Lífið
Lopez ástfangin í Rio Jennifer Lopez, 42 ára, og unnusti hennar, Casper Smart, létu fara vel um sig á hótelherbergissvölum í Rio de Janeiro í Brasilíu í gær. Þau vinkuðu aðdáaendum söngkonunnar og hún sýndi hvað hún var þreytt eftir langt flug. Jennifer setti eftirfarandi skilaboð á Twitter síðuna sína: „Var að lenda í Rio!!! Halló allir!! Þetta er fyrsta skiptið sem ég kem á karnivalið!!!! Ég elska Brasilíu.“ Þá má einnig sjá myndir af Jennifer á flugvellinum stuttu eftir að hún lenti í Brasílíu. Lífið 20.2.2012 09:15
Kim kaupir rúmdýnu Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian verslaði eitt stykki rúmdýnu í Beverly Hills í gær. Eins og sjá má prófaði Kim dýnur ásamt vinkonu... Lífið 20.2.2012 08:15
Edduverðlaunin í myndum Það fór sennilegast ekki framhjá neinum að Edduverðlaunahátíðin fór fram í Gamla bíó í gær. Rúnar Rúnarsson, leikstjóri og handritshöfundur, kom sá og sigraði ásamt félögum sínum með myndina Eldfjall. Hún fékk alls fimm verðlaun. Fjöldi prúðbúinna gesta var viðstaddur hátíðina. Má þar nefna Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands, Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, Loga Bergmann Eiðsson, sem var kynnir hátíðarinnar, og marga fleiri. Daníel Rúnarsson ljósmyndari var á ferðinni og tók myndir af því sem fyrir augu bar. Lífið 19.2.2012 15:53
Myndir frá minningarathöfn Whitney Houston Meðfylgjandi myndir voru teknar í minningarathöfn Whitney Houston í gær. Maðurinn sem hún var gift í 15 ár, Bobby Brown, strunsaði út stuttu eftir að athöfnin hófst því fylgdarliði hans bauðst ekki að sitja fremst í kirkjunni. Síðar sendi Bobby frá sér fréttatilkynningu um hvað hann var gríðarlega ósáttur hvernig komið var fram við fjölskyldu hans en kona hans brást í grát fyrir utan kirkjuna eins og sjá má á myndunum. Kærasti Whitney, Ray J, teygði sig hágrátandi eftir líkkistunni þegar hún var borin út kirkjugólfið og snerti hana. Þá hélt Kevin Costner aftur tárunum í minningarræðu sinni um samband hans og Whitney en þau urðu góðir vinir eftir að þau léku saman í kvikmyndinni Bodygard. Aretha Franklin meldaði sig veika en til stóð að hún myndi syngja við athöfnina. Alicia Keys grét á meðan hún söng. Þá söng Stevie Wonder og minntist söngkonunnar með fallegum orðum. Lífið 19.2.2012 10:45
Veitir stjörnunni Anthony Hopkins tónlistarráðgjöf „Hann er ótrúlega ljúfur maður og eins kurteis og almennilegur í framkomu og hægt er að vera,“ segir Atli Örvarsson, tónskáld í Hollywood. Lífið 18.2.2012 17:30
Tók 11 daga að ná frönskunum góðum „Við erum að taka þennan mat og gera hann með hjartanu,“ segir Sigurður Karl Guðgeirsson, einn af eigendum veitingastaðarins Roadhouse, sem opnar við Snorrabraut í dag. Lífið 18.2.2012 16:00
Sprauta blóði í hrukkurnar Nýjasta æðið í lýtalækningum er að sprauta blóði úr handleggjum í andlitshrukkur. Aðgerðin kallast því kaldhæðna nafni, vampírumeðferðin og hefur verið vinsæl meðal fræga fólksins í Hollywood um hríð. Svo mikið að Fox News fjallaði um málið og blaðamaður frá norska blaðinu VG fann sig knúinn til að prufa meðferðina. Blóðið á að slétta úr hrukkum en meðferðin er ennþá það ný af nálinni að ekki er búið að sannreyna að hún virki. Aðdáendur meðferðarinnar telja hana hins vegar lífrænni og umhverfisvænni en hina algengu Botox hrukkumeðferð. Lífið 18.2.2012 15:30
