Erlent
Féllu ofan í eiturefnalaug Níu létust í gær þegar gólfflötur í yfirgefnu húsi í miðhluta Kína lét undan með þeim afleiðingum að fólkið féll ofan í holu sem var full af blásýru. Fólkið var samankomið í húsinu til að ræða útför ungs pilts sem hafði fundist látinn í húsinu sama dag. Erlent 28.9.2007 09:34
Veirusýking greinist á búgarði á Englandi Breska landbúnaðarráðuneytið upplýsti í gær að greinst hefði hin svokallaða "Bluetongue" veirusýking á búgarði í Suffolk í austurhluta Englands. Er þetta fimmta tilfellið á afar stuttum tíma sem veiran greinist á Englandi. Erlent 28.9.2007 08:03
Hæstiréttur ákveður hvort Musharraf fái að bjóða sig fram Hæstiréttur Pakistans sker úr um í dag hvort Pervez Musharraf, forseti landsins, geti boðið sig fram til endurkjörs á meðan hann fer enn með yfirstjórn hersins. Erlent 28.9.2007 07:07
Hvetur til samstöðu gegn loftlagsbreytingum Condoleezza Rice,utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvetur þjóðir heims til að taka höndum saman í baráttunni gegn loftlagsbreytingum. Þetta kom fram í máli Rice á ráðstefnu sextán þjóða sem menga mest í heiminum sem haldin var Washington í gær. Erlent 28.9.2007 07:04
Danskir hermenn vilja berjast Danskir hermenn sækjast í síauknum mæli eftir því að verða fluttir til átakasvæða á borð við Afganistan og Íran. Það sem af er þessu ári hefur danski herinn fengið tuttugu og fimm prósent fleiri umsóknir frá ungum hermönnum sem vilja sinna herþjónustu á hættusvæðum. Erlent 28.9.2007 07:03
Óttast að fjöldi manns hafi látið lífið í Búrma Að minnsta kosti níu létu lífið í mótmælunum í Búrma í gærdag samkvæmt herforingjastjórninni þar í landi. Ástandið er afar ótryggt og er óttast að tala látinna sé mun hærri en yfirvöld vilja viðurkenna. Erlent 28.9.2007 07:00
Forystumaður stjórnar Mjanmar flúinn Fréttir berast nú um að höfuðforystumaður stjórnar Mjanmar, hershöfðinginn Than Shwe sé flúinn úr landi. Þessar upplýsingar kom frá Burmanefnd Noregs. Sé þetta rétt má reikna með að stjórn Myanmar sé nú í upplausn. Erlent 27.9.2007 23:12
Leigðu þyrlu undir köttinn Ítölsk hjón leigðu þyrlu fyrir um milljón kr. svo hægt væri að flytja heimilisköttinn frá Róm til eyjarinnar Sardínu. Þetta gerðui þau að sögn þar sem kötturinn, Fufi, er bæði flug- og sjóhræddur. Erlent 27.9.2007 20:52
Níu látnir í átökum í Mjanmar Herinn í Mjanmar réðst gegn andófsmönnum í dag með þeim afleiðingum að níu menn, að minnsta kosti, létu lífið og fjöldi manns særðist. Hermenn í óeirðabúningi standa vörð við gaddavírsgirðingar á götum stærstu borgar landsins og heyra mátti skothvelli þegar dimma tók. Erlent 27.9.2007 19:14
Níu látnir í Mjanmar í dag Níu manns létust og að minnsta kosti ellefu særðust í aðgerðum öryggissveita hersins í Yangon í Mjanmar í dag. Ríkissjónvarp landsins greindi frá þessu og sagði að 31 hermaður hefði slasast þegar mótmælendur reyndu að afvopna þá. Fregnir hafa borist að því að hermenn hafi skotið á fólkið og lamið með byssusköftum. Erlent 27.9.2007 14:17
Spector sóttur aftur til saka Kviðdómi í Bandaríkjunum mistókst að komast að niðurstöðu um það hvort hinn frægi tónlistarmaður Phil Spector hefði myrt leikkonuna Lönu Clarkson fyrir tæpum fimm árum. Erlent 27.9.2007 12:30
Þjóðheta Mjanmar - Aung San suu Kyi Líkt og Nelson Mandela hefur Aung San Suu Kyi orðið alþjóðlegt tákn hetjulegrar og friðsamlegrar andstöðu undirokunar og kúgunar. Í langan tíma hefur þessi baráttukona og leiðtogi Lýðræðisflokks landsins verið eina von landa sinna um að tímabil herstjórnarinnar líði einhvern tíman undir lok. Erlent 27.9.2007 12:23
Rekin fyrir reykingar eiginmannsins Bæjaryfirvöld í Óðinvéum í Danmörku ráku í gær dagmóður eftir að upp komst að eiginmaður hennar hafði reykt á heimili hjónanna þar sem hún passar börnin. Dagmóðirin sjálf hefur hins vegar aldrei reykt heima hjá sér. Erlent 27.9.2007 11:57
Fljúgandi elgur veldur usla Starfsmenn sænska símafyrirtækisins Telia fengu heldur betur óvænta heimsókn á föstudaginn í síðustu viku þegar elgur kom fljúgandi í gegnum glugga skrifstofunnar. Glerbrotum rigndi yfir starfsmenn og kalla þurfti á veiðimann til að aflífa dýrið. Erlent 27.9.2007 11:37
Mjanmar: Ljósmyndari skotinn til bana Erlendur ljósmyndari sem talinn er japanskur, var skotinn til bana í mótmælunum í Yangon í Mjanmar í dag. Fréttastofa Reuters hefur þetta eftir sjúkrahúsyfirvöldum á staðnum. Vitni segir manninn hafa fallið til jarðar þegar óeirðalögregla skaut að hópi eitt þúsund mótmælenda. Erlent 27.9.2007 11:14
