Erlent
Opinberir starfsmenn brjóta lög um barneignir Yfirvöld í Hunansýslu í Kína segja að á árunum 200-2005 hafi næstum því tvö þúsund opinberir starfsmenni brotið bannið við því að eignast fleiri en eitt barn. Einn starfsmannanna átti fjögur börn með fjórum hjákonum sínum. Banninu er ætlað að draga úr fólksfjölgun í Kína, þar sem íbúar eru nú þegar á annan milljarð. Erlent 8.7.2007 17:35
Ný undur veraldar valin Þau eru tignarleg nýju undrin sjö sem valin voru þau mikifenglegustu í veröldinni gjörvallri í netkosningu sem lauk í gær. Úrslitin voru kunngjörð í gærkvöldi. Erlent 8.7.2007 12:25
130 manns hið minnsta féllu Að minnst kosti 130 manns féllu og 240 særðust í sjálfsvígssprengjuárás í Amirli í Norður-Írak í gær. Árásin eru sú mannskæðasta í Írak í 3 mánuði. Erlent 8.7.2007 12:19
Ástralir vara við hryðjuverkum Áströlsk yfirvöld vara þegna sína við því að ferðast til Indónesíu vegna hryðjuverkahættu. Utanríkisráðuneytið varar ferðamenn sérstaklega við stöðum á borð við Bali og Jakarta sem það telur vera líkleg skotmörk. Sprengingar á næturklúbbum á Balí árið 2002 urðu 202 að aldurtila, þar af 88 áströlum. Erlent 8.7.2007 10:54
Eistlendingar heimsmeistarar í eiginkonuburði Eistlendingar nældu sér bæði í gull og silfurverðlaun á tólfta árlega heimsmeistaramótinu í eiginkonuburði í Finnlandi í gær. Þurftu keppendur að berjast við slagviðri og ofþreytu þar sem þeir klóruðu sig í gegnum 250 metra langa braut sem var alsett hindrunum og pollum, með eiginkonuna á bakinu. Sigurverarnir hlutu plasmasjónvarp og þyngd eiginkonunnar í bjór í verðlaun. Fjörtíu og fjögur pör tóku þátt í keppninni sem fór fram í bænum Sonkajarvi. Erlent 8.7.2007 10:16
Live Earth lauk í nótt Live Earth tónleikunum lauk í New Jersey í Bandaríkjunum í nótt þegar söngvarinn Sting og hljómsveit hans The Police stigu á svið og skemmtu gestum. Erlent 8.7.2007 10:14
130 látnir í sjálfsvígsárás Að minnst kosti 130 manns týndu lífi og 240 særðust í sjálfsvígssprengjuárás í Amirli í Norður-Írak í gær. Tuttugu borgarar eru enn týndir og óttast er að þeir hafi einnig látið lífið í árásinni sem er sú mannskæðasta í Írak síðan í apríl. Erlent 8.7.2007 10:11
Ofursti féll í átökum við Rauðu Moskuna Ofursti í pakistanska hernum féll í átökum við rótæka stúdenta við Rauðu moskuna í Íslamabad, höfuðborg Pakistans, í morgun. Skotið var á ofurstann þar sem hann leiddi herdeild sem var gert að sprengja gat á vegg moskunnar svo hægt yrði að frelsa hundruð kvenna og barna sem haldið er þar inni. Erlent 8.7.2007 10:10
Ný sjö undur heims Kínamúrinn, klettaborgin Petra í Jórdaníu, Kristsstyttan í Rio De Janeiro og hringleikahúsið í Róm eru meðal nýrra sjö undra heimsins. Hin þrjú eru fjallaborgin Macchu Picchu, Taj Mahal og forna Mayaborgin Chicken Itza. Erlent 8.7.2007 10:09
Láta tvö hundruð og fimmtíu Palestínumenn lausa Ísraelska ríkisstjórnin samþykkti í morgun að láta tvö hundruð og fimmtíu Palestínumenn lausa úr fangelsi. Þetta er gert til að styrkja neyðarstjórn Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, sem skipuð var í síðasta mánuði eftir að liðsmenn Hamas tóku völdin á Gaza-ströndinni og ráku liðsmenn Fatah-hreyfingar Abbas þaðan. Erlent 8.7.2007 10:07
