Erlent Íslendingar taldir tengjast barnaklámshring í Austurríki Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur, síðan um áramótin, rannsakað mál þriggja Íslendinga sem taldir eru tengjast barnaklámhring í Austurríki. Erlent 7.2.2007 19:30 7 bréfasprengjur á Bretlandseyjum Breska lögreglan greindi frá því í dag að sjö bréfasprengjur hafi verið sendar á Bretlandseyjum undanfarnar þrjár vikur. Ein slík sprakk í Wales í dag og særði þrjá en það er fjórða sprengjan sem springur á fimm dögum. Erlent 7.2.2007 19:13 Bræður vilja ekki berjast Bræður hafa barist á banaspjótum í Palestínu síðustu vikur og mánuði og mannfall verið mikið. Forvígismenn fylkinga Hamas og Fatah reyna að stilla til friðar. Palestínskir bræður, sem fylgja sitt hvorri fylkingunni, særðust í sömu árásinni fyrir nokkrum dögum. Þeir segjast berjast fyrir bandamenn sína en samt geti þeir aldrei miðað byssu hvor á annan. Erlent 7.2.2007 19:09 Reyndu að fella internetið Óþekktir tölvuþrjótar reyndu í gær að ráða niðurlögum þeirra 13 tölva sem sjá um að stjórna stórum hluta umferðar á internetinu. Árásin stóð yfir í rúmar tólf klukkustundir og virtist koma frá Suður-Kóreu. Milljónir tölva um allan heim, sem sýktar voru með vírusum sem gerðu tölvuþrjótum kleyft að ná stjórn á þeim, voru notaðar í árásinni. Erlent 7.2.2007 18:42 Dönsku fríblöðin höggva skörð í lestur hinna Fríblöðin í Danmörku virðast hafa haft talsverð áhrif á blöðin sem fyrir voru. Miðað við janúar á síðasta ári, hefur Berlingske Tidende misst tíu prósent lesenda sinna, Jyllandsposten um 16 prósent sinna lesenda og Århus Stiftstidende heil 29 prósent. Aðeins Politiken virðist hafa staðið af sér hrinuna, en þar fjölgaði lesendum um tvö prósent. Erlent 7.2.2007 16:41 Royal sögð köld og sjálfselsk Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista í forsetakosningunum í Frakklandi, fær ekki góða einkunn í bók sem fyrrverandi aðstoðarkona hennar hefur skrifað. Evelyne Pathouot vann fyrir Royal 1997-1997 og hefur átt í málaferlum við hana út af vangoldnum launum. Hún vinnur nú hjá einum þingmanna franska hægri flokksins UMP. Erlent 7.2.2007 15:40 Danir undrandi á hjónabandi Alexöndru Alexandra prinsessa, fyrrverandi eiginkona Jóakims Danaprins, ætlar að gifta sig aftur hinn 3. mars næstkomandi. Með því slitna öll tengsl hennar við dönsku konungsfjölskylduna. Eiginmaður hennar verður hinn 27 ára gamli ljósmyndari Martin Jörgensen. Margir Danir eru furðu lostnir yfir þessari ákvörðun prinsessunnar. Erlent 7.2.2007 14:53 Saka Al Jazeera um undirróður Erlent 7.2.2007 14:24
Íslendingar taldir tengjast barnaklámshring í Austurríki Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur, síðan um áramótin, rannsakað mál þriggja Íslendinga sem taldir eru tengjast barnaklámhring í Austurríki. Erlent 7.2.2007 19:30
7 bréfasprengjur á Bretlandseyjum Breska lögreglan greindi frá því í dag að sjö bréfasprengjur hafi verið sendar á Bretlandseyjum undanfarnar þrjár vikur. Ein slík sprakk í Wales í dag og særði þrjá en það er fjórða sprengjan sem springur á fimm dögum. Erlent 7.2.2007 19:13
