Lífið

Paris Hilton réðst á ljósmyndara

Paris Hilton réðst á ljósmyndara í síðustu viku með þeim afleiðingum að hann slasaðist á handlegg og höfði. Hilton var á leið í bifreið sína eftir að hafa verið að skemmta sér og varð ósátt þegar hún varð vör við að verið væri að mynda hana. „Ég sá Paris og mundaði myndavélina. Ég bjóst alls ekki við því að hún mundi ráðast á mig með þessum hætti," sagði Billy Barrera.

Lífið

Elskar stefnumótasíður en er of fræg til að taka þátt

Leikkonunni Milu Kunis finnst fátt skemmtilegra en að skoða stefnumótasíður í góðra vina hópi. Sjálf segist hún þó ekki geta nýtt sér þjónustu slíkra síðna sökum frægðar sinnar. "Ein vinkona mín kynntist unnusta sínum í gegnum slíka síðu og allar hinar eru áskrifendur að svipuðum síðum. Mér finnst þetta frábært, ég fer á Netið og vel karlmenn með þeim. Við fáum okkur vín og skoðum karlmenn og sendum sumum skilaboð. Ég mundi skrá mig þarna inn ef ég væri ekki sú sem ég er. Ég get ekki farið á stefnumót því ég er aldrei nógu lengi á sama staðnum til að geta átt í sambandi," sagði leikkonan í viðtali við Elle Uk.

Lífið

Katrín fer í lagningu þrisvar í viku

Katrín hertogaynja af Cambridge er mikið í mun að skarta fallegu hári og heimsækir þess vegna hárgreiðslustofuna sína þrisvar í viku. Katrín hefur verið með sama hárgreiðslumann í tíu ár en hún vill ekki fá hárgreiðslumanninn sinn heim til sín eins og venjan er hjá ríka og fræga fólkinu í Bretlandi. "Katrínu finnst gaman að gera sér ferð á stofuna því henni líður vel þar og þekkir alla,“ segja heimildir blaðsins US Weekly sem greinir frá þessum venjum hertogaynjunnar. Einnig kemur fram að Katrín láti blása hár sitt í hvert sinn en það var hárgreiðslustofan, Richard Wards í London, sem sá um að greiða henni á brúðkaupsdaginn í fyrra.

Lífið

Ein á móti Vísindakirkjunni

Vísindakirkjan er talin leika lykilhlutverk í skilnaði Tom Cruise og Katie Holmes. Cruise er áhrifamaður innan kirkjunnar en Holmes var sögð hafa alltaf verið með fyrirvara gagnvart Vísindakirkjunni og hennar trú. Katie Holmes kom heimsbyggðinni á óvart er hún sótti um skilnað við Tom Cruise í síðustu viku. Cruise var hér við tökur á Oblivion en hjónin gengu hönd í hönd um miðbæ Reykjavíkur aðeins nokkrum dögum áður er þau fögnuðu bandaríska feðradeginum með sex ára dóttur sinni Suri.

Lífið

Jeppaferðir hafa aldrei verið vinsælli

Jeppaferðir hafa færst mjög í aukana á undanförnum árum. Sífellt fleiri fyrirtæki skjóta upp kollinum sem bjóða upp á ferðir um landið á fjallajeppum, en það eru helst útlendingar sem sækja ferðirnar. „Þegar við vorum að byrja í þessum bransa fyrir sautján árum voru kannski tvö eða þrjú fyrirtæki í þessu en nú eru þau orðin svo mörg að ég hef enga tölu á því," segir Kristján Kristjánsson hjá Mountain Taxi um jeppaferðir á Íslandi.

Lífið

Gylfi trendaði á Twitter

Fótboltakappinn Gylfi Sigurðsson skrifaði undir samning við breska úrvalsdeildarliðið Tottenham í gær, eins og fjölmiðlar víða um heim hafa greint frá. Notendur samskiptasíðunnar Twitter voru afar duglegir við að ræða um málefni Gylfa í gær, svo duglegir að nafn hans var á lista yfir umtöluðustu málefni síðunnar í Bretlandi og á heimsvísu á tímabili. Það þarf vart að taka fram að Twitter er á meðal vinsælustu samskiptasíðna heims með tugi milljónir notenda um allan heim.

