Erlent
Fjarstýrð þyrla olli usla í indverska þinginu Neyðarástandi var lýst yfir í indverska þinghúsinu í gær þegar óvenjulegur vágestur birtist þar fyrirvaralaust. Erlent 30.4.2009 08:23
Bretar óánægðir með BT Breska fjarskiptafyrirtækið British Telecommunications nýtur minnstra vinsælda meðal þarlendra símnotenda samkvæmt nýrri könnun. BT var í einokunaraðstöðu þar til snemma á tíunda áratug síðustu aldar og hefur töluvert hallað undan fæti síðan samkeppni hófst á markaðnum. Erlent 30.4.2009 08:19
Mexíkóar frá vinnu fram á þriðjudag Öll vinna í Mexíkó, að undanskilinni nauðsynlegustu starfsemi, mun liggja niðri frá morgundeginum og fram á þriðjudag til að sporna við því að svínaflensan breiðist enn frekar út. Fólk er beðið að halda sig heima við og allt samkomuhald hefur verið bannað. Erlent 30.4.2009 07:25
París mun ná út að Ermarsundi París, höfuðborg Frakklands, mun á næstu tveimur áratugum teygja sig alla leið til hafs og liggja þá að Ermarsundi. Nicolas Sarkozy forseti kynnti þessa hugmynd nú í vikunni og útfærslu hennar sem var í höndum arkitektsins Antoine Grumbach. Erlent 30.4.2009 07:23
Byrjaður að dusta rykið Fyrstu hundrað dagar Baracks Obama í starfi forseta Bandaríkjanna þykja vel heppnaðir. Mannréttindasamtök segja þó hægt miða í mannréttindamálum. Erlent 30.4.2009 04:30
Kasparov reifst við saksóknara Skákmeistarinn Garry Kasparov, einn af leiðtogum stjórnarandstöðunnar í Rússlandi, lét sjá sig við réttarhöldin yfir auðkýfingnum fyrrverandi Mikaíl Kodorkovskí í Moskvu í gær. Í hléi lenti hann í snörpu orðaskaki við einn saksóknaranna í málinu. Kasparov sagði það borgaralega skyldu sína að mæta við réttarhöldin og sýna Kodorkovskí stuðning. Erlent 30.4.2009 04:30
Svínum slátrað í Egyptalandi Viðbrögðin við svínaflensu eru ekki á sama veg í öllum ríkjum heims. Í Egyptalandi tóku stjórnvöld þá ákvörðun að slátra skyldi öllum svínum í landinu, en þau eru samtals 300 þúsund. Erlent 30.4.2009 04:15
Sýknaðir en í fangelsi Tveir bresku sakborninganna þriggja, sem á þriðjudag voru sýknaðir af ákærum um að hafa aðstoðað fjóra hryðjuverkamenn sem sprengdu sig í loft upp í London í júlí 2005, voru í gær dæmdir til sjö ára fangavistar fyrir aðrar sakir tengdar dvöl þeirra í þjálfunarbúðum fyrir hryðjuverkamenn. Erlent 30.4.2009 04:00
Áströlskum hermönnum fjölgar í Afganistan Ríkisstjórn Ástralíu hefur ákveðið fjölga um 450 hermenn í herliði landsins í Afganistan. Kevin Rudd, forsætisráðherra Ástralíu, sagði þetta gert til að herða sóknina gegn Talibönum sem hafa að undanförnu styrkt stöðu sína víða í landinu. Áströlsku hermönnunum er einkum ætlað að þjálfa afganska lögreglumenn og öryggissveitir. Erlent 29.4.2009 23:08
Mannskæðar árásir í Bagdad Að minnsta kosti 42 eru látnir og aðrir 68 mikið slasaðir eftir árásir vígamanna í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Á annað hundrað manns hafa fallið á árásum á síðustu tveimur vikum. Erlent 29.4.2009 22:52
