Erlent
Herskáir prestar reknir frá Evrópu Herskáir prestar múslima eru nú reknir frá Evrópu, hver af öðrum. Innanríkis- og dómsmálaráðherrar Frakklands, Ítalíu, Þýskalands og Bretlands gerðu með sér samkomulag um að ráðast þannig strax að rótum vandans, án þess að bíða eftir því að Evrópusambandið, sem heild, tæki afstöðu í málinu. Erlent 22.8.2005 00:01
Brasilíumenn yfirheyra nefnd Tveir háttsettir brasilískir embættismenn komu til Lundúna í gær til að yfirheyra rannsóknarnefndina sem rannsakar drápið á Jean Charles de Menezes. Erlent 22.8.2005 00:01
Yfirgefa heimli sín vegna átaka Hundruð Íraka hafa yfirgefið heimili sín í bænum Rawah, vegna stöðugrar baráttu milli bandaríska hersins og íraskra uppreisnarmanna. Hús, verslanir og opinberar byggingar eru víða í rúst og hafa margar götur verið lokaðar. Erlent 22.8.2005 00:01
Vildu selja ungling fyrir krakk Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur komið upp um par í Ohio-ríki sem ætlaði að selja 15 ára stúlku í skiptum fyrir pakka af krakki. Nota átti stúlkuna í vændi. Erlent 22.8.2005 00:01
Portúgalar berjast enn við elda Flugvélar sem notaðar eru til þess að berjast við skógarelda steyma nú til Portúgals, en stjórnvöld þar hafa beðið um aðstoð, þar sem þau ráði ekki lengur við eldana. Flugvélar frá Frakklandi og Spáni eru komnar til landsins, og fleiri eru á leiðinni, meðal annars frá Kanada. Erlent 22.8.2005 00:01
Brottflutning lokið á Gaza Brottflutningi landnema gyðinga á Gaza lauk í gær, en Ísraelsher mætti ekki andstöðu þegar farið var inn í Netzarim, síðustu landnemabyggðina, síðdegis í gær. Erlent 22.8.2005 00:01
100 þúsund manna borg í hættu Þúsundir slökkviliðsmanna og enn fleiri íbúar Portúgal unnu hörðum höndum við að ráða niðurlögum skógarelda sem geisa víða um landið. Hundrað þúsund manna borg er í hættu og ríkisstjórnin hefur beðið nágrannaþjóðir um hjálp. </font /></b /> Erlent 22.8.2005 00:01
Tekist á um stjórnarskrá Borgarastríð blasir við þvingi Sjítar og Kúrdar sína útgáfu af írakskri stjórnarskrá í gegnum þingið, þvert á vilja Súnníta. Erlent 22.8.2005 00:01
Óbreyttir borgarar falla í valinn Nokkur fjöldi óbreyttra borgara hefur fallið í árásum í Írak síðasta sólarhringinn. Í gærkvöld myrtu byssumenn fimm manna fjölskyldu í bænum Samarra, en heimilisfaðirinn mun hafa starfað sem vörður hjá lyfjaverksmiðju í bænum. Þá lést sex ára barn þegar flugskeyti lenti á heimili þessi í bænum Seeniya og einn óbreyttur borgari lést þegar vegsprengja sprakk nærri bíl hans í bæ suður af Bagdad. Erlent 21.8.2005 00:01
Bréf frá Saddam birtist í blöðum Bréf Saddams Hussein til óþekkts vinar var birt í tveimur dagblöðum í Jórdaníu um helgina. Þar heitir Saddam því að hann muni fórna sjálfum sér fyrir málstað Palestínu og Íraks. Eftir því sem næst verður komist barst bréfið í gegnum Alþjóða Rauða Krossinn til gamals vinar Saddams sem búsettur er í Jórdaníu. Erlent 21.8.2005 00:01
Sneru aftur og stálu rifflum Tveir ísraelskir landnemar, sem fluttir höfðu verið á brott frá Shirat Hayam landnemabyggðinni á Gaza-svæðinu, sneru þangað aftur í dag, stálu rifflum af ísraelskum hermönnum og hafa nú lokað sig af inni í byggingu í landnemabyggðinni. Samkvæmt ísraelsku sjónvarpi höfðu mennirnir fengið leyfi hjá hernum til að snúa aftur til heimilis síns til að sækja föggur sínar en gripu þá tækifærið og rændu rifflunum. Erlent 21.8.2005 00:01
