Erlent
Larry Craig ætlar að segja af sér Bandaríski öldungardeildarþingmaðurinn Larry Craig mun segja af sér á morgun í kjölfar þess að upp komst um handtöku hans fyrr í sumar. CNN greinir frá þessu og segir að Craig muni hverfa úr embætti 30. september næstkomandi. Erlent 31.8.2007 23:37
Loftsteinn gæti lent á jörðinni árið 2036 Loftsteinn gæti lent á jörðinni innan tíðar, eða árið 2036, gangi spár sumra vísindamanna eftir. Verið er að vinna að áætlunum til þess að koma í veg fyrir að steinninn, Apophis, skelli á jörðinni og eru há verðlaun í boði fyrir bestu hugmyndina. Erlent 31.8.2007 20:13
Hermaður svarar til saka fyrir fjöldamorð í Írak Bandarískur hermaður svarar nú til saka fyrir morð á sautján óbreyttum íröskum borgurum, sem voru skotnir til bana á eða við heimili sín í Írak fyrir tveimur árum. Á meðan deila bandarískir stjórnmálamenn um veru Bandaríkjahers í Írak. Erlent 31.8.2007 18:59
Sprengjutilræði við Kabúlflugvöll - Íslendingar ómeiddir Þrettán Íslendingar sluppu ómeiddir þegar árás var gerð á Kabúl flugvöll í morgun með þeim afleiðingum að tveir hermenn létust og fjöldi særðist. Erlent 31.8.2007 18:55
Enn eitt unglingamorðið í Lundúnum 17 ára drengur var stunginn til bana í Lundúnum í gær. Þetta er enn eitt morðið í höfuðborginni þar sem unglingar koma við sögu en lögregla hefur handtekið tvo 16 ára drengi vegna málsins. Ekki er talið að morðið tengist unglingagengjunum í borginni. Erlent 31.8.2007 18:29
Bótakröfur á hendur bullu um 100 milljónir króna Danska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að höfða skaðabótamál á hendur fótboltabullunni sem hljóp inn á völlinn í leik Svía og Dana í júní síðastliðnum og réðst á dómara leiksins. Bótakrafan hljóðar upp á um 20 milljónir íslenskra króna og bætist við um 80 milljóna króna kröfu rekstraraðila Parken sem sett var fram fyrr í vikunni. Erlent 31.8.2007 16:43
Foreldrar Madeleine í mál við portúgalska fjölmiðla Foreldrar Madeleine McCann ætla að höfða meiðyrða mál gegn portúgölsku blaði sem hélt því fram að þau hafi myrt dóttur sína. Samskipti Gerrys og Kate McCann við fjölmiðla hafa versnað stöðugt undanfarnar vikur. Margir portúgalskir fjölmiðlar vilja gera þau ábyrg fyrir hvarfi dótturinnar. Annaðhvort vegna vanrækslu eða vegna þess að þau hafi hreinlega sjálf orðið henni að bana. Erlent 31.8.2007 15:22
Ég er svo ánægður að vera hérna uppá konunni minni Stjórnmálamenn og stjórnarerindrekar þurfa að tjá sig í mörgum löndum. Það eru auðvitað töluð misjöfn tungumál í þessum löndum og það kemur fyrir að boðskapurinn brenglast í þýðingunni. Richard Woolcott sem stýrði ástralska utanríkisráðuneytinu í mörg ár rifjar upp skemmtilegar þýðingarvillur í endurminningum sem hann hefur skrifað um þetta tímabil. Erlent 31.8.2007 14:26
Norskur hvalfangari sökk við bryggju Þrjátíu metra norskur hvalbátur sökk við bryggju i Svolvær í Lofoten síðastliðna nótt. Enginn var um borð. Lögreglan útilokar ekki að unnið hafi verið skemmdarverk. Tilkynning barst um það um hálf þrjú í nótt að Willassen Senior væri að sökkva. Björgunarlið var sent á vettvang. Erlent 31.8.2007 13:25
Gíslar fara heim á leið í dag Talibanar í Afganistan hafa nú leyst síðustu suður-kóresku gíslana sína úr haldi og búist er við að gíslarnir fljúgi heim í dag. Erlent 31.8.2007 12:47