Baðherbergi þekur 3.000 m² Yfirvöld í Chongqing í suðvesturhluta Kína hafa opnað stærsta baðherbergi heims, sem þekur yfir þrjú þúsund fermetra á fjórum hæðum og inniheldur meira en þúsund klósett. Erlent 8.7.2007 01:30
Hringdi 300 sinnum í 911 Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa haft hendur í hári fjögurra ára stúlku sem hringdi tæplega þrjú hundruð sinnum í neyðarlínuna 911 í júní. Erlent 8.7.2007 00:45
Um hundrað hafa slasast Einn var stangaður í rassinn og 96 hlutu minniháttar meiðsl í nautahlaupinu í Pamplona á Spáni í gær. Að sögn spænskra yfirvalda hafa engir þátttakendur hlotið alvarleg meiðsl. Erlent 8.7.2007 00:30
Íslendingar hiti hugsanlega Ólympíuþorpið Svo gæti farið að íslenskum orkufyrirtækjum yrði falið að sjá um að hita Ólympíuþorpið sem byggt verður fyrir vetrarólympíuleikanna í Sochi í Rússlandi 2014. Möguleikinn var ræddur á fundi í Moskvu fyrir helgi. Erlent 7.7.2007 19:23
Vináttusamningur undirritaður Loftferðasamningur milli Íslands og Moskvuborgar var meðal þess sem borgarstjórinn í Reykjavík ræddi á fundi sínum með borgarstjóra í Moskvu í vikunni. Vináttusamningur milli borganna var undirritaður við það tækifæri. Erlent 7.7.2007 19:15
Stórstjörnur stigu á stokk Stórstjörnur hafa stigið á stokk í öllum álfum í dag til að vekja athygli á þeirri hættu sem steðjar að heiminum vegna loftslagsbreytinga. Live Earth tónleikar vour haldnir í níu stórborgum til styrktar umhverfinu. Erlent 7.7.2007 19:05
14 skólabörn látast í rútuslysi í Indónesíu Minnst 14 létust og 48 slösuðust þegar rúta steyptist tuttugu metra niður í gil á indónesísku eynni Jövu í dag. Flestir hinna látnu voru grunnskólanemar á leið í skólaferðalag. Bremsur rútunnar biluðu þegar bílstjórinn reyndi að taka fram úr öðru ökutæki á miklum hraða. Hann keyrði á þrjá bíla og tvö mótorhjól áður en hann steyptist niður í gilið. Rútan var ein af fimmtán sem fluttu nemendurna, foreldra þeirra og kennara til Ciobus, sem er vinsæll ferðamannastaður í fjalllendi Vestur-Jövu. Erlent 7.7.2007 18:23
Fimm sárir eftir skotárás í spilavíti Fimm særðust þegar maður hóf skothríð í New York-New York spilavítinu í Las Vegas upp úr hádegi í gær. Að sögn lögreglu hafði maðurinn ráfað um nálægar götur í einn og hálfan sólarhring áður en hann lét til skarar skríða. Hún lýsti manninum sem alvarlega tilfinningalega trufluðum. Erlent 7.7.2007 14:51
Live Earth í dag Þekktir tónlistarmenn rokka víða um heim í dag og vilja með tónlist sinni vekja athygli á loftslagsmálum. Tónleikar þar sem hver stórstjarnan kemur fram á fætur annarri eru haldnir í níu borgum í öllum álfum heims og voru það Ástralir og Kínverjar sem hófu leikinn í nótt. Erlent 7.7.2007 12:36
Brotið gegn trú- og samviskufrelsi í Noregi Norska ríkið braut á rétti barna til að fá tilhlýðilega menntun með kennslu í kristinfræði, trúfræði og lífsskoðunum. Þetta var niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu í Strasborg á dögunum. Siðmennt á Íslandi segir að dómurinn renni stoðum undir gagnrýni félagsins hér á landi. Erlent 7.7.2007 12:32
Krefst þess að bresk stúlka verði látin laus Umaru Yar'Adua, forseti Nígeru, hefur krafið mannræningja þar í landi um að láta þriggja ára breska stúlku lausa án tafar en henni var rænt í vikunni. Hann hefur skipað öryggissveitum að tryggja að henni verið skilað heilu og höldnu til foreldra sinna. Móðir stúlkunnar segir mannræningjana hafa hótað að myrða hana ef þeir fái ekki föður hennar í skiptum fyrir hana. Erlent 7.7.2007 12:27
