Lífið

Ég er kærasta Ivica Kostelic!

Elín Arnarsdóttir byrjaði með króatískum skíðamanni fyrir tveimur árum. Sá heitir Ivica Kostelic og er nokkuð þekktur í heimalandi sínu. Undanfarin tvö ár hafa hinsvegar birst myndir af Margréti Elínu Arnarsdóttur flugfreyju og flugnema í króatískum miðlum. Elínu þykir leiðinlegt að valda hálf nöfnu sinni þessum vandræðum.

Lífið

Lít á þetta sem styrk fyrir mig sem listamann

Það var hinn 18 ára gamli Eyþór Ingi Gunnlaugsson frá Dalvík sem hreppti söngvarastöðuna í Bandinu hans Bubba í gærkvöldi. Í lokaþættinum sigraði hann Arnar Már Friðriksson eftir harða keppni. Eyþór fékk einnig þrjár milljónir króna í verðlaunfé.

Lífið

Busey borgar ekki leigu

Svo gæti farið að leikarinn Gary Busey yrði fljótt heimilislaus. Samkvæmt slúðurkónginum í Hollywood, Perez Hilton, borgar leikarinn ekki leigu og hefur verið hent útaf heimili sínu í Malibu í Kaliforníu.

Lífið

Eiga báðir framtíðina fyrir sér

„Þeir eru meira en efnilegir báðir tveir, þeir eru bara góðir," segir Eiríkur Hauksson yfirrokkari, sem verður gestadómari í úrslitaþætti Bandsins hans Bubba í kvöld. Hann var staddur á æfingu fyrir þáttinn þegar Vísir náði tali af honum, og sagði það hafa komið sér óvart hve góðir þeir Arnar og Eyþór væru. „Ég hef ekki séð neinn af þessum þáttum og renndi því blint í þetta," segir Eiríkur.

Lífið

Íslenskir dópistar reiðir yfir okri

Ábendingunum rignir yfir Okursíðu Dr. Gunna þessa dagana, enda kreppan og gengishrunið á allra vörum. Flestar eru ábendingarnar um nauðsynjavörur og hversdagslega hluti. Hvað flokkast undir nauðsynjavörur er svo misjafnt eftir mönnum.

Lífið

Fyrsta plata Júróbandsins á leiðinni

Fyrsta plata Júróbandsins mun líta dagsins ljós innan skamms. „Við klárum að taka hana um helgina. Hún fer í masteringu á mánudaginn,“ segir Friðrik Ómar Júróvisjónfari.

Lífið

Damien Rice bætist á tónleikadagskrá sumarsins

„Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði Eystri verður haldin helgina 25. - 27. júlí í sumar. Þetta verður í fjórða sinn sem hátíðin verður haldin en undanfarin ár hafa komið þar fram Emilíana Torrini, Belle & Sebastian, Magni, Megas og Senuþjófarnir, Lay Low, Aldís og Jónas Sigurðsson,“ þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar.

Lífið

Barnapía borgarfulltrúa vill launin í Evrum

„Okkur fannst barnapían alveg vera með puttann á púlsinum þarna," segir Oddný Sturludóttir borgarfulltrúi og rithöfundur. Hún og unnusti hennar, Hallgrímur Helgason, voru að ræða kaup og kjör við sextán ára barnapíu sína eitt kvöldið þegar gengi krónunnar bar á góma.

Lífið

Símkerfi 365 rauðglóandi vegna Blaðberans

Viðtökur við endurvinnsluátaki Fréttablaðsins sem hófst í gær hafa verið framan vonum. Í gær hófst dreifing á Blaðaberanum sem er sérstaklega hönnuð taska sem auðveldar söfnun dagblaða og er hentug til að grípa með sér að næsta endurvinnslugámi.

Lífið

Hjónaband Amy í molum

Hjónaband Amy Winehouse og Blake Fielder-Civils hangir á bláþræði eftir að hún hefur ítrekað sleppt heimsóknum til hans í fangelsið. Samkvæmt heimildum Sun tók steininn úr þegar poppdrottningin mætti ekki í heimsókn á 26 ára afmælisdag eiginmannsins.

Lífið

Rambó ræðst á sjálfsala

Sylvester Stallone er alvanur að berja á þungvopnuðum illmennum, en nýjasta fórnarlamb hans átti erfiðara með að svara fyrir sig. Stallone situr nú í kviðdómi, og það var sjálfsali í dómshúsi í Los Angeles sem fékk að finna fyrir reiði Rambó.

Lífið

Patrick Swayze í bráðaaðgerð

Leikarinn Patrick Swayze var lagður í skyndi á sjúkrahús á dögunum. Swayze þjáist af krabbameini í brisi, en samkvæmt yfirlýsingum lækna hans gengur meðferð á því vel. Annað er að heyra á heimildamönnum National Enquirer, sem segja að nýleg skoðun á brisinu hafi leitt í ljós að meinið hefði breiðst út í magann. Því var gerð bráðaaðgerð þar sem hluti magans var fjarlægður.

