Erlent

Fáklæddir hjólareiðamenn

Hundruð mismunandi lítið klæddra hjólreiðamanna hjóluðu um Lima höfuðborg Perús í gær til þess að vekja athygli á reiðhjólinu sem umhverfisvænum og hljóðlátum farkosti. Gríðarleg bílaumferð er í Lima með tilheyrandi útblæstri og umferðarhnútum.

Erlent

Bretaprins er vinur frumskógarins

Karl Bretaprins er í fjögurra daga heimsókn í Brasilíu ásamt eiginkonu sinnu Camillu hertogaynju af Cornwall. Prinsinn er mikill umhverfisverndarsinni og hefur verið óþreytandi baráttumaður fyrir verndun regnskóganna. Af því tilefni var hann útnefndur vinur frumskógarins í heimsókninni.

Erlent

Ólga á N-Írlandi

Þjóðernissinnaðir Írar fleygðu bensínsprengjum og grjóti í lögregluna í gær eftir að þrír menn úr klofningshópi frá Írska lýðveldishernum voru handteknir fyrir morðin á tveim breskum hermönnum.

Erlent

Hákarlar í sundkeppni

Tveir hákarlar blönduðu sér í stóra sundkeppni sem haldin var undan strönd Sydney í Ástralíu í dag. Hákarlarnir höfðu sjöhundruð sundmenn til að velja úr og svo virðist sem þeir hafi ekki getað ákveðið sig.

Erlent

Breska stjórnin ber ábyrgð fjármálakreppunni

Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, sagði í dag að ríkisstjórnin yrði að taka sinn hluta af ábyrgð á fjármálakreppunni sem nú ríkir í landinu. Hann lagði þó áherslu á að engin eftirlitsstofnun í heiminum hefði séð kreppuna fyrir nógu snemma til þess að aðhafast eitthvað.

Erlent

Páfagarður gagnrýnir bannfæringu á 9 ára stúlku

Páfagarður hefur nú blandað sér í mál brasilisku móðurinnar sem var bannfærð fyrir að hjálpa níu ára gamalli dóttur sinni að komast í fóstureyðingu. Læknarnir sem framkvæmdu fóstureyðinguna voru einnig bannfærðir. Telpan gekk með tvíbura eftir að stjúpfaðir hennar nauðgaði henni. Biskuparáð Brasilíu hefur nú afturkallað bannfæringuna.

Erlent

Réttar­höld hefjast yfir Josef Fritzl

Þegar Elísabet Fritsel var átján ára gömul bað Jósef faðir hennar hana um að hjálpa sér að bera eitthvað dót ofan í kjallara. Þaðan átti Elísabet ekki afturkvæmt í tuttugu og fjögur ár.

Erlent

Argandi módel

Sex konur slösuðust í upphlaupi sem varð í New York í gær þegar þúsundir kvenna söfnuðust saman í von um að verða valdar til þáttöku í næstu sjónvarpsþáttaröð American Next Top Model. Það er fyrrverandi ofurfyrirsætan Tyra Banks sem stjórnar þáttunum.

Erlent

Dýrasta reiðhjól í heimi er danskt

Danmörk er flöt eins og pönnukaka og Danir ferðast mikið á reiðhjólum. Það er því við hæfi að það skuli vera danskur hönnuður sem hefur smíðað dýrasta reiðhjól í heimi. Hjólið er húðað með 24 karata gulli og alsett kristöllum frá Swarovski.

Erlent

60 kílómetra löng olíubrák í Ástralíu

Talið er að rúmlega 300 tonn af olíu hafi farið í sjóinn skammt undan strönd Queenslandfylkis í norðaustur Ástralíu þegar gat kom á olíutank flutningaskips á miðvikudaginn. Strandlengjan í Queensland er þakin olíubrák á 60 kílómetra löngu svæði og hafa yfirvöld lýst yfir neyðarástandi.

Erlent

Samsæri arabaleiðtoga og Vesturlanda

Osama bin Laden, leiðtogi Al Kaída hryðjuverkasamtakanna, sakar forystmenn hófsamara araba um samsæri og segir þá vinna með Vesturlöndum gegn hagsmunum annarra araba. Hljóðupptaka sem sögð er með bin Laden var birt á Al Jazeera sjónvarpsstöðinni í dag. Hún er talin hafa verið gerð í þessum mánuði.