Bræður vilja ekki berjast Bræður hafa barist á banaspjótum í Palestínu síðustu vikur og mánuði og mannfall verið mikið. Forvígismenn fylkinga Hamas og Fatah reyna að stilla til friðar. Palestínskir bræður, sem fylgja sitt hvorri fylkingunni, særðust í sömu árásinni fyrir nokkrum dögum. Þeir segjast berjast fyrir bandamenn sína en samt geti þeir aldrei miðað byssu hvor á annan. Erlent 7.2.2007 19:09
Reyndu að fella internetið Óþekktir tölvuþrjótar reyndu í gær að ráða niðurlögum þeirra 13 tölva sem sjá um að stjórna stórum hluta umferðar á internetinu. Árásin stóð yfir í rúmar tólf klukkustundir og virtist koma frá Suður-Kóreu. Milljónir tölva um allan heim, sem sýktar voru með vírusum sem gerðu tölvuþrjótum kleyft að ná stjórn á þeim, voru notaðar í árásinni. Erlent 7.2.2007 18:42
Dönsku fríblöðin höggva skörð í lestur hinna Fríblöðin í Danmörku virðast hafa haft talsverð áhrif á blöðin sem fyrir voru. Miðað við janúar á síðasta ári, hefur Berlingske Tidende misst tíu prósent lesenda sinna, Jyllandsposten um 16 prósent sinna lesenda og Århus Stiftstidende heil 29 prósent. Aðeins Politiken virðist hafa staðið af sér hrinuna, en þar fjölgaði lesendum um tvö prósent. Erlent 7.2.2007 16:41
Royal sögð köld og sjálfselsk Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista í forsetakosningunum í Frakklandi, fær ekki góða einkunn í bók sem fyrrverandi aðstoðarkona hennar hefur skrifað. Evelyne Pathouot vann fyrir Royal 1997-1997 og hefur átt í málaferlum við hana út af vangoldnum launum. Hún vinnur nú hjá einum þingmanna franska hægri flokksins UMP. Erlent 7.2.2007 15:40
Danir undrandi á hjónabandi Alexöndru Alexandra prinsessa, fyrrverandi eiginkona Jóakims Danaprins, ætlar að gifta sig aftur hinn 3. mars næstkomandi. Með því slitna öll tengsl hennar við dönsku konungsfjölskylduna. Eiginmaður hennar verður hinn 27 ára gamli ljósmyndari Martin Jörgensen. Margir Danir eru furðu lostnir yfir þessari ákvörðun prinsessunnar. Erlent 7.2.2007 14:53
Skaut ítalskan leyniþjónustumann Ítalskur dómari hefur fyrirskipað að bandarískur hermaður skuli leiddur fyrir rétt fyrir að skjóta ítalskan leyniþjónustumann til bana í Írak. Tveir Ítalskir leyniþjónustumenn voru á leið út á flugvöllinn í Bagdad, með ítalska konu sem þeir höfðu fengið lausa úr gíslingu. Bandarískir hermenn segja að bílnum hafi verið ekið á ofsahraða að bandarískri varðstöð við flugvöllinn, og því hafi verið skotið á hann. Erlent 7.2.2007 13:51
Sjö bréfasprengjur sendar í Lundúnum Breska lögreglan segir að sjö bréfasprengjur hafi verið sendar þar í landi undanfarnar þrjár vikur, og hvetur fólk til þess að gæta sín í umgengni við póst. Þrír hafa slasast af bréfasprengjum í þessari viku, en ekki hefur verið skýrt opinberlega frá hinum fjórum fyrr en núna. Erlent 7.2.2007 13:26
Barnaklámsrassía á vegum austurrísku lögreglunnar Lögregla í Austurríki gerði í gær rassíu hjá alþjóðlegum barnaklámhring í samstarfi við lögreglu í 77 öðrum ríkjum. Alls er 2361 grunaður um aðild að hringnum. Enginn hefur verið handtekinn en tölvur þeirra grunuðu hafa verið haldlagðar. Erlent 7.2.2007 11:51
