Lífið
Frönsk menning hyllt Í mars ár hvert er þess minnst víða um heim hversu vítt franska málsvæðið er í raun og hvaða gildi standa undir franskættaðri menningu um heim allan. Hér á landi hafa franska sendiráðið og Alliance Francaise um nokkurra ára skeið staðið fyrir margs konar samkomuhaldi í tengslum við frönsku vikuna, rétt eins og tíðkast í sjötíu löndum, en 200 milljónir manna eiga frönsku að móðurmáli og 870 milljónir eru sameinaðar í samtökum frönskumælandi landa. Lífið 20.3.2010 04:30
Ný mynd um Jacko Ný heimildarmynd um popparann Michael Jackson verður frumsýnd í næsta mánuði. Rithöfundurinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Ian Halperin ákvað að breyta bók sinni, Unmasked: The Final Years of Michael Jackson, í 88 mínútna heimildarmynd og nefnist hún Gone Too Soon. Lífið 20.3.2010 03:15
Suðrænn blær í mýrinni Hamskipti Norræna hússins verða 25. mars, á fimmtudaginn í næstu viku. Þann dag verður það kallað Suðræna húsið, enda er húsið allt lagt undir dagskrá sem tengd er Hátíð franskrar tungu. Um morguninn er boðið upp á sögustund frá Senegal fyrir 6 til 8 ára krakka milli 9 og 10. Hin kunna kvikmynd Rauða blaðran frá 1956, sem mörgum er kunn frá útgáfu samnefndrar bókar sem hér kom út 1964, verður sýnd kl. 10.30 og er hún einkum ætluð 8-11 ára börnum. Lífið 20.3.2010 03:00
Krafðist of hárra launa Paula Abdul, fyrrverandi dómari í American Idol, verður ekki dómari í hæfileikaþættinum Star Search eins og hún hafði vonast eftir. Abdul og framleiðandinn ABC komust ekki að samkomulagi um laun og því fór sem fór. Lífið 20.3.2010 03:00
Sanitas er Icesave-platan í ár Ólafur Josephsson tónlistarmaður hefur sent frá sér sjöttu breiðskífuna undir nafninu Stafrænn Hákon. Fyrstu plöturnar voru einfalt ósungið heimabrugg en síðustu ár hefur Stafrænn Hákon fært sig upp á skaftið og breyst í hljómsveit með þungan og poppaðan hljóðheim. Lífið 20.3.2010 03:00
Andspyrna á Laugardalsvelli „Við fengum ósk um vináttulandsleik frá Hollendingum og viljum gjarnan að hann fari fram á Laugardalsvellinum. Enda kominn tími til að karlalandslið fari nú að vinna eitthvað á þessum velli," segir Friðgeir Torfi Ásgeirsson, forseti Andspyrnusambands Íslands. Lífið 20.3.2010 03:00
Undirbúa nýja plötu Hljómsveitin Green Day er þegar byrjuð að vinna í næstu plötu þrátt fyrir að innan við ár sé liðið síðan sú síðasta kom út. Nýju lögin hafa orðið til á tónleikaferð sveitarinnar um Evrópu og vill forsprakkinn, Billie-Joe Armstrong, að platan verði tilbúin á skemmri tíma en sú síðasta. Sú plata, 21st Century Breakdown, kom út í fyrra, fimm árum eftir að American Idiot leit dagsins ljós. Lífið 20.3.2010 03:00
Hæverskt nýbylgjurokk Hljómsveitin The Wintergreens spilar í Batteríinu í kvöld. Þetta er kvartett frá Leith í Skotlandi og í bandinu er Íslendingur búsettur þar, Gunnar Thor Ófeigsson. Lífið 20.3.2010 02:45
Egill með Caput í Gerðubergi Á morgun kl. 14.00 verða tónleikar í tónleikaröð Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs; Tóney í Gerðubergi. Þar kemur Egill Ólafsson fram ásamt Caput-hópnum og flytur Ástarsögu úr fjöllunum eftir Guðrúnu Helgadóttur. Guðni Franzson tónlistarmaður hefur samið sönglög við texta Péturs Eggerz sem tengjast þessari fallegu sögu. Aðgangur á tónleikana er ókeypis. Lífið 20.3.2010 02:00
