Erlent

Leitað fram eftir nóttu

Alls fimm þúsund björgunarsveitarmenn og sjálboðaliðar munu leita fólks sem hugsanlega eru enn undir rústunum í smábænum L´Aquila á Ítalíu eftir að jarðskjálftinn skók jörðina með dramatískum afleiðingum.

Erlent

Sómalskir sjóræningjar halda áfram að ræna

Sómalskir sjóræningjar rændu í dag þrjátíu og tvöþúsund tonna flutningaskipi undan ströndum landsins. Skipið er skráð í Bretlandi en rekið af ítölsku skipafélagi. Áhöfnin mun vera af blönduðu þjóðerni en ekki er vitað hversu fjölmenn hún er.

Erlent

50 látnir eftir jarðskjálftann á Ítalíu

Að minnsta kosti fimmtíu manns létu lífið í jarðskjálfanum sem reið yfir mið Ítalíu í nótt. Hundruð bygginga hrundu til grunna. Björgunarsveitir eru nú að leita í rústum hundruða húsa og er búist við að tala látinna eigi eftir að hækka, jafnvel verulega.

Erlent

Anders Fogh baðst ekki afsökunar

Anders Fogh Rassmussen verðandi framkvæmdastjóri NATO sagði í ræðu í dag að hann myndi einbeita sér að því að bæta samskipti NATO við Múslima.

Erlent

Ók á vegg eftir langa eftirför

Grunaður ræningi endaði flótta sinn undan lögreglu á Fjóni í Danmörku með því að aka á vegg. Lögregla sá fyrst til mannsins þar sem hann ók með 150 kílómetra hraða á klukkustund á þjóðvegi skammt frá Óðinsvéum.

Erlent

Mega á ný fjalla um líkflutninga hersins

Bandarískum fjölmiðlum hefur nú á ný verið leyft að fjalla um heimflutning á jarðneskum leifum hermanna sem fallið hafa á erlendum vígvöllum. Bann við slíkri umfjöllun var sett á árið 1991 í forsetatíð George Bush eldri þegar Persaflóastríðið geisaði en frá því banni voru nokkrar undantekningar.

Erlent

Skattahækkanir í Bretlandi

Búist er við að meðalskattgreiðandi í Bretlandi muni þurfa að greiða 500 pundum, eða tæplega 90.000 krónum, meira í skatt á ári eftir skattahækkanir sem ríkisstjórnin þar hefur boðað og er ætlað að standa undir hluta af þeim lánum sem taka þarf til að draga breskt efnahagslíf á flot á ný

Erlent

40 látnir í jarðskjálftanum á Ítalíu

Tala látinna í jarðskjálftanum á Ítalíu í nótt hefur farið hækkandi þegar liðið hefur á morguninn. Nú er talið að 50 hafi látist í það minnsta en skjálftinn mældist 6,3 á Richter. Það er því orðið ljóst að skjálftinn er sá mannskæðasti sem riðið hefur yfir ítalíu frá árinu 1980 þegar tæplega þrjú þúsund manns létust í suðurhluta landsins.

Erlent

Obama kominn til Tyrklands

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, er kominn til Tyrklands í dag í fyrstu heimsókn sinni til múslimaríkis, eftir að hann tók við embætti forseta. Tyrkland er síðasta ríkið sem Obama heimsækir í átta daga Evrópureisu sinni. Heimsóknin til Tyrklands þykir benda til þess að hann vilji sýna að honum sé full alvara með því að bæta samskipti Bandaríkjanna við múslimaríki.

Erlent

Fogh beygði af í kveðjuræðu

Með tár í augum og titrandi röddu kvaddi Anders Fogh Rasmussen, sem nú er fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, samstarfsfólk sitt í forsætisráðuneytinu í dag. Rasmussen hefur farið fyrir ráðuneytinu í sjö ár og hrósaði hann öllu starfsfólki sínu fyrir vel unnin störf í dag.

Erlent

Lars Løkke Rasmussen verður forsætisráðherra Dana í dag

Lars Løkke Rasmussen, varaformaður Venstre, tekur í dag við sem nýr forsætisráðherra Danmerkur af flokksbróður sínum Anders Fogh Rasmussen. Hann var í gær útnefndur framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, en Fogh Rasmussen tekur við því embætti í ágúst.

Erlent

Segjast hafa fellt 420 Tamiltigra

Stjórnvöld á Srí Lanka segjast hafa fellt 420 uppreisnarmenn Tamíltígranna í átökum síðustu þriggja daga. Meðal fallinna munu vera fjölmargir úr hópi leiðtoga tígranna.

Erlent

Eldflaugaskot N-Kóreumanna í nótt

Norður-Kóreumenn greindu frá því í morgun að þeim hefði tekist að koma gervihnetti á sporbaug um jörðu. Eldflaug sem bar gervihnöttinn hafi verið skotið á loft og það heppnast vel. Flaugin fór yfir Japan.

Erlent

Forsetinn endurkjörinn í Slóvakíu

Ivan Gasparovic var endurkjörinn forseti í forsetakosningunum í Slóvakíu, sem fram fóru í gær, með tæpum 56% greiddra atkvæða. Mótframbjóðandi hans, Iveta Radicova, hlaut rösklega 44% atkvæða í kosningunum, samkvæmt tölum sem hagstofan þar í landi birti. Búist er við því að úrslitin verði staðfest síðar í dag. „Íbúar í Slóvakíu virða mig og ég olli þeim ekki vonbrigðum. Það var það sem réð úrslitum,“ sagði Gasparovic eftir kjörið.

Erlent

Bandarískur gísl látinn laus í Pakistan

Bandarískur yfirmaður hjá Sameinuðu þjóðunum, sem var rænt í Pakistan fyrir tveimur mánuðum, hefur verið látinn laus og er heill á húfi. Þetta hefur AFP fréttastofan eftir lögreglunni í Pakistan og talskonu Sameinuðu þjóðanna.

Erlent

Forsætisráðherra Dana biðst lausnar á morgun

Anders Fogh Rasmussen, nýskipaður framkvæmdastóri NATO, mun ganga fund Margrétar Þórhildar Danadrottningar á morgun og biðjast lausnar sem forsætisráðherra. „Á sama tíma mun ég leggja til að Lars Løkke Rasmussen verði skipaður eftirmaður minn," er haft eftir Anders Fogh í dönsku pressunni.

Erlent

Obama vill fara óhefðibundnar leiðir í orkumálum

Barack Obama Bandaríkjaforseti er áhugsamur um að koma til Íslands og lét það í ljós í viðræðum við Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í gær. Forsetanum verður boðið til Íslands við fyrsta tækifæri.

Erlent

Samstaða bandamanna bætt

Undir dynjandi fagnaðarlátum hét Barack Obama Bandaríkjaforseti því í gær að koma tengslum lands síns við Evrópu í samt lag. Sagði hann heimsbyggðina hafa sameinast um stund eftir hryðjuverkaárásirnar árið 2001 en síðan hefðum „við lent á röngu spori vegna Íraks“.

Erlent

Sýking banar níu börnum

Heilbrigðisyfirvöld í Kína hafa fyrirskipað að gerð skuli ítarleg rannsókn í Shandong-héraðinu í austurhluta landsins til að reyna að stemma stigu við útbreiðslu handa-, fóta- og munnsjúkdóms sem geisað hefur á svæðinu og dregið að minnsta kosti níu börn til dauða á tveimur vikum. Sjúkdómsins hefur ekki áður orðið vart á svæðinu.

Erlent