Lífið
Erpur heldur keppni - Önnur leiðin til Færeyja í vinning Rapparinn Erpur Eyvindarson, BlazRoca, hefur blásið til keppni í samvinnu við Prikið og fleiri aðila þar sem hann hvetur tónlistarmenn til að endurhljóðblanda lög sín á sem flottastan máta. Með honum í dómnefnd eru President Bongo úr Gusgus og Óttarr Proppé borgarfulltrúi. Lífið 16.8.2011 22:00
Nilli fær að kenna á sviknum loforðum Þórunn Antonía og Björn Bragi virðast ætla að svíkja öll loforð sem þau gefa og greyið Nilli fær að gjalda fyrir það í Týndu kynslóðinni. Þátturinn verður í opinni dagskrá á Stöð 2 á föstudagskvöldum og hefur göngu sína 19. ágúst næstkomandi. Lífið 16.8.2011 21:06
Tökulið Game of Thrones væntanlegt hingað í vetur Tökur á einum umtalaðasta þætti Bandaríkjanna um þessar mundir, Game of Thrones, munu fara fram að hluta til hér á Íslandi í lok þessa árs. Þetta kom fram í máli eins aðalleikara þáttanna, Kit Harrington. Harrington sat fyrir svörum á myndasöguhátíðinni ComicCon í lok júlí og upplýsti þar að hann fengi að kynnast alvörukulda á Íslandi. „Það var kalt síðast en nú förum við til Íslands. Og það verður sko kalt,“ hefur vefsíðan Access Hollywood eftir honum. Lífið 16.8.2011 17:00
Spurlock sækir Ísland heim Einn vinsælasti heimildarmyndagerðarmaður heims um þessar mundir, Morgan Spurlock, sækir Ísland heim í næstu viku. Hann hyggst sýna nýjustu kvikmynd sína, The Greatest Movie Ever Sold, í Háskólabíói miðvikudaginn 24. ágúst og sitja svo fyrir svörum. Myndin fjallar um svokallaðar vöruinnsetningar í bandarískum afþreyingariðnaði en áhorfendur fá að fylgjast með því hvernig leikstjóranum tekst að fjármagna áðurnefnda heimildarmynd með slíkum innsetningum. Lífið 16.8.2011 16:00
Ánægð með brjóstin sín (auðvitað) Leikkonan Salma Hayek, 44 ára, prýðir forsíðu Allure tímaritsins í YSL kjól en hana má skoða í meðfylgjandi myndasafni. Þar svarar Salma spurð út í líkamslögun hennar: Brjóstin á mér, þau eru alls ekki slæm skal ég segja þér. Ég get ekki kvartað yfir þeim. En þegar ég byrjaði í bransanum í Hollywood var mér eingöngu boðið að leika latneskar fáklæddar konur sem sögðu fátt en staðreyndin er sú að ég var aldrei þannig þegar ég bjó í Mexíkó. Lífið 16.8.2011 15:00
Svona lítur þú þá út? Meðfylgjandi má sjá myndir af söngkonunni Rihönnu án andlitsfarða og án hárkollu en hún eyðir 1.500.000.- krónum á viku í hárkollur og greiðslur. Eins og sjá má á myndunum er Rihanna gullfalleg með hárið tekið í tagl, án appelsínugula hársins sem hún hefur sést með undanfarið. Lífið 16.8.2011 14:00
Læti á lokasprettinum í Reykjavík Runway „Hér er allt á fullu og mikill hamagangur að ganga frá síðustu smáatriðum fyrir úrslitin,“ segir Ingibjörg Gréta Gísladóttir, framkvæmdastjóri keppninnar Reykjavik Runway, en úrslitakvöldið er á fimmtudaginn. Lífið 16.8.2011 13:00
Jólin komu snemma í ár með sigri KR „Við vorum að grínast með að salan þetta eina kvöld hefði verið meiri en allan júlímánuð,“ segir Hafsteinn Egilsson, vert á Rauða ljóninu á Eiðistorgi. Lífið 16.8.2011 12:00
Klámstjarna komin með hárband Hárbönd eru vinsæl hjá stjörnunum í Hollywood. Ashlee Simpson, Paris Hilton, Olsen tvíburarnir, Nicole Richie og fleiri stjörnur sjást oftar en ekki með hárbönd. Nú síðast í fyrradag sást bandaríska klámstjarnan Jenna Jameson með nokkur mismunandi hárbönd á höfðinu í sundlaug á Miami ásamt unnusta sínum, Tito Ortiz. Skoða má klámstjörnuna og fleiri Hollywoodstjörnur með hárbönd. Lífið 16.8.2011 10:30