Viðbúnaðarstig hækkað í fimmta stig af sex Alþjóða heilbrigðisstofnunin, WHO, hefur aukið viðbúnað sinn vegna farsóttarhættu vegna svínaflensufaraldursins. Viðbúnaðarstig hefur verið hækkað úr fjórða stigi í það fimmta en stigin eru alls sex. Erlent 29.4.2009 21:06
WHO íhugar að lýsa yfir næstefsta viðbúnaðarstigi Fulltrúar Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, segjast skrefi nær því að lýsa yfir næst efsta viðbúnaðarstigi vegna svínaflensunnar. Það þýðir að ekkert lát er á útbreiðslu sjúkdómsins. Íslensk kona í Mexíkó, þar sem sjúkdómurinn greindist fyrst, segir viðbúnað í landinu mikinn en hún sé ekki á leið heim í bráð. Erlent 29.4.2009 18:42
Sjúklingurinn á Spáni hafði verið í samskiptum við fólk nýkomið frá Mexíkó Heilbrigðisyfirvöld á Spáni tilkynntu fyrir stundu að svínflensa hefði greinst í sjúklingi þar í landi sem hefði ekki komið til Mexíkó þar sem sjúkdómurinn á upptök sín. Það virtist gefa til kynna að flensan væri að breiðast út en skömmu síðar kom í ljós að maðurinn hafði verið í samskiptum við fólk nýkomið frá Mexíkó. Erlent 29.4.2009 15:51
Barnið sem lést í Texas var frá Mexíkó Nú er komið í ljós að barnið sem lést í Texas ríki af völdum svínaflensu var frá Mexíkó en foreldrar þess höfðu ferðast með það yfir landamærin til þess að leita læknisaðstoðar. Fyrr í dag var greint frá því að um væri að ræða fyrsta dauðsfallið í Bandaríkjunum af völdum svínaflensu. Barnið var tveggja ára gamalt. Erlent 29.4.2009 13:16
Öllum svínum í Egyptalandi fargað Heilbrigðisyfirvöld í Egyptalandi hafa fyrirskipað að öllum svínum í landinu skuli fargað vegna svínaflensunnar sem vekur ugg víða um heim. Í yfirlýsingu frá egypska heilbrigðisráðherrans segir að þetta sé gert í varúðarskyni. Erlent 29.4.2009 12:44
Svínaflensan: Tveggja ára bandarískt barn látið Bandarísk heilbrigðisyfirvöld tilkynntu nú fyrir stundu um fyrsta dauðsfall af völdum svínaflensu í Bandaríkjunum. Um er að ræða tæplega tveggja ára barn í Texas. Erlent 29.4.2009 10:48
Norður Kóreumenn hóta kjarnavopnatilraunum Norður Kóreumenn hótuðu í morgun að gera tilraunir með kjarnorkuvopn og langdrægar eldflaugar ef Sameinuðu þjóðirnar féllu ekki frá refsiaðgerðum gegn Norður Kóreu og bæðust afsökunar á að hafa beitt þeim. Erlent 29.4.2009 10:45
Ástralar auka herstyrk í Afganistan Ástralar hyggjast fjölga í herafla sínum í Afganistan og senda þangað 450 hermenn til viðbótar við þá 1.100 sem þegar eru á staðnum. Erlent 29.4.2009 08:38
Bretar geta flett glæpamönnum í hverfinu upp Breski dómsmálaráðherrann Jack Straw mun á morgun kynna áætlun ríkisstjórnarinnar um að koma upp gagnagrunni á Netinu þar sem fletta má upp dæmdum afbrotamönnum í ákveðnum hverfum. Með þessu eiga íbúar að geta áttað sig á því hvers konar nágranna þeir eigi. Erlent 29.4.2009 08:15
Bandarískir svínabændur óhressir með svínaflensu Tom Vilsack, landbúnaðarráðherra Bandaríkjanna, hefur bænheyrt þarlenda svínabændur og farið þess á leit við stjórnvöld að nafni svínaflensunnar alræmdu verði breytt í H1N1-veiran í stað þess að kenna hana við svín. Erlent 29.4.2009 08:12