Læknir leiddur fyrir dómara Íraski læknirinn Bilal Abdullah var í morgun leiddur fyrir dómara í Lundúnum og ákærður fyrir aðild að hryðjuverkaárás á Glasgow-flugvelli fyrir viku. Hann var einnig ákærður fyrir að hafa átt þátt í að skipuleggja sprengjutilræði í Lundúnum degi áður. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. júlí. Erlent 7.7.2007 12:14
Tvö ár frá hryðjuverkunum í London Tvö ár eru í dag liðin frá sjálfsmorðssprengjutilræðunum í London og var þessa minnst í dag. Fimmtíu og tveir létust þegar hryðjuverkamenn sprengdu sig í loft upp í þremur neðanjarðarlestum og einum strætisvagni á háannatíma. Fleiri en 700 særðust í árásunum sem eru þær mannskæðustu sem gerðar hafa verið í Bretlandi. Síðan þá hafa öryggissveitir flett ofan af mörgum tilraunum til hryðjuverka í Bretlandi nú síðast tilraunum til að sprengja upp bíla í London og Glasgow. Erlent 7.7.2007 12:06
Einn lést og þrír særðust í Írak Að minnsta kosti einn breskur hermaður týndi lífi og þrír særðust í árás á búðir andspyrnumanna í borginni Basra í Suður-Írak í morgun. Áhlaupið var það umfangsmesta sem breska herliðið í Írak hefur skipulagt og staðið fyrir á þessu ári. Um eitt þúsund breskir hermenn tóku þátt í aðgerðinni og voru þyrlur og herflugvélar hermönnum á jörðu niðri til stuðnings. Talsmaður breska hersins segir fjölmarga grunaða andspyrnumenn hafa verið handtekna. Til átaka hefur komið í borginni síðustu vikur þar sem nokkrir hópar sjía-múslima berjast um völdin í Basra og nágrenni þar sem mikið af olíu er að finna. Rúmlega hundrað og fimmtíu breskir hermenn hafa fallið í Írak frá innrásinni í landið 2003. Erlent 7.7.2007 10:21
Forseti Nígeríu krefst lausnar breskrar stúlku Forseti Nígeríu, Umaru Yar'Adua, hefur krafist þess að mannræningjar sem hafa þriggja ára breska stúlku í haldi sleppi henni tafarlaust. Erlent 7.7.2007 10:20
Live Earth hófst í nótt Tónleikaröðin Live Earth, sem ætlað er að vekja athygli á loftslagsbreytingum, hófst í Tokyo í Japan og Sydney í Ástralíu í nótt. Helstu stórstjörnur í tónlistarheiminum koma fram á tónleikunum sem haldnir eru í níu borgum fram eftir degi og langt fram á kvöld. Erlent 7.7.2007 10:19
Annar grunaðra hryðjuverkamanna leiddur fyrir dómara Íraski læknirinn Bilal Abdullah verður leiddur fyrir dómara í Lundúnum í dag fyrir þátt sinn í hryðjuverkaárásinni á Glasgow-flugvöll fyrir viku og að hafa skipulagt sprengutilræði í Lundúnum degi áður. Erlent 7.7.2007 10:17
Bíll valt í Mosfellsbæ Fólksbíll valt á Hafrarvatnsvegi við Mosfellsbæ í snemma í nótt. Þrír karlmenn á tvítugsaldri voru í bílnum og hlutu minniháttar meiðsl. Þeir voru fluttir til skoðunar á slysadeild. Grunur er um ölvun. Erlent 7.7.2007 10:04
Vilja ekki sígaunana Innflutningur Roma-sígauna talinn vandamál í Róm. Borgarstjóri Rómar reynir að fækka sígaununum. Yfirvöld hafa sent fyrsta Rúmenann heim. Erlent 7.7.2007 03:30
Stúlkur fá mun minni menntun Stúlkur eru langt á eftir drengjum í heiminum hvað varðar grunnmenntun, samkvæmt skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum. Erlent 7.7.2007 03:00