Erlent Kaþólska kirkjan vill undanþágu frá hommalögum Kaþólska kirkjan í Bretlandi segist kunna að loka ættleiðingarskrifstofum sínum ef hún verður neydd til þess, með nýjum lögum, að leyfa samkynhneigðum pörum að ættleiða börn. Löggjöf sem bannar mismunun samkynhneigðra tekur gildi í apríl. Um 4000 börn bíða þess á ættleiðingarstofum kirkjunnar að fá nýja foreldra. Erlent 23.1.2007 14:36 Draumastúlkurnar fengu flestar tilnefningar til Óskarsverðlauna Kvikmyndin Draumastúlkurnar eða Dreamgirls hlaut flestar tilnefningar til Óskarsverðlauna í ár eða átta. Tilnefningarnar voru kynntar í Beverly Hills í Bandaríkjunum í dag. Kvikmyndin Babel hlaut sjö tilnefningar. Erlent 23.1.2007 13:47 Óeirðir í Líbanon Mörg þúsund Líbanar hafa lamað nær alla Beirút og lokað af hluta hennar. Stjórnarandstæðingar hafa lagt niður vinnu víða um Líbanon og ætla sér að steypa ríkisstjórn landsins með góðu eða illu. Erlent 23.1.2007 13:30 Vantrú á Bandaríkin vex um allan heim
Kaþólska kirkjan vill undanþágu frá hommalögum Kaþólska kirkjan í Bretlandi segist kunna að loka ættleiðingarskrifstofum sínum ef hún verður neydd til þess, með nýjum lögum, að leyfa samkynhneigðum pörum að ættleiða börn. Löggjöf sem bannar mismunun samkynhneigðra tekur gildi í apríl. Um 4000 börn bíða þess á ættleiðingarstofum kirkjunnar að fá nýja foreldra. Erlent 23.1.2007 14:36
Draumastúlkurnar fengu flestar tilnefningar til Óskarsverðlauna Kvikmyndin Draumastúlkurnar eða Dreamgirls hlaut flestar tilnefningar til Óskarsverðlauna í ár eða átta. Tilnefningarnar voru kynntar í Beverly Hills í Bandaríkjunum í dag. Kvikmyndin Babel hlaut sjö tilnefningar. Erlent 23.1.2007 13:47
Óeirðir í Líbanon Mörg þúsund Líbanar hafa lamað nær alla Beirút og lokað af hluta hennar. Stjórnarandstæðingar hafa lagt niður vinnu víða um Líbanon og ætla sér að steypa ríkisstjórn landsins með góðu eða illu. Erlent 23.1.2007 13:30
Nærri því étinn af hákarli Rúmlega fertugur Ástrali liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í heimalandi sínu eftir að þriggja metra langur hákarl réðst á hann undan austurströnd landsins í morgun. Maðurinn var við köfun þegar hákarlinn réðist á hann og beit um höfuð hans. Tókst manninum með snarræði að pota í auga hákarlsins sem losaði um tak sitt og spýtti nánast kafaranum út úr sér. Erlent 23.1.2007 13:15
Hvetja til laga um hámarkslosun gróðurhúsalofttegunda Forstjórar níu af stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna, þeirra á meðal Alcoa, skora á Bush Bandaríkjaforseta að setja lög um hámarkslosun gróðurhúsalofttegunda og verndun andrúmsloftsins. Forsetinn flytur árlega stefnuræðu sína í nótt og búist er við að umhverfismál beri þar á góma. Erlent 23.1.2007 13:09
Álit umheimsins á Bandaríkjunum minnkar Álit bæði innanlands og utan á utanríkisstefnu Bandaríkjamanna fer þverrandi samkvæmt skoðanakönnun sem breska ríkisúrvarpið hefur látið gera. Leitað var svara hjá 25 þjóðum og voru þrír fjórðu aðspurðra óánægðir með hvernig Bandaríkjamenn tækju á ástandinu í Írak. Erlent 23.1.2007 12:02
Eþíópískir hermenn á förum frá Sómalíu Eþíópískir hermenn eru byrjaðir að yfirgefa Sómalíu fjórum vikum eftir að þeir komu inn í landið til að hjálpa stjórnarhernum að hrekja burt uppreisnarhreyfinguna Íslamska dómstólaráðið. Eþíópískur hershöfðingi tilkynnti þetta í dag við athöfn þar sem stríðsherrar skiluðu vopnum sínum. Erlent 23.1.2007 11:33
Sálfræðingur skoðar frumskógarkonuna Spænskur sálfræðingur er á leið til Kambódíu til að skoða konu sem margir telja að hafi gengið sjálfala í frumskóginum í tæpa tvo áratugi. Fjölskyldan segist þekkja aftur stúlku sem hvarf fyrir 19 árum. Efasemdarmenn segja hins vegar að stúlkan hafi líklega ekki dvalist í frumskóginum svo lengi og sé hugsanlega geðsjúk. Erlent 23.1.2007 10:56
