Guðfinnur Karlsson, athafnamaður með meiru en oftast kenndur við Prikið. Á næstunni mega höfuðborgarbúar búast við því að sjá einstakt farartæki á götum bæjarins. Hamborgarastað á hjólum, innblásinn af rokki og róli eins og nafnið gefur til kynna; Rokk Inn. Finni er kominn með leyfi fyrir bílnum á Geirsgötuplani, ætlar að færa út kvíarnar enn frekar og hyggst jafnframt herja á afmæli og aðrar veislur.

Lífið

Efnilegir síðrokkarar

Lockerbie er fjögurra manna sveit úr Reykjavík og Hafnarfirði sem var stofnuð árið 2008 og vakti strax þá nokkra athygli fyrir frammstöðu sína á tónleikum með hljómsveitunum For a Minor Reflection og Soundspell. Í fyrrasumar sigraði Lockerbie í sumarlagakeppni Rásar 2 og Sýrlands með laginu Snjóljón og síðan hefur sveitin verið dugleg að koma sér á framfæri úti í hinum stóra heimi, gaf meðal annars út smáskífu hjá Bad Panda Records í upphafi ársins 2011. Og nú er fyrsta stóra platan, Ólgusjór, komin út á vegum Record Records.

Gagnrýni

Lady Gaga í tómu rugli

Lady Gaga segist ekki lengur gera greinarmun á sjálfri sér og þeirri persónu sem kemur fram á sviðinu. Lady Gaga, sem heitir réttu nafni Stefani Germanotta, segir að hún fari oft á tíðum svo djúpt í karakter að búningarnir og framkoma hennar séu einfaldlega orðin jafn mikilvæg og líffærin.

Lífið

Keppast um hylli kvenna

Það ríkir mikil og hörð samkeppni milli karlkyns leikara sjónvarpsþáttanna True Blood ef marka má frétt Star Magazine. Tímaritið heldur því fram að leikararnir berjist um bestu línurnar og athygli kvenna.

Lífið

Hrósar lífvörðunum

Paris Hilton hrósar lífvörðum sínum í hástert fyrir frammistöðu þeirra þegar þeir yfirbuguðu eltihrelli fyrir utan heimili fyrirsætunnar á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna.

Lífið

Góðar stundir með Pamelu

Kid Rock segir að hjónaband hans og Pamelu Anderson hafi verið stórskemmtilegt. Parið gifti sig árið 2006 en þau skildu aðeins fimm mánuðum síðar. Kid Rock segir að þrátt fyrir einhverja erfiðleika hafi hann aldrei skemmt sér jafn vel í lífinu.

Lífið

Fegurðin í hrörnuninni

Eyðibýli og húsarústir eru mynd- og yrkisefni Nökkva Elíassonar ljósmyndara og Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar ljóðskálds í bókinni Hús eru aldrei ein.

Lífið

Bieber selur ekki blöð

Justin Bieber er ein vinsælasta stjarna poppheimsins um þessar mundir. Vinsældir hans duga þó alls ekki til að selja blöð og tímarit. Bieber prýddi febrúarforsíðu Vanity Fair og hreyfðist það varla úr hillum verslana. Þá olli sala á tölublöðum People og Teen Vogue þar sem hann prýddi forsíðuna miklum vonbrigðum.

Lífið

Efaðist aldrei um Clooney

Einn nánasti vinur bandaríska leikarans George Clooney segist aldrei hafa haft trú á því að samband hans og Elisabettu Canalis myndi endast. Leikarinn sé svo harðákveðinn í því að giftast aldrei aftur né eignast börn. Canalis og Clooney slitu samvistum fyrir skemmstu eftir tveggja ára samband.

Lífið

Óska eftir stuðningi íslensku þjóðarinnar

Þeir Benedikt Sölvi Stefánsson og Grétar Ingi Gunnarsson taka nú þátt í endurhljóðblöndunar (remix) keppni á netinu og keppast þar við að fá tækifæri á að fara til Ibiza og læra að búa til tónlist undir leiðsögn meistara danstónlistar í heiminum í dag.

Lífið

Portman búin að skíra

Natalie Portman og eiginmaður hennar, Benjamin Millepied, hafa fundið nafn á nýfæddan son sinn. Drengurinn, sem fæddist í júní, hefur verið nefndur Alef, en nafnið er fyrsti stafur hebreska stafrófsins.

Lífið

Suri Cruise leikur í mynd

Slúðurmiðlar vestanhafs hafa nú greint frá því að Suri Cruise, fimm ára gömul dóttir þeirra Tom Cruise og Katie Holmes, sé nú að fara að leika í sinni fyrstu bíómynd.

Lífið