Madonna kelar við unglambið Madonna, sem er 53 ára í dag, var mynduð í nágrenni við New York kela við 24 ára franska elskhuga sinn, dansarann Brahim Zaibat, á meðan börnin hennar, David og Mercy, léku sér í sandinum. Móðir Zaibat, sem Madonna kynntist í september síðastliðinum þar sem hann var einn af hip-hop dönsurum sem skemmtu þegar fatalína Madonnu var kynnt í Macy´s verslun, er 8 árum yngri en Madonna. Lífið 16.8.2011 09:30
Rifja upp 16 ára ástarfund Það var í Þjóðleikhúskjallaranum. Þá sé ég þessa fallegu konu koma inn í salinn..." segir Baldvin Örn Berndsen í meðfylgjandi myndskeiði en hann kynntist elskunni sinni, Berglindi Helgadóttur, fyrir 16 árum. Í dag eru þau hamingjusamlega gift og eiga saman þrjú börn. Sögu þeirra má finna á Ástarkorti TM sem er einstakt kort af Íslandi því þar getur fólk getur séð hvar Facebookvinir þeirra sem og aðrir, sem hafa sett merkt inn skemmtilegar minningar, varð ástfangið. Margar skemmtilegar ástarsögur eru nú þegar komnar inn á ástarkortið. Ef fólk á góða ástarsögu getur það merkt hana inn á kortið nákvæmlega þar sem ástin kviknaði. Sjá nánar astarkort.tm.is. Föstudaginn 19. ágúst verður valin besta sagan og parið sem setti söguna inn fær í verðlaun rómantíska helgarferð innanlands með öllu tilheyrandi. Einnig verða önnur minni verðlaun í boði næstu vikurnar. Lífið 16.8.2011 07:58
Einstök stund fyrir okkur Ólafur Björn Loftsson tryggði sér keppnisrétt á Wyndham-meistaramótinu í golfi um helgina. Foreldrar hans eru sömuleiðis miklir golfarar og íhuga að fljúga út til að styðja við bakið á stráknum. Lífið 16.8.2011 07:00
Yorke veitti innblástur Bassaleikarinn Flea úr Red Hot Chili Peppers fer fögrum orðum um Thom Yorke úr Radiohead. Þeir unnu saman í ofurgrúppunni Atoms For Peace með Patti Smith og Damon Albarn og segir Flea að Yorke hafi kennt honum svo margt. „Hann er ótrúlega góður tónlistarmaður og falleg manneskja. Hann er svo hreinn listamaður. Það hjálpar mikið að vera í kringum manneskju sem sendir frá sér svo jákvæða orku,“ segir Flea. Lífið 15.8.2011 16:00
Var einhver að tala um sléttan maga? David Beckham, 36 ára, svamlaði á brimbretti með syni sínum Brooklyn á föstudaginn var í Los Angeles. Daginn eftir voru bræður Brooklyn, Romeo og Cruz, með í för. Eins og sjá má á myndunum er kappinn í hörkuformi. Lífið 15.8.2011 14:41
Myndir þú bera þig fyrir góðan málstað? Meðfylgjandi má sjá myndir af þekktum konum, og manni, í Hollywood sem hafa berað sig fyrir góðan málstað. Flest hafa þau pósað léttklædd fyrir dýraverndunarsamtökin Peta sem berjast fyrir réttri meðferð á dýrum. Í myndasafni má sjá Pamelu Anderson, Brook Hogan, Ditu Von Teese, Audrinu Patridge, Holly Madison, Khloe Kardashian, Jennu Jameson, Steve-O og Evu Mendes hátta sig til að vekja athygli á málstaðnum. Lífið 15.8.2011 13:17
Fimm dagar í brúðkaupið Fjölmiðlar vestan hafs standa á öndinni yfir væntanlegu brúðkaupi sjónvarpsstjörnunnar Kim Kardashian og Kris Humphries, en nú eru aðeins fimm dagar þar til þau ganga í heilagt hjónaband og það í beinni útsendingu. Kim, sem ætlar að gifta sig í Veru Wang kjól, æfir líkamsrækt oftar en einu sinni á dag á milli þess sem hún pósar á rauða dreglinum eins og sjá má í myndasafni. Lífið 15.8.2011 12:48
Smellur Larsens í íslenskri mynd "Lagið smellpassar inn í myndina,“ segir Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, leikstjóri kvikmyndarinnar Á annan veg, sem verður frumsýnd 2. september. Lífið 15.8.2011 12:30
Eignaðist aðra stúlku Jessica Alba og eiginmaður hennar Cash Warren eignuðust stúlku á laugardaginn. Jessica skrifaði á Facebook síðuna sína eftirfarandi: Stóra systir, Honor, gæti ekki verið spenntari yfir nýja fjölskyldumeðlimnum. Takk fyrir allan stuðninginn á meðgöngunni. Hann er gríðarlega milvægur fyrir mig. Jessica og Cash kynntust við tökur á kvikmyndinni Fantastic Four árið 2004. Lífið 15.8.2011 11:32