Reese Witherspoone í hlutverk sveitakonu Stórleikkonan Reese Witherspoon er orðuð við aðalhlutverkið í nýrri mynd, The Pioneer Woman. Lífið 19.3.2010 16:30
Páll Óskar og Hjaltalín slógu í gegn - myndir Páll Óskar Hjálmtýsson og Hjaltalín stóðu fyrir mögnuðum tónleikum á Nasa í samstarfi við Bacardi Breezer í gærkvöld. Áhorfendur skemmtu sér konunglega og klöppuðu listamennina þrívegis upp. Lífið 19.3.2010 14:30
Píslaganga Michaels á Hvíta tjaldið Verið er að vinna að nýrri mynd um síðustu daga af ævi poppgoðsins Michaels Jackson, segir tímaritið Variety. Gert er ráð fyrir að myndin verði heimsfrumsýnd þann 25. júní næstkomandi. Þá verður ár liðið frá því að Jackson lést. Lífið 19.3.2010 14:00
Humarsamloka á 600 vini á Facebook Facebook samskiptasíðan sem hefur tröllriðið Íslensku netsamfélagi tekur á sig ýmsar myndir. Meðal þeirra sem er með aðdáendasíðu er Humarsamlokan á Pósthúsinu vínbar - bistró og eru yfir 600 aðdáendur af henni á síðunni. Lífið 19.3.2010 12:53
Fyrrum ástmaður vill 3,8 milljarða frá Lady Gaga Fyrrverandi ástmaður söngkonunnar Lady Gaga hefur stefnt henni og krefst 30 milljóna dollara af henni. Ástæðan er sú að ástmaðurinn, seg heitir Rob Fusari, telur sig hafa verið einn af höfundum að baki karakternum Lady Gaga. Lífið 19.3.2010 12:00
Peter lætur fjarlægja nafn sinnar fyrrverandi Peter Andre, sem einusinni var þokkalega frægur söngvari en er nú þekktari sem fyrrverandi eiginmaður brjóstabombunnar Katie Price er farinn í meðferð. Ekki er þó um "hefðbundna" meðferð að ræða heldur gengst hann nú undir leysigeisla-aðgerðir til þess að fjarlægja nafn sinnar fyrrverandi af fingri sínum. Lífið 19.3.2010 10:54
Iceland fyrirsætan er ástfangin af einkaþjálfaranum Fyrirsætan Kerry Katona er ástfangin af einkaþjálfaranum sínum, Kevin Green. Katona er best þekkt fyrir að vera fyrrverandi andlit Iceland vörukeðjunnar og óhóflegt líferni sitt. Lífið 19.3.2010 10:00
Jesse James biðst vægðar Jesse James, hinn ótrúi eiginmaður Söndru Bullock hefur beðið fjölskyldu sína fyrigefningar fyrir framhjáhald sitt. Sandra er flutt út eftir að kom í ljós að James hafi haldið við húðflúraða módelið Michelle "Bombshell" McGee um ellefu mánaða skeið. Framhjáhaldið stóð meðal annars yfir á meðan Sandra var í tökum á myndinni The Blindside sem hún fékk síðan Óskarinn fyrir á dögunum. Lífið 19.3.2010 09:56
Polanski reynir að losna undan nauðgunardómi Lögfræðingar leikstjórans Romans Polanski reyna enn að losa hann undan dómi sem hann fékk á sig fyrir nauðgun á áttunda áratugnum í Bandaríkjunum en hann hefur verið útlægur þaðan frá þeim tíma. Lífið 19.3.2010 09:10
Spaugstofan er beittari Nanna Guðmundsdóttir er að skrifa BA-ritgerð í þjóðfræði um Spaugstofuna og nálgun hennar á kreppuna. Hún segir þáttinn hafa orðið grófari og fengið meiri brodd eftir að fjármálakerfið fór á hliðina. Lífið 19.3.2010 06:00
Mikil læti og gauragangur Söngleikurinn Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar verður frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld. Lífið 19.3.2010 06:00