M að missa sjónina Leikkonan Judi Dench, sem leikur M í myndunum um James Bond, gæti misst sjónina áður en langt um líður. Hún sagði breska blaðinu Daily Mirror frá því að hún hefði greinst með augnsjúkdóm og hún væri nú þegar misst það mikla sjón að hún gæti ekki lengur lesið handrit, né heldur greint í sundur fólk sem hún snæddi hádegisverðinn í félagsskap við. Lífið 18.2.2012 14:30
Synirnir eru bestu vinir mínir Umfjöllunarefni vinsælasta lags sumarsins 2010, Mama Angola, er Ana Maria Unnsteinsson, móðir Unnsteins og Loga í hljómsveitinni Retro Stefson. Hún sagði Kjartani Guðmundssyni frá borgarastyrjöldinni í heimalandinu og árunum sautján á Íslandi. Lífið 18.2.2012 14:30
Pönkast í bransanum á Eddunni „Þetta á eftir að vera skemmtilegt,“ segir sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann Eiðsson. Lífið 18.2.2012 13:00
Hlustendur afhentu sjálfir tónlistarverðlaun X-ins Söngvarinn Mugison og hljómsveitin Of Monsters and Men fóru heim með meira en helming verðlauna kvöldsins þegar Tónlistarverðlaun X-ins 977 voru veitt á fimmtudagskvöldið var. Mugison hlaut þrenn verðlaun og Of Monsters and Men tvenn. Gunnar Sigurðsson, eða Gunni samloka, var kynnir hátíðarinnar sem fór fram á skemmtistaðnum Nasa. Lífið 18.2.2012 11:30
Brjáluð út í pabba Adele ætlar að hrækja í andlitið á föður sínum hitti hún hann einhvern tímann aftur. Lífið 18.2.2012 10:30
Alvöru karnival stemning á Faktorý „Okkur langar til að kynna fólk fyrir þessari fallegu menningu og gefa smá sól í líkamann í öllu þessu myrkri hérna,“ segir Kristín Bergsdóttir, sem stendur fyrir karnival hátíð á skemmtistaðnum Faktorý á laugardagskvöld, ásamt eiginmanni sínum Samúel Jóni Sæmundssyni. Lífið 18.2.2012 10:00
Bieber barnagæla Kærustuparið Justin Bieber, 17 ára, og Selena Gomez, 19 ára, eyddi gærdeginum á ströndinni í Malibu í Kaliforníu ásamt... Lífið 18.2.2012 08:15
Rihanna tekur lagið með kvalara sínum Talið er að söngvarinn Chris Brown, fyrrverandi kærasti Rihönnu, komi fram í myndbandi hennar á næstunni. Það væri eðlilegt ef Brown hefði ekki gengið illa í skrokk á henni fyrir þremur árum. Lífið 18.2.2012 07:45
Vala Grand ræðir um uppvaxtarár sín Vala Grand sat fyrir svörum úr sjónvarpsþættinum Týnda kynslóðin í kvöld. Hún ræddi um lífið í Reykjanesbæ og uppvaxtarár sín þar. Lífið 17.2.2012 21:09
Vodafone drengir hitta heimsfrægar íþróttastjörnur Meðfylgjandi má sjá stjörnur á borð við Lennox Lewis, Marcel Desailly og Patrick Vieira... Þetta er í þriðja skipti sem Ísland sendir lið í Vodafone Cup. Fyrst var fyrirtækjakeppni, í fyrra var haldið mót fyrir almenning í Fífunni en í ár voru það starfsmenn Vodafone sem fóru. Strákarnir unnu fyrsta leikinn sinn - á móti Spáni, þá gerðu þeir jafntefli við Breta en töpuðu fyrir Grikkjum, Tyrkjum og Möltu. Lífið 17.2.2012 18:00
Eykur jafnvægið Með því að iðka tai chi tvisvar í viku getur fólk með Parkinsonsjúkdóminn átt auðveldara með að halda jafnvægi. Iðkun þessarar kínversku bardagalistar virðist auka stöðugleika í ökklunum á fólki með sjúkdóminn. Það á líka auðveldara með að hafa stjórn á líkamsstöðu sinni og á auðveldara með gang. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem var unnin við Oregon-stofnunina í borginni Eugene og birtist í New England Journal of Medicine. Lífið 17.2.2012 16:15
Enginn giftingarhringur Breski söngvarinn Seal, 48 ára, sem skildi í lok janúar á þessu ári við þýsku ofurfyrirsætuna Heidi Klum, 38 ára, eftir sex ára hjónaband, er loksins búinn að taka niður hringinn. Ekki er vitað hvort Heidi gangi enn með giftingarhringinn sinn. Ef myndirnar eru skoðaðar má sjá að Seal er með skærgult naglalakk á nöglunum. Saman eiga Seal og Heidi þrjú börn; Henry, 6 ára, Johan, 5 ára og Lou, 2 ára. Lífið 17.2.2012 16:15
