Erlent

Patrick Swayze er allur

Bandaríski leikarinn Patrick Swayze er látinn, 57 ára að aldri, og var banamein hans krabbamein í brisi sem hann hafði glímt við síðan snemma árs í fyrra.

Erlent

Stoltenberg sigraði

Þegar búið er að telja tæp 99% atkvæða í þingkosningunum í Noregi er ljóst að Verkamannaflokkurinn hefur bætt við sig þremur þingmönnum. Flokkurinn undir forystu Jens Stoltenberg heldur því velli en það hefur ekki gerst í landinu í 16 ár.

Erlent

Spyr stanslaust um föður sinn

Prince Michael Jackson II, sjö ára gamall sonur Michael Jacksons á erfitt með að sætta sig við fráfall föður síns. Hann spyr stanslaust hvar faðir sinn sé á milli þess sem hann grætur inni í herbergi.

Erlent

Rukkað inn í grasagarð í Edinborg vegna Kaupthings

Gestir The Royal Botanic Garden í Edinborg gætu þurft að greiða 4 punda aðgöngugjald í garðinn vegna falls íslensku bankanna. Garðurinn á í fjárhagslegum erfiðleikum en hann átti 1,09 milljón pund í Kaupthing Singer & Friedlander sem fór í greiðslustöðvun í október síðast liðnum. Þetta kemur fram í skoskum fjölmiðlum í dag.

Erlent

Stjórnin heldur líklega velli

Mikil spenna ríkir í Noregi vegna þingkosninganna þar í landi. Samkvæmt kosningaspá sem norska ríkissjónvarpið birti nú í kvöld þegar kjörstöðum var lokað virðist stjórnin halda velli. Samkvæmt spánni fengu stjórnarflokkarnir 86 þingsæti og stjórnarandstaðan 83.

Erlent

Kenningar Darwins of umdeildar fyrir Bandaríkjamenn

Framleiðendur bresku bíómyndarinnar Creation sem fjallar um ævi og störf Charles Darwin eru í vandræðum þar sem þeim hefur ekki tekist að finna dreifingaraðila að myndinni í Bandaríkjunum. Þar á bæ þykir efnið of eldfimt, en Darwin setti fyrstur manna fram þróunarkenninguna svokölluðu í bókinni Uppruni tegundanna.

Erlent

Mömmu Ágústar úthýst af YouTube

YouTube myndskeið, þar sem ung dönsk kona auglýsir eftir barnsföður sínum, hefur vakið mikla eftirtekt í Danmörku að undanförnu. Nú hefur danska ferðamálastofan, VisitDenmark, fjarlægt myndskeiðið af YouTube.

Erlent

Handtekinn eftir tíu bankarán

Maður, sem grunaður er um að hafa rænt tíu banka í fjórum ríkjum Bandaríkjanna, var handtekinn í Missouri á laugardaginn. Fyrrverandi lögreglumaður, sem látið hefur af störfum fyrir aldurs sakir, sá ræningjann á vegahóteli í borginni Kingdom.

Erlent

Bin Laden ávarpar Bandaríkjamenn

Barack Obama er ófær um að stöðva stríðsátök í Afganistan. Þetta segir Osama bin Laden í hljóðupptöku sem hann kallar ávarp til bandarísku þjóðarinnar og var gert opinbert af fjölmiðlaarmi al Qaeda-hryðjuverkasamtakanna um helgina.

Erlent

Dregur úr vinsældum Sarkozy fjórða mánuðinn í röð

Vinsældir Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseta, halda áfram að dragast saman fjórða mánuðinn í röð. 44% þátttakenda í skoðanakönnun sem birt var í kvöld segjast vera ánægðir með forsetinn en það er fjórum prósentustigum minna en fyrir mánuði. Vinsældir Sarkozy mældist lengi vel yfir 50%.

Erlent

Elsta kona Bandaríkjanna er stuðningsmaður Boston Red Sox

Mary Josephine Ray sem talin er vera elsta núlifandi kona Bandaríkjanna er mikill stuðningsmaður hafnaboltaliðsins Boston Red Sox. Mary fæddist 17. maí 1895 og er því 114 ára gömul. Japanska konan Kama Chinen sem er sögð elsta konan heims fæddist í byrjun maí sama ár. Mary sem er búsett í New Hampshire veit um fátt betra en ís og súkkulaðikossana frá Hershey's.

