Erlent

Skilur ekki af hverju börnin voru skilin eftir

Móðir Kate McCann segir að hún skilji ekki af hverju hjónin hafi skilið börnin eftir í sumarleyfisíbúðinni á meðan þau fóru í kvöldverð með vinum sínum. Susan Healy kom fram í fréttaskýringaþætti BBC, Panorama, í gærkvöldi.

Erlent

Daglegt líf lamað í Frakklandi vegna verkfalla

Daglegt líf í Frakklandi er lamað. Mörg þúsund opinberir starfsmenn lögðu niður vinnu í morgun. Skólar eru lokaðir, sjúkrahús veita aðeins lágmarksþjónustu, almenningssamgöngur eru í lamaslessi og flugumferð hefur raskast.

Erlent

Þúsundir frelsaðar í Pakistan

Pakistanska ríkisstjórnin segist hafa leyst um 3.400 stjórnarandstæðinga úr haldi. Fólkið var hneppt í varðhald eftir að neyðarlög voru sett í landinu 3. nóvember síðastliðinn. Lausn stjórnarandstæðinga hefur verið lykilkrafa stjórnarandstöðuflokka sem hóta að sniðganga þingkosningarnar í janúar. Fjöldi leiðtoga stjórnarandstæðinga er enn í haldi í landinu. .

Erlent

Tala látinna námumanna í Úkraínu hækkar

Nú er staðfest að 88 manns létust í versta námuslysi í Úkraínu á sunnudag þegar sprenging varð um einn kílómeter neðanjarðar. Enn er 12 námuverkamanna saknað í Zasyadko kolanámunni í austurhluta Donetsk héraðs.

Erlent

Málaliðar handteknir í Írak

Íraskar öryggissveitir handtóku í dag 43 einstaklinga vegna skotbardaga í Bagdad þar sem kona særðist. Hinir handteknu eru starfsmenn öryggisfyrirtækis sem starfar í borginni. Tveir þeirra eru Bandaríkjamenn og flestir hinna útlendingar eftir því sem fréttastofa Reuters greinir frá. Handtökurnar eru sagðar til merkis um að málaliðarnir sem starfa í landinu séu ekki yfir lögin hafnir en mál Blackwater fyrirtækisins hefur verið mikið í umræðunni undanfarið.

Erlent

Annað andlát eftir rafbyssunotkun

Lögreglan í Bandaríkjunum rannsakar dauða karlmanns sem lést þegar lögreglumaður skaut hann með rafbyssu í gærmorgun. Lögregla var að stilla til friðar þar sem komið hafði til slagsmála. Íslenska lögreglan íhugar að taka slíkar byssur í notkun.

Erlent

Gift í 60 ár

Elísabet önnur Englandsdrottning og Filipus prins, eiginmaður hennar, fögnuðu 60 ára brúðkaupsafmæli í dag. Hjónin fögnuðu demantsbrúðkaupinu ásamt 2.000 gestum á sama stað og þau gengu í það heila 1947 - í Westminster Abbey.

Erlent

Morð skipulögð í Köln og Björgvin

Lögreglan í Þýskalandi telur sig hafa komið í veg fyrir fjöldamorð í menntaskóla í Köln. Ódæðin átti að fremja á morgun. Annar hinna grunuðu svipti sig lífi eftir yfirheyrslur. Lögregla í Björgvin í Noregi handtók síðan ungan mann í dag, sem sett hafði áform um fjöldamorð þar á Internetið.

Erlent

Íbúar Kosovo varaðir við sjálfstæði

Utanríkisráðherrar nokkurra Evrópusambandsríkja hafa hvatt Kosovo-Albana til að lýsa ekki yfir einhliða sjálfstæði eftir kosningar á laugardaginn. Sjálfstæði án stuðnings alþjóðasamfélagsins gæti einangrað héraðið að mati þeirra.

Erlent

YouTube hótun á skóla í Noregi

Einn er í haldi lögreglunnar í Noregi eftir hótanir á YouTube gegn framhaldsskóla nálægt Bergen. Hinn grunaði var handtekinn eftir að hótanir gegn Erdal Skólanum á Askøy eyju voru birtar á vefnum. Odd Dale lögreglustjóri sagði að fylgst hefði verið með manninum frá því í gær en hann hefur ekki verið nafngreindur.

Erlent

Ísraelar frelsa 450 Palestínumenn

Ríkisstjórn Ísraels hefur samþykkt að leysa 450 palestínska fanga úr haldi eftir viðræður á milli leiðtoga landanna. Ehud Olmert forsætisráðherra tilkynnti þetta í dag. Í næstu viku hittast leiðtogar landanna tveggja auk annarra leiðtoga á svæðinu á friðarráðstefnu Miðausturlanda í Bandaríkjunum.