Saka BBC um nornaveiðar Múslímaráð Bretlands, stærstu samtök múlíma í Bretlandi, saka breska ríkissjónvarpið um að standa fyrir nornaveiðum gegn múlímum í fréttaskýringarþættinum <em>Panorama</em> sem sýna á í kvöld. Þar er vilji Múslímaráðsins til að takast á við öfgasinna í samfélögum múslíma dreginn í efa. Erlent 21.8.2005 00:01
Hátt í milljón við messu páfa Allt að ein milljón ungmenna frá tæplega tvö hundruð löndum hlýddi á útimessu Benedikts sextánda páfa í Marienfeld í Þýskalandi í dag. Messan var lokapunktur fyrstu heimsóknar Benedikts til annars lands og brýndi hann fyrir ungdómnum að í trúnni sé ekki hægt að velja og hafna. Erlent 21.8.2005 00:01
Kínverjar ná stjórn á svínaveiki Yfirvöld í Kína segjast hafa náð stjórn á sjúkdómi sem dregið hefur 38 til dauða í suðvesturhluta landsins. Erlent 21.8.2005 00:01
Neitar að hafa vitað af sakleysi Ian Blair, lögreglustjóri Lundúna, neitar því að hafa vitað að Brasilíumaðurinn sem lögreglan skaut til bana á neðanjarðarlestarstöð fyrir mánuði, hafi verið saklaus, fyrr en sólarhring síðar. Fjölskylda hins látna krefst þess að lögreglustjórinn segi af sér, það geti hreinlega ekki verið að lögreglustjórinn hafi gefið opinberar yfirlýsingar um málið án þess að vera kunnugt um staðreyndir. Erlent 21.8.2005 00:01
Leggjast gegn stjórnarskránni Leiðtogar súnní-múslima vara við því að ný stjórnarskrá sem sjía-múslimar og Kúrdar eru að ná samkomulagi um kunni að verða til að staða mála í Írak fari enn versnandi. Þeir hafa biðlað til Bandaríkjastjórnar og Sameinuðu þjóðanna um að koma í veg fyrir að nýja stjórnarskráin verði samþykkt. Erlent 21.8.2005 00:01
Hafi 48 stundir til að leysa deilu Breska flugfélagið British Airways hefur fengið frest fram á þriðjudagskvöld til að leysa deilu sína Gate Gourmet, flugeldhúsfélagið sem sér flugfélaginu fyrir mat, að öðrum kosti verður Gate Gourmet gjaldþrota. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir heimildarmanni innan flugeldhúsfélagsins í dag. Erlent 21.8.2005 00:01
Ísraelsher mætir mótstöðu Ísraelski herinn er nú að brjóta sér leið inn í síðustu landnemabyggðirnar á Gaza-ströndinni og á Vesturbakkanum sem á að rýma. Hann hefur mætt töluverðri mótstöðu sums staðar og hefur þurft að nota jarðýtur til að ryðja frá brennandi haugum af dekkjum og heyi sem íbúar hafa hlaðið fyrir framan hliðin að byggðunum. Erlent 21.8.2005 00:01
Slökkviliðsstjóri kveikir í Yfirmaður slökkviliðs á Spáni hefur verið handtekinn grunaður um að kveikja fimmtán af þeim fjölmörgu skógareldum sem geysað hafa í Galicia-héraðinu á norðvesturhluta landsins að undanförnu. Erlent 21.8.2005 00:01
Dönum fer að fækka Danir eru deyjandi þjóð ef marka má niðurstöður rannsóknar Kaupmannahafnarháskóla. Útreikningarnir sem taka mið af nýjum tölum frá Hagstofu Danmerkur sýna að fjöldi Dana nái að öllum líkindum hámarki þegar á næsta ári Erlent 21.8.2005 00:01
Átök á Gasaströndinni í dag Til nokkurra átaka kom milli landnema og ísraelskra hermanna í dag, þegar þeir síðarnefndu hófu að rýma síðustu landnemabyggðir gyðinga á Gasaströndinni og Vesturbakkanum, sem ríkisstjórn Ariels Sharons hefur ákveðið að skuli víkja. Húsin verða rifin áður en Palestínumenn fá yfirráð yfir landinu en þeir mega nýta byggingarefnið sem eftir verður. Erlent 21.8.2005 00:01