Forsetafrúin krefst afsökunarbeiðni frá Telegraph „Dorrit er mjög sár yfir þessum alranga fréttaflutningi sem birtist í þessu breska blaði og í Fréttablaðinu. Í honum felst aðför að mannorði hennar," segir Örnólfur Thorsson forsetaritari. Lífið 19.3.2010 06:00
Grímur Atlason flytur á mölina „Mig langar bara að njóta lífsins með mínu fólki," segir Grímur Atlason, sveitarstjóri í Dalabyggð. Hann hefur ákveðið að flytja til Reykjavíkur, þar sem fjölskylda hans býr, þegar ráðningartíma hans lýkur eftir sveitarstjórnarkosningar í maí. Grímur var ráðinn bæjarstjóri í Bolungarvík árið 2006 en var sagt upp störfum þegar meirihlutaskipti urðu í bænum. Hann var ráðinn sveitarstjóri Í Dalabyggð um mitt ár 2008. Lífið 19.3.2010 05:45
Tónleikar í minningu Rutar Í dag kl. 17 munu Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir messósópransöngkona og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari flytja nokkrar af fegurstu perlum spænskrar ljóðatónlistar á Tíbrártónleikum í Salnum. Lífið 19.3.2010 05:00
Fyrsta plata Ladda í 20 ár Tónlistarferill Ladda hefur setið á hakanum lengi, en nú verður breyting þar á: Ný plata með honum, sú fyrsta síðan Of feit fyrir mig kom út árið 1990, er væntanleg í júní. Lífið 19.3.2010 04:30
Carrey borðaði ekki neitt Jim Carrey var úrvinda eftir að hafa þurft að léttast um mörg kíló fyrir leik sinn í myndinni I Love You Phillip Morris. Í einu atriði myndarinnar liggur hann í fangelsisrúmi þar sem greinilega sést í rifbeinin á honum. Lífið 19.3.2010 04:00
Tarantino vill fá GaGa Söngkonan vinsæla Lady GaGa mun hugsanlega leika fyrir Quentin Tarantino í einhverjum af næstu myndum hans. GaGa og Tarantino ræddu saman eftir að leikstjórinn lánaði henni Pussy Wagon-bílinn, sem var notaður í myndinni Kill Bill, vegna myndbandsins við lagið Telephone. Lífið 19.3.2010 04:00
Ástkonur Tigers geta ekki hætt Þótt Tiger Woods ætli að keppa á Masters-mótinu í apríl þá heldur farsinn í kringum einkalíf hans áfram. Nú hefur klámmyndaleikkonan Joslyn James opnað heila heimasíðu sem er tileinkuð einkar klámfengnum sms-skilaboðum til hennar á þeim tíma sem þau eiga að hafa verið að hittast. Þótt Tiger og Elin séu nú að vinna í sínu hjónabandi þá virðast hjákonurnar njóta sviðsljóssins sem þetta kynlífshneyksli hefur alið af sér. Lífið 19.3.2010 03:45
Tangómaraþon um helgina Kunnáttumenn í tangódansi mæta um helgina áskorun: Tangófélagið efnir til veglegs tangómaraþons til styrktar átaki Krabbameinsfélags Íslands, Karlmenn og krabbamein: Mottumars í Iðnó og Ráðhúsi Reykjavíkur. Koma hingað plötusnúðar frá Svíþjóð, Danmörku og Íslandi og er því ljóst að tónlistin ætti að vera bæði fjölbreytt og skemmtileg. Lífið 19.3.2010 03:00
Sonur Megasar útsetur tónlist föður síns „Ég held að þetta hafi verið uppástunga hjá pabba," segir tónlistarmaðurinn Þórður Magnússon, sonur Megasar, um samstarf sitt með föður sínum. Lífið 19.3.2010 02:00
Hillir undir Beastie Boys Ný Beastie Boys plata, Hot Sauce Committee Part I, var tilbúin í fyrra. Áður en henni var komið út greindist einn strákanna, Adam Yauch, með krabbamein svo plötunni var slegið á frest. Læknismeðferð hefur gengið vel og er nú talað um að platan líti dagsins ljós í september með tilheyrandi tónleikaferðalagi. Hljómsveitin ætlar að nota tímann til að eiga lítillega við plötuna. Lífið 19.3.2010 02:00