Lífið

Tom Cruise spjallar við Leno í kvöld

Stórleikarinn Tom Cruise mun koma fram í spjallþætti Jay Leno á NBC í kvöld. Þetta kemur fram á vefsíðu þáttarins. Það hefur gengið á ýmsu hjá Cruise. Hann fór af landi brott á mánudag eftir að tökum á myndinni Oblivion lauk hér við Veiðivötn. Á meðan Cruise var staddur hér á landi fékk hann tilkynningu um að eiginkona hans, Katie Holmes, krefðist skilnaðar og fulls forræðis yfir Suri, sex ára dóttur þeirra. Líklegast mun Cruise ræða bæði skilnaðinn og kvikmyndatökurnar hér á Íslandi við Leno.

Lífið

Dredd í þrívídd

Ný þrívíddarkvikmynd um Dredd dómara er væntanleg í kvikmyndahús í september á þessu ári. Myndin skartar nýsjálenska leikaranum Karl Urban í aðalhlutverki. Söguþráður myndarinnar er á þá leið að Dredd og lærlingi hans, Anderson, er skipað að taka á glæpahring hinnar harðsvíruðu og valdamiklu Ma-Ma. Fyrst þarf Dredd þó að brjóta sér leið í gegnum vel varið háhýsi til að koma höndum yfir glæpakvendið.

Lífið

Hlátur og mikil dramatík

Útvarpskonan Guðrún Dís Emilsdóttir mun stýra sjónvarpsþættinum Flikk-Flakk sem hefur göngu sína á RÚV annað kvöld. Gunna Dís er betur þekkt sem annar tveggja umsjónarmanna útvarpsþáttarins Virkir morgnar á Rás 2. Í sjónvarpsþættinum ferðast fjórir hönnuðir með Gunnu Dís um landið og breyta niðurníddum hafnarsvæðum í falleg torg. Íbúar bæjanna sjá svo um að framkvæma breytingarnar og hafa til þess tvo daga. Gunna Dís hefur áður verið kynnir í beinum útsendingum Sjónvarpsins en þetta er fyrsta stóra verkefnið sem hún tekur að sér fyrir RÚV.

Lífið

Vanessa Paradis bitur og sár

Þó svo að leikkonan Amber Heard eigi kærustu virðist hún hafa átt hlut í skilnaði Johnny Depp og Vanessu Paradis. Parið tilkynnti í síðasta mánuði að þau væri að hætta saman eftir 14 ára sambúð.

Lífið

Katie og Suri ánægðar saman

Katie Holmes og dóttir hennar Suri Cruise fengu sér ís saman í gærkvöldi. Mægðurnar voru ánægðar að sjá þrátt fyrir miklar breytingar á lífi þeirra síðustu daga.

Lífið

Kim Kardashian og Kanye West stálu senunni

Ekki er sjaldgjæft að sjá Hollywoodstjörnur mæta á tískusýningar. Sjaldan hefur þó viðvera stórstjarnanna Kim Kardashian og kærasta hennar Kanye West, verið jafn mikill senuþjófur og þegar þau mættu á tískusýningu Stephane Rolland í París á dögunum.

Lífið

Sveppi og Pétur Jóhann hræddir í Barcelona

Vísir frumsýnir hér nýtt atriði úr öðrum þætti Evrópska draumsins. Sveppi og Pétur Jóhann, sem skipa liðið Gamli gamli, eru komnir á hótel í Barcelona. Þar pípir tölvan, sem þýðir að nýtt verkefni bíður þeirra. Inni á herbergi finna þeir síðan tvo Real Madrid-búninga, sem þeir þurfa að klæðast og fara síðan á Camp Nou, heimavöll Barcelona-liðsins. Strákarnir vita varla í hvorn fótinn þeir eiga að stíga enda eru aðdáendur Barcelona frægir hatursmenn Real Madrid.