Fundu lík við leit að strák Breska lögreglan, sem leitað hefur 11 ára skosks drengs síðustu daga, greindi frá því í dag að hún hefði fundið lík án þess þó að tilgreina hvort það væri af drengnum. Rory Blackhall hvarf á fimmtudagsmorgun eftir að móðir hans hafði keyrt hann í skólann og hófst í kjölfarið umfangsmikil leit á því svæði sem hann sást síðast, en hann býr í Livingstone. Ekki liggur fyrir hvort einhver liggur undir grun um að hafa numið Blackhall á brott. Erlent 21.8.2005 00:01
Á brattann að sækja fyrir Benedikt Heimsókn Benedikts páfa sextánda til Þýskalands lauk í dag með útimessu fyrir framan um eina milljón ungmenna sem komin voru alls staðar að úr heiminum til að berja nýja páfann augum. Honum þótti takast ágætlega upp, en það er mál manna að það sé á brattann að sækja fyrir Benedikt að ávinna sér viðlíka vinsældir meðal æskunnar og forveri hans Jóhannes Páll annar naut. Erlent 21.8.2005 00:01
Einingartákni stolið í Sviss Sögulegu 80 kílóa tákni um einingu svissnesku þjóðarinnar hefur verið stolið. Um er að ræða heljarinnar grjóthnullung sem kallaður er Unspunnenstein. Steinaræningjarnir hafa enn ekki sett fram kröfur um lausnargjald, en talið er að þjófarnir séu frönskumælandi íbúar Júrafjalla sem krefjast þess að þeirra svæði verði hluti af frönskumælandi Júrakantónununni en ekki Bernarkantónu þar sem þýska er ráðandi. Erlent 21.8.2005 00:01
Slösuðust eftir lendingu Níu farþegar slösuðust eftir nauðlendingu farþegaflugvélar ástralska flugfélagsins Qantas á flugvellinum í Osaka í Japan. Erlent 21.8.2005 00:01
Vilja flytja dýr frá Afríku Vísindamenn við Cornell-háskóla í New York hafa komið fram með nýja hugmynd til þess að bjarga dýrategundum í Afríku sem eru í útrýmingarhættu. Þeir leggja til að t.d. ljón, fílar og kameldýr verði flutt til Bandaríkjanna og komið fyrir á sléttum landsins. Erlent 21.8.2005 00:01
Ljón drápu konu í Zimbabwe Japönsk kona lést eftir að hópur ljóna réðst á hana í dýrargarði nærri Harare, höfuðborg Zimbabwe, í dag. Konan, sem starfaði í sendiráði Japana í landinu, var í garðinum ásamt fimm samstarfsmönnum og hafði farið inn fyrir ljónagirðingu ásamt starfsmanni garðsins. Þegar konan hugðist svo fara út fyrir girðinguna aftur réðst eitt ljónanna á hana og nokkur önnur fylgdu svo í kjölfarið. Erlent 21.8.2005 00:01
Óttast að gripið verði til vopna Rýming síðustu landnemabyggðanna á Gaza gekk stórátakalaust. Hins vegar kom til átaka milli hermanna og landtökumanna á Vesturbakkanum í gær og óttast menn að þar komi til vopnaðra átaka í dag Erlent 21.8.2005 00:01
Sprengja sprakk nærri sendiráðsbíl Tveir starfsmenn sendiráðs Bandaríkjanna í Afganistan særðust lítillega þegar vegsprengja sprakk nærri bílalest þeirra við höfuðborgina Kabúl í dag. Talsmaður sendiráðsins vildi ekki greina frá því hverjir hefðu særst og neitaði að svara því hvor sendiherrann sjálfur, Ronald Neumann, hefði verið í bílalestinni. Erlent 21.8.2005 00:01
Breskra hermanna minnst Karl Bretaprins fór í gær fyrir hátíðlegri athöfn til að minnast þess að sextíu ár eru liðin frá því að Japan gafst upp í síðari heimsstyrjöldinni en það markaði einnig lok hennar. Athöfnin var tileinkuð þeim hermönnum sem börðust fyrir hönd Breta í Austurlöndum fjær. Erlent 21.8.2005 00:01