Vilja banna nekt á Everest Samtök fjallgöngugarpa í Nepal vilja banna nekt og tilraunir til ruddalegra meta á Everest fjalli, stærsta fjalli heims. Nepalskur fjallgöngumaður setti met í hæstu nektarsýningu á síðasta ári þegar hann beraði sig í nokkrar mínútur á toppi fjallsins, í 8.848 metra hæð og tíu stiga gaddi. Erlent 27.9.2007 10:34
Herstjórnin skýtur að búddamunkum Hermenn herforingjastjórnarinnar í Myanmar skutu aftur að mómælendum í Rangoon stærstu borg landsins í morgun. Vitni segja einn hafa fallið í jörðina í skothríðinni. Talið er að um 70 þúsund manns mótmæli á götum borgarinnar. Hermennirnir ráðast einnig að fólkinu og berja það með byssusköftum. Erlent 27.9.2007 10:07
Átta falla á Gaza ströndinni Að minnsta kosti átta Palestínumenn féllu og tuttugu særðust í leifturárás ísraelska hersins á Gaza ströndina í gær. Erlent 27.9.2007 08:09
Frönsk herskip gegn sjóræningjum Frakkar hafa boðist til þess að senda herskip til að vernda sjóleiðina við strendur Sómalíu gegn árásum sjóræningja. Hafsvæðið úti fyrir Sómalíu er talið vera eitt það hættulegasta í heimi. Erlent 27.9.2007 08:03
Sakar Breta og Bandaríkjamenn um áróður Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, ásakar Bandaríkjamenn og Breta fyrir að reyna skapa ójafnvægi í landinum með hvers konar refsiaðgerðum og áróðri. Þetta kom fram í ræðu forsetans á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna gær. Erlent 27.9.2007 07:08
Tvö hundruð munkar handteknir í morgun Öryggisveitir á vegum herforingjastjórnarinnar í Búrma handtóku í morgun að minnsta kosti tvö hundruð búddamunka. Fimm voru skotnir í mótmælunum þar í landi í gær. Erlent 27.9.2007 07:06
Tveir danskir hermenn falla í bardaga Tveir danskir hermenn féllu og einn særðist þegar til bardaga kom milli hersveitar þeirra og Talibana í Helmand dalnum í suðurhluta Afganista í gær. Erlent 27.9.2007 07:02
Sprenging í aukasposlum til starfsmanna Skortur á vinnuafli í Danmörku hefur leitt til þess að sprenging hefur orðið í ýmsum aukasposlum fyrirtækja til starfsmanna sinna. Í umfjöllun blaðsins Berlingske Tidende um málið segir að hið nýjasta sé að starfsmenn fái stéttarfélagsgjöld sín greidd svo og matartíma sína. Erlent 26.9.2007 23:15
Öryggisráðið vill fulltrúa sinn til Myanmar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti á neyðarfundi sínum í kvöld að hvetja stjórnvöld í Myanmar til að leyfa sérstökum fulltrúa sínum, Ibrahim Gambari að heimsækja landið. Miklar og blóðugar mótmælaaðgerðir hafa verið í landinu gegn stjórnvöld undanfarna daga. Erlent 26.9.2007 22:43
Verkfallinu hjá GM lokið Verkfallinu hjá GM lauk í dag eftir aðeins tvo sólarhring og um leið stigu hlutabréf í fyrirtækinu um tæp 9% á markaðinum vestan hafs. Verkfallið var hið fyrsta hjá GM á síðustu rúmu 30 árum en það náði til um 73.000 verkamanna fyrirtækisins. Erlent 26.9.2007 20:28
Rather kallar Bush fyrir sem vitni Fréttamaðurinn þekkti Dan Rather lét að því liggja í spjallþætti í kvöld að hann myndi kalla George Bush Bandaríkjaforseta fyrir sem vitni í málaferlum sínum gegn CBS sjónvarpsstöðinni. Rather telur að uppsögn sín hjá CBS árið 2004 hafi verið ólögmæt en hún kom í kjölfar fréttar hans um brokkgengann feril Bush í þjóðvarðliði Texas. Erlent 26.9.2007 20:12
Fékk fót í kaupbæti Bandarísk húsmóðir fékk óvæntan kaupauka á dögunum þegar hún keypti sér eldavél á uppboði í Norður Karólínu. Þegar Shannon Whisnant opnaði eldavélina góðu heima hjá sér kom í ljós fótur af manni. Erlent 26.9.2007 19:57
Norðmenn veita 60 milljarða í þróunaraðstoð Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, lofaði í dag einum milljarði dollara, jafnvirði um 60 milljarða króna, í stuðning til mæðra og barna í þróunarlöndunum á næsta áratug. Erlent 26.9.2007 17:00
Jarðskjálfti upp á 6,5 skók Súmötru Sterkur jarðskjálfti um 6.5 á Richter varð við strendur indónesísku eyjunnar Sumötru í dag. Veðurstofa Indónesíu greindi fré þessu. Upptök skjálftans voru á 70 kílómetra dýpi um 149 kílómetra suðvestur af Painan á Vestur-Súmötru. Erlent 26.9.2007 16:20
Myndin er ekki af Maddý Ljósmyndin sem farið hefur eins og eldur í sinu um heimsbyggðina er ekki af Madeleine McCann eins og sumir hafa haldið fram. Fréttastofa Sky sjónvarpsstöðvarinnar segist hafa heimildir fyrir því að stúlkan á myndinni sé frá Marokkó. Erlent 26.9.2007 14:58