Lífið

Liz Hurley sögð ólétt

Það er vinsælt sport hjá slúðurpressunni að velta óléttubumbum fyrir sér. Nýjasta viðfangsefnið í þeirri íþrótt er Liz Hurley. Life and Style greinir frá því að á góðgerðarsamkomu í síðustu viku hafi Elton John vinur hennar klappað henni á magann og brosti blíðlega. Hann kyssti hana og faðmaði og óskaði eiginmannini hennar svo til hamingju. Samkvæmt heimildamanni blaðsins var Liz klædd í þykkan Sari til að fela bumbuna, og snerti ekki áfengi.

Lífið

Dauðsfall í Sex and the City

Ein persónanna í Sex and the City deyr í væntanlegri kvikmyndaútgáfu þáttanna. Leikkonan Cynthia Nixon missti þetta út úr sér í spjallþætti á dögunum, en þverneitaði að upplýsa hver það væri.

Lífið

Þekkt nöfn á FM-hátíð

Gus Gus, Sprengjuhöllin, Bloodgroup, Merzedes Club, Ný dönsk, Haffi Haff og Páll Óskar koma fram á Hlustendaverðlaunum FM 957 sem verða haldin í tíunda sinn í Háskólabíói 3. maí. Einnig koma óvæntir tónleikagestir fram á hátíðinni.

Lífið

Eddie Murphy með nýja í takinu

Á einungis tveimur árum hefur Eddie Murphy tekist að barna eina konu og giftast og skilja við aðra. Nú er hann kominn með enn eina dömu upp á arminn. Nýja ástin í lífi stórleikarans heitir Lara LaRue og er 25 ára gömul.

Lífið

Mannaveiðar enn vinsælasta sjónvarpsefnið

Um 30,5% Íslendinga á aldrinum 12-49 ára, horfðu á Mannaveiðar í Ríkissjónvarpinu í síðustu viku. Þátturinn var lang vinsælasta sjónvarpsefnið þá vikuna. Litlu færri, eða 30,1%, horfðu á Spaugstofuna.

Lífið

Dr Spock hefja upptökur á næstu plötu

Sjóararokkararnir í Dr Spock eru að tína saman hljóðfærin og ætla í stúdíó í kvöld að taka upp næstu plöta sína. Og það með hraði. Óttar Proppé, forsprakki sveitarinnar, segir upptökurnar standa fram á næstu helgi, en skífan mun líta dagsins ljós í sumar. „Það er engin ástæða til að hanga yfir þessu lengur en þörf er á."

Lífið

Bubbi spáir keppanda í bandinu landsfrægð

Úrslitin ráðast í Bandinu hans Bubba annað kvöld, og er óhætt að segja að spennan sé farin að magnast. Þeir Arnar Már og Eyþór keppa um plássið í bandinu og þrjár milljónir í verðlaunafé, en ef marka má Bubba sjálfan þarf sá sem tapar ekki að örvænta.

Lífið

Tom og Katie slást um Suri

Katie Holmes er að brotna undan álaginu sem fylgir hjónabandi hennar og Toms Cruise. Hún hefur því ákveðið flytja til New York með Suri litlu, en Tom er víst ekki allskostar ánægður með það.

Lífið

Fréttablaðið dreifir blaðberum sem safna blöðum

Blaðberar standa ekki einungis í því að dreifa blöðum því nú er þeim ætlað að safna þeim saman líka. Fréttablaðið hóf í dag að afhenda fyrstu eintökin af endurvinnslutösku sem kallast Blaðberinn. Töskunni er ætlað að safna gömlum dagblöðum og auðvelda þannig fólki að fara með þau í endurvinnsluna. 30.000 töskum verður dreift um helgina.

Lífið

Fáir vilja vera vinir Paris Hilton

Leitin að nýjasta vini Parisar Hilton gengur illa. Á dögunum var auglýst eftir „heitum tæfum og geggjuðum gaurum“ til að taka þátt í raunveruleikaþætti þar sem leitað er að nýjum vini fyrir hótelerfingjann.

Lífið

Bandið hans Bubba tekur flugið

Samkvæmt nýjustu könnun Capacent um sjónvarpsáhorf kemur fram að undanúrslitaþátturinn í Bandinu hans Bubba er með 21,7% uppsafnað meðaláhorf í aldurshópnum 18-49 ára. Bæði frum- og endursýningar eru teknar með í þeim útreikningum.

Lífið

Morðingjarnir halda útgáfutónleika

„Áfram Ísland! er umtalaðasta platan um þessar mundir. Hún hefur fengið glimrandi fína dóma og umsagnir í ýmsum fjölmiðlum, t.a.m. í Mónitor, Stúdentablaðinu, Grapevine og DV. Gagnrýnendur keppast við að lofa Áfram Ísland! og segja hana með flottari rokkplötum í langan tíma og gefa henni hér um bil fullt hús stiga,“ þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá drengjunum.

Lífið

Minni nekt, meiri fyndni

Langþráð myndband við Eurovisjónframlag Íslands, This is my life, leit dagsins ljós á heimasíðu símafyrirtækisins Nova nú í hádeginu. Óhætt er að segja að Júróbandið rói á allt önnur mið en fyrrverandi keppinautar þeirra í Merzedes Club. Þau eru í það minnsta öllu meira klædd, hnykla vöðvana minna.

Lífið