Erlent

Ræddu friðarumleitanir

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, heimsótti Egyptaland í dag og átti fund með Hosni Mubarak, forseta landsins. Þeir ræddu friðarumleitanir fyrir botni Miðjarðarhafs en Mubarak gegnir mikilvægu hlutverki sáttasemjara á milli Palestínumanna og Ísraela. Leiðtogarnir ræddu auk þess um möguleg fangaskipti á liðsmönnum Hamas sem eru í fangelsum í Ísrael og ísraelskum hermanni sem hefur verið í haldi Hamassamtakanna síðastliðin þrjú ár.

Erlent

Leiðtogarnir takast á í kappræðum

Angela Merkel, kanslari Þýskalands og leiðtogi kristilegra demókrata, mætir Frank Walter Steinmeier, utanríkisráðherra og leiðtogi jafnaðarmanna, í kappræðum í kvöld. Þjóðverjar ganga til þingkosninga eftir hálfan mánuð.

Erlent

Schwarzenegger minntist fallinna slökkviliðsmanna

Í dag fór fram minningarathöfn í Los Angeles um tvo slökkviliðsmenn sem týndu lífi þegar þeir börðust við skógarelda í nágrenni borgarinnar í lok ágúst. Þá breiddust skógareldar stjórnlaust um stórt svæði norður af Los Angeles. Þúsundir þurftu að flýja heimili sín og stórt svæði íbúðabyggðar varð eldunum að bráð.

Erlent

Óvíst hvort norska stjórnin haldi velli

Alls er óvíst að ríkisstjórn Jens Stoltenbergs haldi velli í þingkosningunum sem fram fara í Noregi í dag. Fyrir aðeins nokkrum dögum var allt útlit fyrir að ríkisstjórn Stoltenbergs félli í kosningum til stórþingsins. Hún hefur þó aðeins braggast í nýjustu skoðanakönnunum sem benda til þess að hún fái áttatíu og fimm til áttatíu og níu af 169 þingsætum.

Erlent

Tólf bresk börn lögð inn á sjúkrahús

12 bresk börn hafa verið lögð inn á sjúkrahús eftir að hafa sýkst af ecoli-bakteríunni í heimsókn á bóndabæ í Surrey. Fjögur barnanna eru sögð alvarlega veik. Þau eru öll undir tíu ára aldri.

Erlent

Norðmenn ganga til þingkosninga

Norðmenn ganga til þingkosninga í dag og stjórn og stjórnarandstaða eru nánast hnífjöfn í skoðanakönnunum. Jens Stoltenberg, forsætisráðherra, hefur í kosningabaráttu sinni lagt mesta áherslu á að allir skuli hafa vinnu. Engin ríkisstjórn í Noregi hefur náð endurkjöri síðan árið 1996.

Erlent

Peres útskrifaður af sjúkrahúsi

Símon Peres forseti Ísraels var útskrifaður af sjúkhúsi í dag. Hann missti meðvitund við móttökuathöfn í gær. Símon Peres er 86 ára gamall. Hann hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1994 ásamt þeim Yasser Arafat og Yitzhak Rabin fyrir þátt sinn að Oslóarsamningnum um frið í Miðausturlöndum. Þeir Arafat og Rabin eru báðir látnir og friður í Miðausturlöndum lætur enn á sér standa.

Erlent

Eftirlýstur morðingi hélt fólki í gíslingu og sofnaði

Eftirlýstur morðingi sem hélt hjónum í Kansas í Bandaríkjunum í gíslingu á heimili þeirra í gærmorgun gat ekki haldið sér vakandi og sofnaði eftir nokkra klukkustunda gíslatöku. Það gerði það að verkum að fólkið losnaði úr tæplega sjö klukkustunda prísund og náði að gera lögreglu viðvart sem handtók í framhaldinu hinn eftirlýsta glæpamann.

Erlent