Lífið

Gjaldþrota!

Leikkonan Martine McCutcheon hefur lýst sig gjaldþrota. Martine skuldar breska ríkinu talsverða fjármuni.

Lífið

Æskudraumur Dóru rættist

Leikkonan Dóra Jóhannsdóttir upplifði æskudrauminn er hún hitti átrúnaðargoð sitt, leikkonuna Julie Andrews, í New York um helgina.

Lífið

Fjör í Fríhöfninni

Það var mikið fjör í Fríhöfninni í dag þegar starfsmennirnir héldu upp á öskudaginn klæddir í skemmtilega grímubúninga.

Lífið

Ísdrottningin Ásdís Rán á Instagram

Ásdís Rán Gunnarsdóttir tekur sjálfa sig ekki of hátíðlega eins og sést á Instagram myndunum hennar sem hún gaf okkur leyfi til að birta. Hún nýtur lífsins með börnunum sínum á Íslandi...

Lífið

Horfir frekar til fortíðar en framtíðar

Mikil spenna hefur ríkt í búðum fatahönnunarnema en í síðustu viku lagði hópur fyrsta árs nema við Listaháskóla Íslands í pílagrímsferð sína til Parísar. Þar aðstoða þau virta hönnuði fyrir hina frægu tískuviku sem haldin er nú í febrúar. Ferðin sem er fastur liður í náminu snýst um að veita nemendum þjálfun í að sinna hinum ýmsustu verkefnum sem tengjast tískusýningum auk þess að starfa í framandi og breytilegu umhverfi. Nú hefur nemendum verið úthlutað hönnuðum en spenna ríkti meðal nemenda um úthlutanir á eftirsóttum plássum.

Lífið

Lífrænar vörur sem gera kraftaverk

"Það gerir mann svo miklu sætari á grámyglulegum morgnum. Þetta krem er ekki farði en það gerir mann útiteknari. Líflaust andlitið peppast upp og fær á sig örlítið brúnni blæ. Mæli eindregið með því."

Lífið

Ber hana á húðina og nota í matargerð

"Ég hafði ekki mikla trú fyrst á olíunni en prufaði hana svo sjálf. Nú ber ég hana á húðina, steiki upp úr henni og nota hana í matargerð og gjarnan í drykki sem ég geri í blandaranum."

Lífið

Málar fyrir gott málefni

Það muna eflaust margir eftir því þegar selfossmærin Erna Kristín Stefánsdóttir lét raka af sér allt hárið og safnaði þannig peningum fyrir SOS barnaþorpin. Erna lætur ekki þar við sitja ...

Lífið

Nýtt frá Emilíönu

Emilíana Torrini og Steve Mason, fyrrverandi söngvari The Beta Band, syngja saman í nýju smáskífulagi sem nefnist I Go Out. Lagið er það fyrsta sem kemur út hjá útgáfufyrirtækinu Speedy Wunderground. Eigandi þess er upptökustjórinn Dan Carey, sem vann með Emilíönu við plöturnar Fisherman"s Woman og Me And Armini. Emilíana hefur haft sig lítið frammi á tónlistarsviðinu að undanförnu en fimm ár eru liðin síðan Me And Armini kom út.

Lífið

Kominn tími til að breyta til

Kántrísöngkonan LeAnn Rimes er búin að glíma við mikla erfiðleika síðustu mánuði en nú virðist allt vera á uppleið hjá henni. Hún fagnaði betri tíð með heimsókn á hárgreiðslustofuna.

Lífið

Hún er svo mikil drottning

Beyonce er á forsíðu marsheftis Vogue sem fer í sölu þann 19. febrúar. Beyonce er stórglæsileg bæði á forsíðunni og á myndum inni í blaðinu og ljóst er að þarna er á ferð ein flottasta kona heims.

Lífið

Þær brutu allar reglurnar

Sjónvarpsstöðin CBS sendi sérstaklega út reglur um klæðnað fyrir Grammy-verðlaunahátíðina sem var haldin um helgina. Það voru þó ekki allar stjörnurnar sem fylgdu reglunum.

Lífið

Ný besta vinkona

Kántrísöngkonan Taylor Swift var eldhress á Grammy-verðlaunahátíðinni um helgina og söng með nánast hverju einasta lagi. Við hlið hennar sat stúlka sem er miklu meira en aðdáandi.

Lífið

Með smá roða í kinnum er ég til í allt

Guðrún Dís Emilsdóttir fjölmiðlakona er áberandi geislandi og falleg á skjánum og röddin hennar er alls ekki síðri þegar kemur að útvarpinu. Gunna Dís upplýsir okkur hvaða snyrti- og húðvörur hún notar.

Lífið

Missti 70 kg - hætti að borða hveiti og sykur

Hanna María Alfreðsdóttir ferðamálafræðingur setti meðfylgjandi mynd af sér á Facebook þar sem sjá má gríðarlegan mun á henni eftir að hún tók mataræðið föstum tökum og hætti að borða sykur, hveiti og sterkju. Við spurðum Hönnu út í árangurinn. "Ég hef lést um rúm 70 kíló. Það var árið 2006 sem þessi mynd var tekin og ég fékk ógeð. Mér dauðbrá við að sjá hana. Þá ákvað ég að gera eitthvað í mínum málum. Ég byrjaði í allskonar megrunum en ég hef prófað allt. Ég gekk meira að segja svo langt að lifa bara á vantsmelónu í tvo daga bara til að fá góða tölu í vigtun. Ég náði ágætis árangri en varð síðan ólétt árið 2009 og fór hratt upp aftur." "Ég tók út sykur, hveiti og sterkju og vigta matinn minn. Með yndislegum samtökum eins og www.gsa.is , www.matarfikn.is og svo www.os.is og besta þjáfara í heimi, henni Telmu sem að pískrar mig áfram, þá á ég líf í dag sem ég lifi lifandi einn dag í einu."

Lífið

Villt gaman á Volta

Nýr 300 manna skemmti- og tónleikastaður við Tryggvagötu, Volta, var opnaður með viðhöfn um helgina. Hjaltalín, Ojba Rasta og fleiri sveitir skemmtu gestum.

Lífið