Erlent

Darwin kominn til Florida

Yfirvöld menntamála í Florida hafa fallist á að gera þróunarkenningu Darwins að skyldugrein í skólum fylkisins.

Erlent

Norðmenn verða enn ríkari

Norðmenn hafa fundið enn eina risastóra gaslind á landgrunni sínu. Gaslindin fannst vestur af Sognefjord, á milli tveggja annarra linda.

Erlent

Létt yfir forseta Bandaríkjanna

George Bush forseti Bandríkjanna hefur verið á ferð í Afríku undanfarna daga og heimsótt mörg Afríkuríki. Lítið hefur farið fyrir þessu í fréttum.

Erlent

Tryggingafélög rukka börn

Dönsk tryggingafélög segjast hiklaust munu senda börnum reikninga fyrir skemmdum sem þau hafa valdið í óeirðunum undanfarna daga.

Erlent

Þrír látnir eftir jarðskjálfta á Indónesíu

Að minnsta kosti þrír létust og 25 slösuðust alvarlega í sterkum jarðskjálfta sem reið yfir Aceh hérað í Indónesíu í morgun. Fjölmargar byggingar skemmdust í skjálftanum sem var 7,5 á Richter og átti upptök sín nálægt eynni Simeulue, 319 km frá strönd Súmkötru.

Erlent

Fyrrverandi yfirmaður MI6 neitar morði Díönu

Fyrrverandi yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 hefur neitað því staðfastlega að bera ábyrgð á dauða Díönu prinsessu af Wales. Sir Richard Dearlove var yfirheyrður við réttarrannsóknina sem nú fer fram í London. Vitnisburðurinn þykir sögulegur í ljósi þess að meginregla MI6 er að svara aldrei ásökunum gegn þjónustunni.

Erlent

Hjónaband ógilt eftir 10 ár vegna fíkniefnaneyslu

Kona hefur fengið hjónaband sitt ógilt eftir 10 ára baráttu í ítalska dómskerfinu en hún kom að eiginmanninum reykjandi hass á brúðkaupsnóttina. Konan er úr afar íhaldssamri ítalskri fjölskyldu í Campagna og fékk algjört sjokk, en maðurinn hafði sagt henni að hann snerti ekki eiturlyf fyrir brúðkaupið.

Erlent

Sex hengdir í Íran

Sex menn voru hengdir í Íran í dag fyrir vopnað rán. Samtökin Amnesty international segja að hvergi í heiminum séu aftökur jafn tíðar og í Íran.

Erlent

Þjóðverjar viðurkenna sjálfstæði Kosovo

Ríkisstjórn Angelu Merkel kanslara Þýskalands samþykkti formlega í dag að viðurkenna Kosovo sem sjálfstætt ríki. Frank-Walter Steinmeier utanríkisráðherra landsins hafði tilkynnt á mánudag að sjálfstæði Kosovo yrði viðurkennt. Samkvæmt heimildum Reuters fréttastofunnar er fundinum enn ekki lokið í Berlín þar sem ákvörðunin um sjálfstæðisviðurkenninguna var tekin.

Erlent

NATO lokar norðurlandamærum Kosovo

Herlið á vegum NATO hefur lokað norðurlandamærum Kosovo að Serbíu eftir að reiðir Serbar réðust þar á tvær landamærastöðvar og kveiktu í þeim en þær voru mannaðar af lögreglu og friðargæsluliðum frá Sameinuðu þjóðunum.

Erlent

Barak Obama sigraði í Wisconsin

Barak Obama sigraði í forkosningunum í Wisconsin í nótt og er þetta níundi sigur hans í röð í baráttunni um útnefninguna sem forsetaefni Demókrataflokksins.

Erlent

Túrkmenar minnast Turkmenbashi

Túrkmenar minnast í dag afmælis Saparmurat Niyazovs, fyrrum leiðtoga landsins sem lést árið 2006. Í tilefni dagsins var vígður nýr skóli sem byggður er í líki bókarinnar Rukhnama sem Niyazov, sem oftast var nefndur Turkmenbashi, eða faðir Túrkmena, skrifaði. Bókin varð að eins konar Biblíu og krafðist Turkmenbashi þess að landsmenn allir lærðu hana utanbókar.

Erlent

Hafði mök við lík en neitar morði

Kokkur sem sakaður er um að myrða Sally Anne Bowman unglingafyrirsætu sagði við réttarhöld í London í dag að hann hefði haft mök við líkið í mikilli áfengis-og fíkniefnavímu, en hafi ekki myrt hana.

Erlent

Kenya Airways hættir flugi til Parísar

Kenya Airways hefur hætt áætlunarflugi til Parísar. Félagið segir ferðamenn frá Frakklandi hætta að koma til landsins í kjölfar ofbeldisöldunnar eftir úrslit forsetakosninganna í desember. Flugfélagið flaug þrisvar í viku til borgarinnar.

Erlent

Ástin slokknaði

Þýskur maður varð svo reiður þegar kærasta hans kveikti í sígarettu að hann greip duftslökkvitæki og tæmdi það yfir hana og íbúð hennar. Þetta var í bænum Bielfeld í vestanverðu Þýskalandi.

Erlent