Khodorkovsky segir nýjar ákærur pólitískar Olíujöfurinn Mikhail Khodorkovsky segir nýjar ákærur á hendur honum til þess ætlaðar að koma í veg fyrir að hann losni fyrr úr fangelsi og blandi sér í stjórnmál. Hann segir þessar áætlanir kokkaðar upp í Kreml þar sem Vladímír Pútín ræður ríkjum. Erlent 7.2.2007 11:35
Búist við miklum snjó á Bretlandseyjum Búist er við umferðaröngþveiti á Bretlandseyjum í fyrramálið en spáð er snjóstormi í nótt. Búist er við allt að 15 sentímetrum af snjó falli sumstaðar. Þjóðvegaeftirlitið er með 400 saltbíla í viðbragðsstöðu og verður allt gert sem hægt er til að greiða fyrir umferð. Erlent 7.2.2007 11:14
Hætta ekki fyrr en niðurstaða fæst Mahmoud Abbas forseti Palestínu hóf viðræður sínar við Khaled Meshaal leiðtoga Hamas í morgun með þeim orðum að viðræðunum yrði ekki slitið fyrr en fylkingar Fatah og Hamas kæmust að sameiginlegri niðurstöðu. Ráðlagt er að viðræðurnar standi í tvo daga en Abdullah konungur Sádí-Arabíu miðlar málum fylkinganna. Erlent 7.2.2007 10:44
Enn ein bréfsprengjan á Englandi Kona var flutt á sjúkrahús eftir að bréfasprengja sprakk á skrifstofu ökutækjaskrár í Swansea í Wales í morgun. Þetta er í þriðja sinn á jafn mörgum dögum sem bréfasprengja springur á Bretlandseyjum. Ein kona slasaðist þegar bréfsprengja sprakk á skrifstofu í Lundúnum í fyrradag og tveir voru fluttir undir læknishendur þegar önnur sprengja sprakk í skrifstofubyggingu í Berkshire í suðurhluta Englands í gær. Enginn hefur týnt lífi í sprengingunum. Breska lögreglan segir enn of snemmt að segja til um hvort málin þrjú tengist. Erlent 7.2.2007 10:14
Innanríkisráðherra Póllands segir af sér Innanríkisráðherra Póllands, Ludwik Dorn hefur sagt af sér. Afsögn hans er liður í endurskipulagningu á ríkisstjórn Jaroslaw Kaczynski forsætisráðherra. Dorn er að auki einn fjögurra varaforsætisráðherra landsins en hann ætlar áfram að gegna því embætti. Erlent 7.2.2007 09:59
Hitabeltisstormur í Ástralíu Hitabeltisstormurinn Nelson angrar nú íbúa í Queensland í Ástralíu og hefur þegar valdið eignaspjöllum. Búist er við því að stormurinn fari vaxandi á næstu dögum og því hafa íbúar byrgt sig upp af mat og halda sig innandyra. Eitthvað var um að verslanir væru orðnar galtómar og því hefur verið brugðið á það ráð að senda þyrlur með neyðargögn á þau svæði þar sem mesta hættan er. Erlent 7.2.2007 09:37
Íranir saka Bandaríkjamenn um mannrán Íranir saka Bandaríkjamenn um að vera á bak við ránið á starfsmanni íranska sendiráðsins í Bagdad. Bandaríkjamenn hafa hinsvegar neitað að staðfesta að mannránið hafi yfir höfuð átt sér stað. Erlent 7.2.2007 09:15
Rostropovich á spítala Sellóleikarinn heimsfrægi Mstislav Rostropovich hefur verið lagður inn á spítala í Moskvu af ótilgreindum ástæðum. Rostropovich, sem er 79 ára gamall er af mörgum talinn einn allra fremsti sellóleikari síðustu aldar auk þess sem hann er mikill baráttumaður fyrir mannréttindum. Erlent 7.2.2007 08:38