Deilur um ísbjarnaveiðar á Grænlandi Gert Ignatiussen, sem á sæti í bæjarstjórnin Tasiilaq á Grænlandi, hefur gagnrýnt opinberlega kvóta til ísbjarnaveiða fyrir Austur-Grænland. Álítur hann að kvótinn, sem telur 50 dýr á ári, sé full rýr fyrir byggðarlög þessa svæðis þar sem tekjumöguleikar séu færri en sunnar á landinu. Erlent 23.1.2007 10:48
Fimm særðir í skotbardaga í Líbanon Fimm eru særðir, þar af einn mjög alvarlega, eftir skotbardaga í smáþorpi í Líbanon í dag milli stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar og mótmælenda sem fylgja stjórnarandstöðunni að málum. Erlent 23.1.2007 10:18
Óskarstilnefningar tilkynntar í dag Tilnefningar til Óskarsverðlauna verða tilkynntar eftir hádegi í dag í Los Angeles. Veðbankar og spámenn keppast við að segja fyrir um hverjir komast í hinn eftirsótta hóp tilnefndra. Öruggast þykir að veðja á Drottninguna, Helen Mirren hefur þegar fengið Golden Globe verðlaunin fyrir túlkun sína á Elísabetu Bretadrottningu. Erlent 23.1.2007 09:40
Stórlaxar vilja vernda andrúmsloftið Forstjórar níu af stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna, þeirra á meðal Alcoa, skora á Bush Bandaríkjaforseta að setja lög um hámarkslosun gróðurhúsalofttegunda og verndun andrúmsloftsins. Bandaríkin hafa ekki staðfest Kyoto-sáttmálann og Bush hefur hingað til hafnað því að takmarka útblástur með lögum. Erlent 23.1.2007 08:55
Milljónir hindúa baða sig í Ganges í dag Milljónir trúaðra hindúa baða sig í ánni Ganges í dag, á síðasta degi trúarhátíðarinnar Ardh Kumbh Mela. Hundruð nakinna öskuborinna manna sem hindúar telja heilaga leiddu fylkinguna niður að ánni í morgun. Nærri 70 milljón hindúar taka þátt í baðhátíðinni sem stendur yfir í 45 daga. Erlent 23.1.2007 08:00
Al Kaída segist munu sigra hermennina Næstráðandi Al Kaída gerir gys að fjölgun í herliði Bandaríkjanna í myndbandi sem bandarísk stofnun stöðvaði þegar hryðjuverkasamtökin reyndu að koma því á netið í gær. Myndbandið hefur ekki verið birt að fullu en að sögn Bandaríkjamannanna segir Al Zawahri, að hermannanna bíði ósigur og dauði, sama hversu margir verða sendir. Erlent 23.1.2007 07:15
Verkfall og vegatálmar í Beirút Þúsundir manna hafa svarað kalli stjórnarandstöðunnar í Líbanon um allsherjarverkfall sem hefst í dag. Dekkjabrennur mótmælenda loka vegunum til og frá borginni, bæði til norðurs og suðurs og vegurinn að alþjóðaflugvelli landsins er sömuleiðis lokaður. Flugfélög hafa aflýst flugi til og frá flugvellinum vegna mótmælanna. Erlent 23.1.2007 06:38
Vill samvinnu lýðræðisafla Flokkur herskárra þjóðernissinna varð stærsti flokkurinn í þingkosningum í Serbíu. Forseti landsins skorar á lýðræðisflokkana að mynda ríkisstjórn áður en skýrsla SÞ um framtíð Kosovo verður birt. Erlent 23.1.2007 05:45
Nýjar kjarnorkuviðræður af stað Bandarísk og norður-kóresk stjórnvöld hyggjast hefja á ný viðræður um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu, en seinustu lotu þeirra lauk í desember án teljanlegs árangurs. Auk Bandaríkjanna og Norður-Kóreu eiga Japan, Kína og Suður-Kórea aðild að viðræðunum. Erlent 23.1.2007 05:45
Kapp lagt á sáttmálauppfærslu Angela Merkel, kanslari Þýskalands, kynnti fyrir helgi formennskuáætlun Þjóðverja í Evrópusambandinu fyrri helming ársins. Hún sagði sambandið verða að koma sér saman um aðgerða-áætlun um það hvernig koma megi til framkvæmda þeirri uppfærslu á stofnsáttmála sambandsins sem til stóð að gera með stjórnarskrársáttmálanum svonefnda, en fullgilding hans strandaði eins og kunnugt er þegar henni var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslum í Frakklandi og Hollandi fyrir hálfu öðru ári. Erlent 23.1.2007 05:00