Lífið

Raunveruleikastjarna handtekin

Deena Crotese úr raunveruleikaþáttunum Jersey Shore var handtekin fyrir að nota ekki gangstétt og tefja umferð. Raunveruleikastjarnan var að dansa út á miðri götu á háannartíma.

Lífið

Með dúfu úr Hogwarts á heimsmeistaramóti

Töframenn á borð við David Copperfield og Darren Brown verða á meðal gesta á heimsmeistaramóti töframanna sem Einar Mikael tekur þátt í á næstunni. "Ég mun láta gegnheilt mahóníborð svífa í lausu lofti með töfradúfu frá Hogwarts sitjandi á því allan tímann," segir Einar Mikael Sverrisson töframaður sem keppir fyrstur Íslendinga á Heimsmeistaramóti töframanna í Blackpool í Englandi. Þar mun hann sýna ofangreint töfrabragð og keppa við um 150 töframenn.

Lífið

Vel skipulagður skilnaður

Útlit er fyrir að Katie Holmes hafi lengi skipulagt skilnaðinn við Tom Cruise. Í byrjun júní pantaði hún nýja farsíma handa sjálfri sér og starfsfólki með nýjum númerum sem enginn hefur aðgang að.

Lífið

Bondgella í Reykjavík

Þrátt fyrir að afmælisbarn gærdagsins, Tom Cruise, hafi yfirgefið landann var mótleikkona hans, Olga Kurylenko úr Oblivion, enn á landinu í gær og snæddi hádegismat á Fish Market ásamt fríðu föruneyti. Lítið hefur verið fjallað um ferðir hennar hér á landi en Olga fer með stærsta kvenhlutverk myndarinnar og er hvað þekktust sem Bondgellan á móti Daniel Craig úr James Bond: Quantum of Solace.

Lífið

Demi Moore ósátt við Ashton Kutcher

Leikkonan Demi Moore er ósátt með eiginmann sinn, leikarann Ashton Kutcher. Kutcher sást á dögunum á stefnumóti með Milu kunis. Þau hafa lengi þekkst og kynntust við tökur á That's the 70's show þar sem þau léku kærustupar.

Lífið

Tom grátbað Katie að koma aftur til Íslands

Tom Cruise grátbað Katie Holmes að koma aftur til Íslands og fagna fimmtugsafmæli sínu hér á landi í síðustu tilraun til að bjarga hjónabandi þeirra. Hann sakaði Katie um að vera hjartalaus þegar hún neitaði að koma aftur, samkvæmt US Magazine. Tom og Katie standa núna í forræðisdeilu um 6 ára gamla dóttur þeirra, Suri Cruise. Tom hefur sótt um sameiginlegt forræði. Þetta staðfesti lögfræðingur leikarans, Bret Fields. Hann segir leikarann miður sín yfir skilnaðinum og að hann sé ekki tilbúinn að tjá sig opinberlega um málið.

Lífið

Tom Cruise tekjuhæstur í Hollywood

Þó svo að það gangi illa í persónulega lífi Tom Cruise þessa dagana, gengur honum vel í starfi. Samkvæmt Forbes tímaritinu er Tom Cruise hæstlaunaðasti leikarinn í Hollywood. Hann þénað 75 miljónir dollara á síðasta sem nemur um 9 milljörðum króna. Aðrir þekktir leikarar sem prýddu listann voru Leonardo DiCaprio, Ben Stiller, Johnny Depp og Robert Pattison.

Lífið

Tiny frumsýnir myndband á Vísi á föstudag

Næstkomandi föstudag mun rapparinn Tiny frumsýna glænýtt myndband við lagið 1000 Eyes hér á Vísi. Lagið 1000 Eyes kom út á Tonlist.is fyrir um einum og hálfum mánuði síðan, en sem kunnugt er var lagið samið af þeim fyrrum Quarashi liðum Sölva Blöndal og Agli "Tiny" Thorarensen. 1000 Eyes er fyrsta lagið úr smiðju þeirra Sölva og Tiny, en einnig er von er á fyrsta laginu úr smiðju Sölva undir nafninu Halleluwah seinna í sumar.