45 ára með rennisléttan maga Leikkonan Halle Berry, hélt upp á 45 ára afmælið sitt með dóttur sinni, Nöhlu, franska unnustanum Olivier Martinez og vinum á Malibuströnd. Eins og sjá má í myndasafni er Halle í dúndur formi. Lífið 15.8.2011 11:07
Leikur Austin Powers á ný Mike Myers hefur gengið frá samningi um að hann leiki í fjórðu myndinni um Austin Powers. Níu ár eru liðin síðan þriðja myndin, Goldmember, var frumsýnd og síðan þá hefur ferill leikarans verið á nokkuð hraðri niðurleið. Lífið 15.8.2011 11:00
Mikil samkeppni hjá sportpöbbunum „Fyrsta helgin gekk bara stórvel. Það var ótrúlega jákvæð stemning yfir öllu,“ segir Davíð Kristinsson, rekstrarstjóri á Glaumbar við Tryggagötu. Lífið 15.8.2011 10:00
Jolie hundelt með börnin Leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, var svartklædd með sólgleraugu þegar hún yfirgaf leikhús í London í gærdag eftir að hún sá Shrek söngleik ásamt börnum sínum Maddox, 10, Pax, 7, Zahara, 6, og Shiloh, 5. Sama hvar ég er í heiminum á ég það til að óska mér að ég væri stödd einhversstaðar annarsstaðar en ég er, lét leikkonan hafa eftir sér. Lífið 15.8.2011 09:40
Sendir frá sér nýtt lag í gamla stílnum „Þetta er svona sveitastuðlag. Það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar maður heyrir það er hlöðuball,“ segir Sólmundur Hólm, grínisti og verðandi poppari. Lífið 15.8.2011 09:30
Glaumbar opnaði með stæl Glaumbar í Tryggvagötu var opnaður að nýju á laugardaginn þegar keppni í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hófst. Gestir virtust kunna vel að meta að staðurinn hefði verið færður aftur í sitt gamla horf. Lífið 15.8.2011 09:00
Fey eignaðist aðra dóttur Gamanleikkonan Tina Fey eignaðist dóttur á miðvikudaginn í síðustu viku. Stúlkan hefur fengið nafnið Penelope Athena. Fyrir eiga Fey og eiginmaðurinn hennar, tónskáldið Jeff Richmond, fimm ára dóttur sem heitir Alice. Lífið 15.8.2011 06:00
Cheryl Cole fær hlutverk í Glee Simon Cowell var sannfærður um að Cheryl Cole hefði ekki það sem til þarf til að heilla bandaríska sjónvarpsáhorfendur en hún virðist harðákveðin í að sanna að hann hafi rangt fyrir sér. Nú greina breskir fjölmiðlar frá því að Cole hafi landað gestahlutverki í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Glee. Þar með fetar hún í fótspor ekki ómerkari kvenna en Gwyneth Paltrow og Britney Spears. Lífið 15.8.2011 01:45
Matt Damon næsti forseti Bandaríkjanna? Hollywoodleikarinn Matt Damon er nefndur til sögunnar sem hugsanlegur forsetaframbjóðandi frjálslyndra vestanhafs, sem mótvægi við Barack Obama. Lífið 14.8.2011 10:09
Timberlake leikstýrir Söngvarinn og leikarinn Justin Timberlake er stöðugt að bæta í ferilskrána en nú sest hann í leikstjórastólinn. Timberlake leikstýrði nýju myndbandi hipphoppgrúppunnar Freesol. Ekki bara sat hann fyrir aftan myndavélina heldur stökk hann einnig fram fyrir hana og í myndbandinu má sjá Timberlake dansa og syngja með sveitinni í viðlaginu. Lífið 13.8.2011 18:00
Glaumbar opnar aftur Gamli góði Glaumbar í Tryggvagötunni opnaði á hádegi í dag með látum þegar enski boltinn byrjaði að rúlla aftur. Glaumbar var lengi vel einn vinsælasti bar landsins og „nú er her fagmanna í skemmtanahaldi bæjarins mættur til leiks til að tryggja að hann verði það aftur,“ segir í tilkynningu. Lífið 13.8.2011 17:26
Stuð hjá Pétri Ben og Eberg Pétur Ben og Eberg sendu frá sér plötuna Numbers Game á dögunum. Þeir fögnuðu útgáfunni með tónleikum á Sódómu á fimmtudagskvöld. Lífið 13.8.2011 17:00