Erlent

Fyrsta stórmyndin á ís

Fyrsta Hollywood stórmyndin hefur verið sett á ís vegna verkfalls handritshöfunda. Tökum á framhaldinu af Da Vinci lyklinum hefur verið frestað.

Erlent

Komið í veg fyrir fjöldamorð í Köln

Þýska lögreglan kom í veg fyrir fjöldamorð í menntaskóla í Köln. Ódæðin átti að fremja á morgun. Tveir námsmenn voru yfirheyrðir vegna málsins. Annar þeirra svipt sig lífi eftir það en hinn er nú í haldi lögreglu.

Erlent

70 námuverkamenn látnir í Úkraínu.

Að minnsta kosti 70 námuverkamenn eru látnir eftir sprengingu neðanjarðar og óttast er um líf 30 til viðbótar í Donetsk héraði í Úkraínu. Eldar hindra björgunarstörf við námuna í Zasyadko sem er í austurhluta Donetsk.

Erlent

Dómarar vísa endurkjörsmáli Musharrafs frá

Hæstiréttur Pakistan hefur vísað frá fimm af sex efaatriðum um lögmæti endurkjörs Pervez Musharrafs forseta í síðasta mánuði. Rétturinn er nú settur dómurum sem eru vilhallir undir forsetann eftir að hann setti á neyðarlög í landinu.

Erlent

Verðbólgutölum í Zimbabwe seinkar vegna skorts

Yfirvöld í Zimbabwe segja að skortur á nauðsynjavörum hafi orðið til þess að verðbólgutölum fyrir októbermánuð seinki. Tölurnar átti að birta í síðustu viku en verðbólga í landinu er nú um 8.000 prósent.Moffat Nyoni forstjóri Hagstofu landsins segir söfnun og útreikning hafa orðið fyrir barðinu á skortinum í landinu.

Erlent

Vitni sá kærustu Murats með Madeleine

Leynilögreglumenn sögðu í gærkvöldi að þeir væru 100 prósent vissir um að finna Madeleine McCann á lífi. Þetta sögðu þeir eftir að vitni sagðist hafa séð kærustu Roberts Murat halda á barni sem vafið var inn í teppi. Vitnið sagði að Michaela Walczuch hafi haldið á barninu frá einum bíl inn í annan þar sem karlmaður tók við því aðeins tveimur dögum eftir að Maddie hvarf af hótelherberginu 3. maí síðastliðinn.

Erlent

Neyðaraðstoð streymir til Bangladesh

Neyðaraðstoð streymir nú til Bangladesh í kjölfar náttúruhamfaranna þar fyrir helgina. Stjórnvöld hafa staðfest að yfir 3.000 manns eru látnir en óttast er að þegar upp er staðið verði sú tala nokkuð yfir 10.000 manns.

Erlent

100% viss um að Maddie sé á lífi

Einkaspæjarar sem foreldrar Maddie McCann hafa ráðið til að leysa ráðgátunum um hvarf hennar eru handvissir um að hún sé á líf og að ekki líði á löngu þar til þeir hafi upp á henni.

Erlent

1.600 týndu lífi hið minnsta

Tæplega 1.600 manns hið minnsta fórust þegar fellbylurinn Sadr fór yfir Bangladess í gær og fyrradag. Óttast er að mörg þúsund manns til viðbótar finnist látnir.

Erlent

Útlitið svart

Mannkyn mun þjást og þriðjungur dýrategunda jafnvel deyja út verði ekkert gert til að stemma stigu við loftslagsbreytingum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í lokaskýrslu loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var í dag. Formaður nefndarinnar segir hana leiðbeina leiðtogum í leit að lausnum.

Erlent

Misheppnuð heimsmetstilraun

Aðstandendur hollensk sjónvarpsþáttar fóru ansi nálægt því að setja heimsmet í gærkvöldi. Ætlunin var að fella rúmlega fjórar milljónir dómínókubba í röð. Aðeins tókst af fella rúm 80% þeirra rúmlega fjögurra milljóna sem var raðað.

Erlent

Rústir þar sem áður stóðu hús

Fjölmargir íbúar í strandhéruðum Bangladess fengu að snúa heim í morgun eftir að fellibylurinn Sidr gekk yfir landið í gær og fyrradag. Rústir húsa og bambuskofa var það sem beið flestra. Þeir sem áttu steinhús enn standandi skjóta nú skjólshúsi yfir þá sem hafa misst allt sitt.

Erlent

Kosið í Kósóvó

Íbúar í Kósóvó-héraði ganga að kjörborðinu í dag og kjósa héraðsþing - þrátt fyrir að enn ríki algjör óvissa um framtíð héraðsins.

Erlent