Erlent

Samkomulag á milli Fatah og Hamas ekki í augsýn

Stríðandi fylkingum palestínumanna hefur ekki tekist að finna grundvöll fyrir sáttum. Fulltrúar Fatah og Hamas samtakanna hafa undanfarna daga setið sáttafundi í Kairó með egypskum milligöngumönnum. Ætlunin er að reyna að sætta sjónarmið þannig að hægt verði að stofna sjálfstætt ríki palestínumanna á Vesturbakkanum og Gaza ströndinni.

Erlent

Bannfæringu aflýst af 9 ára stúlku

Biskuparáð kaþólsku kirkjunnar í Brasilíu hefur aflýst bannfæringu á móður sem hjálpaði níu ára gamalli dóttur sinni að komast í fóstureyðingu. Telpan varð ófrísk að tvíburum eftir að stjúpfaðir hennar nauðgaði henni.

Erlent

Kínverjar herða tökin í Tíbet

Kínverjar hafa enn hert tökin á Tíbet og þar er nánast allt lokað og læst til þess að koma í veg fyrir hverskonar mótmæli. Ár er nú liðið síðan mikil mótmælaalda gekk yfir í Tíbet. Það leiddi til margra vikna óeirða og mótmæla víða um heim gegn framgangi Kínverja.

Erlent

Óttast mikið manntjón í aurskriðu í Noregi

Óttast er að fjölmargir hafi farist í aurskriðu í Namsos í Noregi í dag. Skriðan var mörghundruð metra breið og hreif að minnsta kosti með sér sex hús. Auk þess hafði fólk verið úti á göngu þegar skriðan féll.

Erlent

Þrettán ára launmorðingi Mexíkómafíu

Rosalio Reta situr við borð í litlu yfirheyrsluherbergi lögreglunnar í Laredo í Texas. Hann er að svara spurningum rannsóknarlögreglumanns um það hvernig morðferill hans hafi byrjað.

Erlent

Dönsk lögregla kannar bíla skráða erlendis

Lögregla og skattayfirvöld í Danmörku standa nú í heilmikilli aðgerð gegn bíleigendum sem skrá bíla sína erlendis en nota þá heima í Danmörku eins og þeir væru aðeins ferðamenn þar, sem flutt hefðu bíl með sér til landsins tímabundið.

Erlent

Vilja skattleggja súkkulaði eins og áfengi

Súkkulaði ætti að skattleggja á sama hátt og áfengi og reyna þar með að draga úr sívaxandi offituvandamálum í Bretlandi. Tillaga um að þetta yrði lagt fyrir ríkisstjórnina var borin fram á læknaþingi í Bretlandi en naumlega felld svo munaði tveimut atkvæðum.

Erlent

Þrettán Serbar dæmdir sekir

Þrettán Serbar voru í gær dæmdir af serbneskum stríðsglæpadómstól til allt að 20 ára fangavistar fyrir stríðsglæpi vegna þátttöku sinnar í fjöldamorðum á 200 Króötum árið 1991.

Erlent

Spjallaði um áformin á netinu

Þýsk lögregluyfirvöld birtu í gær afrit af netspjalli milli hins sautján ára Tims Kretschmer og spjallfélaga hans, sem fór fram sex klukkustundum áður en sá fyrrnefndi lét til skarar skríða.

Erlent

Þrettán Serbar dæmdir fyrir fjöldamorð í Króatíu

Serbneskur stríðsglæpadómstóll dæmdi í dag 13 Serba í allt að 20 fangelsi fyrir aðild að fjöldamorðum fyrir 18 árum. Mennirnir tóku þátt í fjöldamorðum á rúmlega 200 Króötum sem voru stríðfangar og voru teknir af lífi án dóms og laga.

Erlent

Morðinginn greindi frá áformum sínum á netinu

Þýskur unglingsstrákur sem myrti fimmtán manns í bæ í Þýskalandi í gær varaði við árásinni á spjallrás á netinu kvöldið áður en hann lét til skarar skríða. Honum þótti sem hann væri misskilinn og afskiptur.

Erlent