Íslamistaleiðtogi gefur sig fram Einn helsti leiðtogi íslamista í Sómalíu, Sheikh Sharif Sheikh Ahmed, hefur gefið sig fram við bandarísk og kenýsk stjórnvöld og dvelur núna undir þeirra vernd í Nairobi, höfuðborg Kenýa. Erlent 23.1.2007 04:45
Íburðarminni afmælisveislur Foreldrar í Minnesota hafa stofnað félagsskapinn „Afmæli án þrýstings“ til að stemma stigu við metingi og samkeppni um íburðarmestu afmælisveislurnar fyrir börnin. Þessa tilhneigingu kalla þau „vígbúnaðarkapphlaup um afmælisveislur“. Erlent 23.1.2007 04:45
Hvetja til losunartakmarkana Forstjórar tíu af þekktustu fyrirtækjum Bandaríkjanna birtu í gær áskorun á George W. Bush Bandaríkjaforseta, þar sem þeir hvetja hann til að styðja að komið verði á reglum um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda í landinu. Erlent 23.1.2007 04:00
Hundrað féllu í árásum í gær Að minnsta kosti hundrað manns létust í skotárásum og sprengingum sem beindust að skotmörkum Sjíta í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. Tæplega áttatíu manns létust í sprengingu á markaði í mannskæðustu árás sem orðið hefur í Írak í einn og hálfan mánuð. Í lok nóvember létust 215 manns í árás í Bagdad sem talið er að al-Kaída hafi staðið á bakvið og fól í sér hrinu bílsprengja og sjálfsmorðsárása. Erlent 23.1.2007 03:00
Herskár þjóðernissinni játar tyrkland, ap Yasin Hayal, herskár tyrkneskur þjóðernissinni, hefur játað að hafa skipulagt morðið á armensk-tyrkneska ritstjóranum Hrant Dink á föstudaginn. Erlent 23.1.2007 02:00
Rússar segja sér vera ógnað Háttsettur rússneskur hershöfðingi lét hafa eftir sér í gær að uppsetning búnaðar fyrir bandarískt eldflaugavarnakerfi í fyrrverandi Varsjárbandalagslöndum væri „skýr ógn“ við Rússland. Erlent 23.1.2007 01:45
Deila um reglur Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur birt reglur um starfsemi dómstólanna sem eiga að fjalla um mál fanganna í Guantanamo á Kúbu. Nýju reglurnar hafa sætt gagnrýni fyrir ýmis ákvæði, þar sem brotið þykir á réttindum. Erlent 23.1.2007 01:00
Sprenging á skrifstofum Al Arabiya á Gasa Sprenging varð á skrifstofum arabísku sjónvarpsstöðvarinnar Al Arabiya á Gasaströndinnni í gær. Töluvert tjón varð á innanstokksmunum en enginn var í húsinu þegar sprengingin varð. Ekki liggur fyrir hvað olli sprengingunni en aðalfréttastjóri stöðvarinnar í Dubai greindi frá því að stöðin hefði áður fengið hótanir. Erlent 22.1.2007 21:47
Paris Hilton fær skilorðsbundinn dóm fyrir ölvunarakstur Dekurdrósin Paris Hilton, einn af erfingjum Hilton-hótelkeðjunnar, var í dag dæmd í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi eftir að hún viðurkenndi að hafa ekið undir áhrifum áfengis. Hún var jafnframt sektuð um 390 dollara, rúmlega 27 þúsund krónur fyrir athæfið. Erlent 22.1.2007 21:32
Fjölmargir látnir eftir átök í Gíneu Yfir tuttugu manns eru sagðir hafa látist og um hundrað særst í dag í átökum milli hersveita í Gíneu og stjórnarandstæðinga sem fara fram á afsögn Lansana Conte, forseta landsins. Allsherjarverkfall hefur verið í landinu í nærri tværi vikur og í dag tóku hátt í þrjátíu þúsund manns í mótmælagöngu á götum Cobakry, höfuðborgar Gíneu. Erlent 22.1.2007 21:20
Demókratar vilja Hillary, repúblíkanar Giuliani Flestir demókratar í Bandaríkjunum vilja Hillary Clinton sem forsetaefni flokksins á næsta ári. Helstu andstæðingar hennar innan flokksins eru ekki hálfdrættingar á við hana, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Washington Post. Repúblíkanar vilja helst fá fyrrverandi borgarstjóra New York í slaginn eða helsta andstæðing Bush frá árinu 2000. Erlent 22.1.2007 19:00