Lífið

Gunnar í viðræðum við UFC-bardagasambandið

Bardagakappinn Gunnar Nelson á nú í samningaviðræðum við UFC (Ultimate Fighting Championsship), stærsta bardagasambands heims. "Þetta er langstærsta keppnin í heiminum og Gunnar er kominn á þann stað sem hann hefur stefnt á leynt og ljóst. Aðaltakmark margra bardagamanna er að fá samning við UFC, það má líkja þessu við að spila í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta," segir Haraldur Nelson, faðir og umboðsmaður Gunnars.

Lífið

Johnny Depp kominn með nýja

Leikkonan Amber Heard er hætt með kærustu sinni til margra ára og kynda fréttirnar enn frekar undir þann orðróm að Heard eigi í ástarsambandi við leikarann Johnny Depp. Uppi hefur verið orðrómur um að Depp og Heard ættu í sambandi allt frá því í janúar á þessu ári, en þau kynntust við tökur á kvikmyndinni The Rum Diaries. Depp og sambýliskona hans, franska söngkonan Vanessa Paradis, slitu sínu sambandi fyrir skömmu.

Lífið

Katie Holmes er búin að taka giftingahringinn niður

Katie Holmes, barnsmóðir Tom Cruise, er búin að taka niður giftingahringinn. Hún sást án hans í fyrsta skipti í New York í gær. Ljósmyndarar sátu fyrir henni í New York. Katie var með hringinn í síðustu viku en á föstudaginn sagði tímaritið People frá því að Katie hefði sótt um skilnað.

Lífið

Hann á afmæli í dag

Tom Cruise er fimmtugur í dag, en hann hefur eflaust oft verið kátari á afmælisdaginn. Katie Holmes, eiginkona hans, sótti um skilnað á dögunum, skömmu eftir að hún hitti hann hér á landi. Til stóð að Tom Cruise myndi halda upp á afmælið sitt hér á landi í dag, en óvíst er hvort áformin standi, í ljósi nýjustu frétta. Connor, sonur Toms Cruise og Nicole Kidman, ferðaðist með föður sínum um landið í síðustu viku og nú hefur Isabella, systir hans, slegist í för.

Lífið

Hrefna Rósa grillar fyrir landsmenn

„Ég hef sjaldan hlakkað jafn mikið til enda er þetta sjónvarp allra landsmanna,“ segir kokkurinn Hrefna Rósa Sætran sem ætlar að grilla fyrir landsmenn á Ríkissjónvarpinu í haust. Hrefna Rósa er þessa dagana að undirbúa tökur á nýrri þáttaröð sem sérhæfir sig í grillmatreiðslu. Serían er leikstýrð af Kristófer Dignus og framleidd af Stórveldinu. Hrefna Rósa er ánægð að fá tækifæri til að elda á Rúv en hún hefur undanfarin ár verið með matreiðsluþætti á Skjá einum.

Lífið

400 stelpur mættu í prufur fyrir Vonarstræti

Leikaraprufur fyrir kvikmyndina Vonarstræti fóru fram á laugardaginn. Ljóst er að ungdómur landsins er spenntur fyrir að fá hlutverk því það mættu rúmlega 400 stelpur í Bankastrætið í von um að landa hlutverki í myndinni. Baldvin Z leikstjóri og framleiðendur hjá Kvikmyndafélagi Íslands voru að vonum mjög ánægðir með mætinguna og áhugann á myndinni.

Lífið

Leno missti af brennivíninu

Spjallþáttakóngurinn Jay Leno rétt missti af því að fá að prufa íslenskt brennivín síðastliðinn föstudag. Nanna Bryndís og félagar í hljómsveitinni Of Monsters and Men heimsóttu hann þá í þáttinn The Tonight Show og fluttu þar smell sinn Little Talks. Meðlimir hljómsveitarinnar höfðu ráðgert að gefa Leno íslenskar gjafir og tóku með sér ytra íslenskt brennivín, harðfisk og poka af kúlusúkk. Því miður gleymdust gjafirnar þó uppi á hótelherbergi og fékk Leno því aldrei að njóta þeirra.

Lífið