Varð ófæddum tvíburum sínum að bana Kona frá Sómalíu, búsett í Bretlandi, er fyrir rétti, ákærð fyrir að hafa orðið ófæddum tvíburum sínum að bana með því að sprauta sjálfa sig með lyfinu syntómetrín sem kemur hríðum af stað og þar með fæðingu, í þessu tilfelli tæpum mánuði fyrir áætlaðan fæðingartíma. Erlent 29.4.2009 08:09
Réðust inn í íbúð í Birkerød Fimmtán ára unglingur og tvítugur maður voru handteknir í nótt fyrir rán í bænum Birkerød á Norður-Sjálandi í Danmörku. Ræningjarnir spörkuðu upp hurð á íbúð í bænum og réðust þar á húsráðanda og mann sem var gestkomandi hjá honum. Erlent 29.4.2009 07:33
Umferðarslys í Kaliforníu Að minnsta kosti fjórir eru látnir og tæplega 40 slasaðir eftir að hópferðabifreið valt á þjóðvegi í Kaliforníu í morgun. Tildrög slyssins eru enn óljós en farþegarnir voru flestir franskir ferðamenn. Tólf sjúkrabílar og sjö björgunarþyrlur voru send á vettvang með hraði og vinnur björgunarlið nú að því að hjálpa farþegunum út úr flaki bifreiðarinnar. Erlent 29.4.2009 07:32
Bretar panta 30 milljónir gríma Breska heilbrigðisráðuneytið hefur pantað 30 milljónir gríma til að hylja vit fólks og verja það þannig fyrir svínaflensunni sem geisar í heiminum. Sérfræðingar hafa þó bent á að grímurnar veiti litla sem enga vörn gegn veirunni sem veldur svínaflensu. Erlent 29.4.2009 07:26
Litlar áhyggjur af Rússum Atlantshafsbandalagið verður með heræfingu í Georgíu í maí. Rússar hafa gagnrýnt þetta harðlega. Gregory Vashadze, utanríkisráðherra Georgíu, gefur ekki mikið fyrir gagnrýni Rússa og óttast ekki innrás þeirra. Erlent 29.4.2009 04:30
Áhrifin umdeilanleg ESB-umræða Íslendinga hefur vakið athygli í Noregi eftir alþingiskosningarnar, sérstaklega sú staðreynd að Samfylkingin getur myndað ríkisstjórn og gengið til aðildarviðræðna við Evrópusambandið, ESB, þannig að Íslendingar verði komnir með evruna innan nokkurra ára. Norðmenn velta fyrir sér hvort og þá hvaða áhrif þetta hafi á norsk stjórnmál og EES-samninginn. Erlent 29.4.2009 04:30
Niðurstaðan áfall fyrir ákæruvaldið Þrír menn, sem grunaðir voru um aðild að sprengjuárásunum í London 7. júlí 2005, voru í gær sýknaðir af ákærum. Erlent 29.4.2009 04:30
Ekki velkominn til Sri Lanka „Þetta er furðulegt,“ sagði Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, um afstöðu stjórnvalda á Sri Lanka, sem neituðu að hleypa honum inn í landið. Erlent 29.4.2009 04:15
Pólland bíður eftir evrunum Ríkisstjórn Póllands hefur samþykkt varaáætlun í evruvæðingu landsins. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir því að landið uppfylli ekki grundvallarskilyrði til þátttöku í gjaldmiðilssamstarfinu ERM-2 sem er nauðsynlegt fyrir upptökuna. Erlent 29.4.2009 04:15
Breskur hermaður drepinn í kjölfar yfirlýsinga Brown Breskur hermaður var drepinn í suðurhluta Afganistans í kvöld degi eftir afdráttarlausar yfirlýsingar Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands. Hann heimsótti óvænt í gær bæði Afganistan og Pakistan og sagði vöggu hryðjuverka vera við landamæri ríkjanna. Erlent 28.4.2009 23:45