Jens Ólafsson: Brain Police snýr aftur og spilar í Frakklandi Fengu ógeð á hver öðrum Rokkararnir í Brain Police eru komnir á fulla ferð á nýjan leik og spila á frönsku tónlistarhátíðinni Hellfest um miðjan júní. Þekktustu hljómsveitirnar á þessari vinsælu rokkhátíð í ár eru Guns N"Roses og Black Sabbath. Lífið 17.2.2012 15:30
Grr.. sumir eru öskureiðir Leikkkona Jessica Alba var langt frá því að vera hress með ljósmyndarann sem elti hana og vin hennar á röndum í Soho hverfinu í New York. Þennan dag rigndi líka og það hefur greinilega ekki kætt Jessicu... Lífið 17.2.2012 15:15
Leit hafin að nýjum Lottóþul Elva Dögg Melsteð, sem hefur verið ein af lottóþulum Íslenskrar getspár undanfarin ár, hefur nú látið af því starfi. Elva starfar sem verkefnastjóri tónlistarviðburða Hörpu tónlistarhúss og má ætla að hún hafi í nógu að snúast í því starfi... Lífið 17.2.2012 14:45
Fyrirsætur verða að vera heilbrigðar Fyrirsæturnar sem ganga tískupallana á tískuvikunni í New York þurfa að lúta ákveðnum heilbrigðiskröfum frá CDFA, samtökum bandarískra fatahönnuða. Lífið 17.2.2012 14:15
Útgeislun svo ekki sé meira sagt Leikkonan Jennifer Aniston, 43 ára, stillti sér upp á rauða dreglinum þegar kvikmyndin Wanderlust var frumsýnd klædd í Tom Ford dragt... Lífið 17.2.2012 14:00
Starfar með Muhly og Atla Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds hefur bókað upptökutíma í Hörpu með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Tilefnið er þriðja breiðskífa hans sem er væntanleg síðar á árinu. Nico Muhly, sem hefur unnið með Jónsa og Björk, stjórnar útsetningunum og Atli Örvarsson, tónskáld í Hollywood, annast hljómsveitarstjórnun. Lífið 17.2.2012 13:30
Ýkt feimið undirfatamódel Fyrirsæturnar Candice Swanepoel og Behati Prinsloo sátu fyrir hjá leikstjóranum Michael Bay fyrir Victoria's Secret undirfataauglýsingu í Miami. Ég veit ekki hvort fólk tekur eftir því en ég er rosalega feimin, lét fyrirsætan Candice Swanepoel hafa eftir sér. Meðfylgjandi má skoða myndir af umræddri myndatöku. Lífið 17.2.2012 12:15
Kvikmyndaskóli Íslands verður hluti af „klíkunni“ Kvikmyndaskóli Íslands verður í vor vígður inn í alþjóðasamtök helstu kvikmyndaskóla heimsins, Cilect. Mikill heiður, að mati Hilmars Oddssonar. Lífið 17.2.2012 12:00
Eva Mendes dekrar við sig Leikarinn Ryan Gosling og kærasta hans leikkonan Eva Mendes eru stödd í Bangkok í Taílandi.Thailand. Þar er Ryan við tökur á kvikmyndinni Only God Forgives sem er leikstýrð af Nicolas Winding Refn en hann leikstýrði einnig kvikmyndinni Drive. Eins og sjá má í myndasafni fór Eva í hárgreiðslu á meðan unnustinn var upptekinn í vinnunni. Lífið 17.2.2012 11:30
Hefur ekki hugmynd hver pabbi sinn er Khloe Kardashian viðurkennir að hún hefur ekki hugmynd hver blóðfaðir hennar er. Hún ætlar að leyfa áhorfendum að fylgjast með sér finna út hver pabbi hennar er í sjónvarpsþætti fjölskyldunnar Keeping Up With The Kardashians. Já mamma mín er raunverulega mamma mín en ég veit ekki hver pabbi minn er, lét Khloe hafa eftir sér. Hún segist ekki taka nærri sér þegar slúðurmiðlar giska á hver faðir hennar er eins og O.J. Simpson eða hárgreiðslumaðurinn Kris Jenner en hún tekur inn á sig þegar því er slegið fram að hún sé ekki hluti af Kardashian fjölskyldunni. Lífið 17.2.2012 11:15
Mugison kom sá og sigraði á Tónlistarverðlaunum X-ins Tónlistarverðlaun X-ins 977 voru haldin í fyrsta sinn í gærkvöldi. Hátíðin fór fram á Nasa en þar var húsfyllir og frábær stemming. Lífið 17.2.2012 11:06