Bílaframleiðendur þurfa að minnka koltvíoxíðsútblástur Evrópuráðið ætlar að skylda bílaframleiðendur til að minnka útblástur nýrra bíla á koltvíoxíði um 18% fyrir árið 2012. Talsmaður ráðsins segir það stefna að því að minnka mengun bíla samtals um fjórðung. Til þess að ná þessum markmiðum þarf að þróa bílvélar þannig að þær eyði minna eldsneyti auk þess sem stefnt er að auknum hluta vistvænnar orku og þróun dekkja sem slitna mun minna. Erlent 7.2.2007 08:26
Flóðin í Indónesíu í rénun Flóðin í Indónesíu eru nú í rénun og þúsundir íbúa höfuðborgarinnar Jakarta hafa snúið aftur til síns heima. Um 300 þúsund íbúar Jakarta neyddust til að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna og að minnsta kosti 50 dóu. Erlent 7.2.2007 07:57
Óöld í Acapulco Sjö lögreglumenn féllu í árás byssumanna á ferðamannaborgina Acapulco í Mexíkó í gærkvöldi. Fjöldi fólks þar að auki særðist í árásinni. Byssumennirnir réðust á sitthvora lögregluvarðstöðina. Erlent 7.2.2007 07:39
Segir vesturveldin bera ábyrgðina Luis Lula forseti Brasilíu sakar iðnríkin um að hafa alls ekki gert nóg til að hamla losun gróðurhúsalofttegunda og hlýnun jarðar. Í ræðu sem forsetinn hélt í Rio de Janero í gær sagði hann að stórveldin ættu ekkert með að predika yfir Brasilíumönnum um hvað þeir ættu að gera við regnskóginn í Amasón og kallaði það tvöfalt siðgæði. Erlent 7.2.2007 07:31
Vonast til að mynda þjóðstjórn í Mekka Fulltrúar beggja stríðandi fylkinga Palestínumanna, Hamas og Fatah eru nú í Mekka í Sádí-Arabíu þar sem viðræður fylkinganna um myndun þjóðstjórnar fara fram. Erlent 7.2.2007 07:20
Þriðja tilraunin til að lægja ófrið í Írak Írakar tóku yfir stjórn á öryggisgæslu í Bagdad á mánudaginn í samræmi við nýja aðgerðaáætlun íraskra og bandarískra stjórnvalda til að koma á friði í Írak. Tvær fyrri tilraunir til þess hafa mistekist á undanförnum níu mánuðum. Erlent 7.2.2007 06:15
Salmonellufaraldur í Svíþjóð Meira en 100.000 hænum og kjúklingum hefur verið slátrað í suðurhluta Svíþjóðar til að stemma stigu við því sem talið er vera stærsti salmonellufaraldur í alifuglum í áratug. Erlent 7.2.2007 06:00
Önnur bréfasprengja barst Tveir slösuðust og bygging var rýmd þegar bréfasprengja, að því er talið er, sprakk í Wokingham, vestur af London, í gærmorgun. Daginn áður slasaðist kona þegar bréfasprengja sprakk í öðru fyrirtæki í miðborg London. Erlent 7.2.2007 05:00
Sökk til botns út af Jótlandi Sovéskur kafbátur frá Kaldastríðsárunum sökk út af ströndum Jótlands á mánudag. Kafbáturinn var bæði mannlaus og vopnlaus og átti að fara á safn í Taílandi. Erlent 7.2.2007 04:15
Peningafalsarar teknir í Bosníu Hald var lagt á yfir 200.000 falsaða peningaseðla í samhæfðri aðgerð lögreglu frá fimm Evrópulöndum í bænum Banja Luka í serbneska hluta Bosníu-Herzegovínu. Níu manns voru handteknir þar og tveir til viðbótar í nágrannalandinu Króatíu. Erlent 7.2.2007 03:30
Palestínumenn mótmæla af hörku Tugir lögreglumanna fylgdust með þegar ísraelskri jarðýtu var ekið upp að múrum musterishæðarinnar í Jerúsalem þar sem fornleifagröftur hefur staðið yfir. Erlent 7.2.2007 03:00