Bretar minnast Díönu prinsessu Tíu ár eru í dag liðin frá því Díöna prinsessa af Wales lést í bílslysi í París, og verða minningarathafnir haldnar um hana víðsvegar um Bretland í dag. Erlent 31.8.2007 12:26
Vona að hundkvikindið drepist fljótlega Fyrrverandi þjónustustúlka hjá hóteldrottningunni Leonu Helmsley er ákaflega glöð yfir að hún skuli nú hafa safnast til feðra sinna. Hún segir að nú verði Leona að svara til saka hjá Guði. Og þjónustustúlkan vonar að hundkvikindið Trouble drepist líka sem allra fyrst. Trouble erfði mörghundruð milljónir króna eftir húsmóður sína. Erlent 31.8.2007 11:39
Bremsulausir Færeyingar Flugvél frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways fór út af brautinni í flugtaki frá Færeyjum í morgun. Engan sakaði. Vélin var á leið frá Þórshöfn til Lundúna. Flugmennirnir hættu við flugtak þegar þeir uppgötvuðu að hemlabúnaður virkaði ekki sem skyldi. Hemlabilanir virðast vera viðvarandi vandamál hjá þessu flugfélagi. Erlent 31.8.2007 11:21
Ríkasti maður Noregs bak við lás og slá Kjell Inge Rökke, ríkasti maður Noregs dvelur nú í fangelsi og verður þar næstu 30 dagana. Rökke hlaut fangelsisdóminn fyrir að hafa mútað skipaeftirlitsmanni í tengslum við lúxussnekkju sína og útgáfu á haffærnisskírteini árið 2001. Erlent 31.8.2007 10:58
Fram með kústinn kerlíng Alþjóðleg rannsókn hefur leitt í ljós að kvæntir karlmenn taka umtalsvert minni þátt í húsverkunum en karlmenn sem eru í sambúð. Könnuðir við fylkisháskólann í Norður-Karólínu töluðu við yfir 17 þúsund manns í 28 löndum til þess að komast að þessari niðurstöðu. Erlent 31.8.2007 10:52
Stal brú í heilu lagi Rússneska lögreglan hefur haft hendur í hári manns sem stal brú í heilu lagi í Ryazan héraði austan við Moskvu. Brúin var úr stáli, tvíbreið og fimm metra löng. Maðurinn skrúfaði hana í sundur og hlóð henni á trukkinn sinn. Svo fór hann með hana og seldi hana í brotajárn. Lögreglan í Ryazan héraði segir að þetta sé umfangsmesti þjófnaður ársins. Erlent 31.8.2007 10:17
Beint frá minningarathöfn um Díönu prinsessu Bein útsending verður á Vísi klukkan 11 frá minningarathöfn um Díönu prinsessu af Wales en í dag eru tíu ár síðan hún lést í bílslysi í París. Minningarathöfnin þar sem synir Díönu, þeir Harry og Vilhjálmur verða viðstaddir ásamt Karli Bretaprins fer fram í Guards Chapel í Lunúnum. Erlent 31.8.2007 10:09
Fljúgandi diskur á markað fljótlega Fljúgandi diskar eru ekki lengur vísindaskáldskapur, en nú styttist í að fyrsti diskurinn fyrir almenning fari á markað. Tækið, sem kallast M200g, verður sett í almenna sölu eftir nokkra mánuði. Fyrirtækið sem framleiðir diskinn, Moller International, vonast til að selja um 250 stykki á ári. Erlent 31.8.2007 08:05
Pakistönsk yfirvöld mótmæla Múhameðsteikningum Pakistönsk yfirvöld kölluðu ræðismann Svíþjóðar á sinn fund í gær til að mótmæla formlega óviðeigandi teikningum af Múhameð spámanni sem birtust í sænsku dagblaði fyrir tæpum tveimur vikum. Erlent 31.8.2007 07:26
Ellefu látnir að minnsta kosti í lestarslysi í Ríó Að minnsta kosti ellefu létu lífið og 63 slösuðust þegar yfirfull lest skall á aðra í úthverfi brasilísku borgarinnar Rio de Janeiro í dag. Yfir hundrað björgunarmenn voru á staðnum og óttast slökkviliðsmenn að fleiri hafi látist. Erlent 30.8.2007 22:47
Annar leikari í forsetaembættið? Fred Thompson ætlar að tilkynna um framboð sitt sem forsetaefni rebúblikana í næstu viku. Thompson er sennilega betur þekktur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Law and Order. Lengi hefur verið talið að Thompson myndi bjóða sig fram og nýtur hann nokkurs fylgis, sérstaklega í grasrót flokksins. Erlent 30.8.2007 21:51
Skipverji sem var í haldi sjóræningja íhugaði sjálfsmorð Einn skipverjanna fimm sem eru nýkomnir til Danmerkur aftur, eftir að hafa verið á valdi sjóræningja í þrjá mánuði, segist oft hafa íhugað að fremja sjálfsmorð þennan tíma. Útgerðin hefur lítið viljað koma til móts við skipverjana en hefur boðist til að endurnýja farsíma þeirra. Erlent 30.8.2007 19:39
Skógareldarnir í Grikklandi í rénun Svo virðist sem skógareldarnir í Grikklandi séu í rénun. Yfirvöld eru þó viðbúin því að eldurinn kunni að glæðast á ný á svæðum þar glatt hefur logað síðustu daga. Að minnsta kosti sextíu og fjórir hafa látist í skógareldunum. Erlent 30.8.2007 18:58
Blóðugar deilur mafíugengja Deilur ítalskra mafíugengja eru taldar ástæða þess að sex Ítalar voru myrtir í Þýskalandi fyrr í mánuðinum. Lögreglan á Ítalíu handtók í dag á fjórða tuga manna í tengslum við morðin. Erlent 30.8.2007 18:50
Viðbrögðin of hæg Fórnarlömb fjöldamorðanna við Virginía Tech-háskólann í Bandaríkjunum hefðu hugsanlega orðið mun færri ef yfirvöld hefðu brugðist skjótar við, samkvæmt nýrri rannsókn. Erlent 30.8.2007 18:34
Ný meðferð fyrir MS-sjúklinga Vísindamenn hafa lagt til að ný meðferð verði notuð gegn heila og mænusigg-sjúkdómnum (MS) sem felur í sér notkun á hormóninu estrógen. Meðferðin felst í því að estrógen-hormónið er notað til að bægja frá eða jafnvel snúa við einkennum sjúkdómsins án þess að til komi þær algengu hliðarverkanir sem hormónameðferðum fylgja. Erlent 30.8.2007 17:49
Rússar ólu á stríðsótta til þess að selja vopn Rússar gerðu hvað þeir gátu til þess að ala á stríðsótta í Ísrael og Sýrlandi í sumar, til þess að auka vopnasölu sína til Sýrlands, að sögn diplomatisku öryggisþjónustunnar í Ísrael. Snemma í sumar kom upp sá orðrómur að Sýrlendingar hyggðust endurheimta Golan hæðirnar með stríði á hendur Ísrael. Jafnframt var sagt frá liðssafnaði beggja ríkjanna við landamærin. Erlent 30.8.2007 17:09
Faldi nýfætt barn sitt í þvottakörfu Sextán ára stúlka er í haldi lögreglu eftir að lík nýfædds barns hennar fannst í þvottavél á heimili hennar í borginni Frankfurt an der Oder í austurhluta Þýskalands í gær. Erlent 30.8.2007 15:56
Íbúar norðurlanda 0,4 prósent af jarðarbúum Norðulandabúar eru orðnir rúmar 25 milljónir. Samkvæmt tölum frá norrænu hagstofunum búa rúmlega 9 milljón manns í Svíþjóð, í Danmörku og Finnlandi rúmlega 5 milljónir og tæplega 5 milljónir í Noregi. Rúmlega 300 þúsund manns búa á Íslandi, á Grænlandi búa rúmlega 50.000 manns og tæplega 50.000 í Færeyjum. Á Álandseyjum búa 27.000 manns. Erlent 30.8.2007 14:54
Kanada fordæmir samninga við Talibana Utanríkisráðherra Kanada hefur gagnrýnt stjórnvöld í Suður-Kóreu harðlega fyrir að semja við Talibana í Afganistan um lausn gísla sem þeir tóku. Talibanar tóku 23 gísla frá Suður-Kóreu. Tveir þeirra voru myrtir en hinir hafa nú allir verið látnir lausir, eftir miklar samningaviðræður. Erlent 30.8.2007 14:45