Erlent

Þróunarríkin fá fjárstuðning

Leiðtogar hinna 27 aðildarríkja Evrópusambandsins komu sér í gær saman um að verja 2,4 milljónum evra á ári næstu þrjú ár til að hjálpa þróunarríkjum að taka þátt í baráttunni gegn hlýnun jarðar. Þessi upphæð samsvarar um 450 milljónum króna á ári.

Erlent

Hneykslaður á írsku kirkjunni

Benedikt 16. páfi ætlar að skrifa kaþólsku kirkjunni á Írlandi bréf þar sem hann mun lýsa því hvernig bregðast eigi við upplýsingum um að sumir írskir prestar hafi áratugum saman níðst á börnum og biskupar kirkjunnar á Írlandi hafi hylmt yfir.

Erlent

Fjörutíu handteknir í Kaupmannahöfn

Um tvö hundruð mótmælendur voru á götum miðborgar Kaupmannahafnar í gær þar sem forstjórar stórfyrirtækja funduðu um loftslagsmál. Fundur þeirra var ekki á opinberri dagskrá loftslagsráðstefnunnar en tengdur henni, líkt og fjöldi annarra. Mótmælendur börðu bumbur og hrópuðu að forstjórunum.

Erlent

Óeining í Köben

Þjóðum heims gengur heldur illa að ná samkomulagi um hvernig eigi að deila niður þeim gríðarlega kostnaði sem fylgir því að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Hann er talinn geta numið 150 milljörðum dollara á ári.

Erlent

Páfinn fullur hneykslunar

Benedikt páfi gagnrýnir kaþólsku kirkjunni á Írland sem hélt hlífiskildi yfir níðingum. Hann segist vera fullur hneykslunar líkt og írskur almenningur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Páfagarður sendi frá sér í dag

Erlent

Mótmælendur handteknir í Kaupmannahöfn

Til þessa hefur verið friðsamlegt í kringum loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn en óttast var að fjöldamótmæli og slagsmál settu svip sinn á ráðstefnuna sem hófst á mánudag. Í dag kom loks til átaka á milli lögreglu og mótmælenda og voru 68 handteknir. Lögreglan segir þó að þetta hafi ekki verið mikil læti og menn hafi aðallega verið handteknir í forvarnarskyni.

Erlent

Kexruglaður karfi

Bandaríkjamenn hafa talsverðar áhyggjur af asískum vatnakarfa sem fluttur var til landsins til þess að hreinsa fiskitjarnir og úrgangstjarnir í suðurríkjunum á sjöunda áratug síðustu aldar.

Erlent

Foreldrar Madeleine í Portúgal

Foreldrar týndu telpunnar Madeleine McCann eru komnir til Portúgals vegna málaferla þeirra gegn lögregluforingjanum sem í upphafi stýrði rannsókn á máli dóttur þeirra.

Erlent

Óprúttnir leðurblökumenn á ferð í London

Óskammfeilinn hópur ræningja notfærir sér verndarsvæði fyrir leðurblökur við Regent´s canal í London til að ræna vegfarendur í skjóli myrkurs en svæðið er óupplýst af tillitsemi við leðurblökurnar sem þar dveljast.

Erlent

Aftöku Brooms frestað aftur

Dómari í Ohio hefur aftur frestað aftöku Romell Broom sem dæmdur var til dauða fyrir 25 árum og hefur beðið aftöku síðan. Aftöku Broom var frestað í september þegar aftökusveitinni tókst engan veginn að finna í honum nægilega burðuga æð til að sprauta í lyfjunum sem notuð eru við aftöku.

Erlent

Fundi Gates og al-Maliki aflýst

Fundi Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, sem halda átti í gærkvöldi, var aflýst með stuttum fyrirvara.

Erlent

Pútín ræðst gegn spillingu

Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagðist á ríkisstjórnarfundi í gærkvöldi ætla að taka rækilega til í stjórnkerfi landsins og uppræta þá spillingu sem þar þrífst.

Erlent

Barnaklámshringur upprættur

Evrópska lögreglan Europol hefur greint frá því að tekist hafi að uppræta barnaklámshring á Netinu. Kennsl hafa verið borin á fimm fórnarlömb, börn á aldrinum fjögurra til tólf ára. Einnig hafa verið borin kennsl á 221 kynferðisafbrotamann, og 115 hafa nú þegar verið handteknir.

Erlent

Hlýnun jarðar er af manna völdum

Sautján hundruð vísindamenn í Bretlandi sendu frá sér yfirlýsingu í gær, þar sem þeir segjast sannfærðir um að sterk vísindaleg rök séu fyrir því að hlýnun jarðar sé af mannavöldum.

Erlent

Segir stríð vera nauðsyn

„Trúin á það að friður sé æskilegur dugar sjaldnast til þess að öðlast hann,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti þegar hann tók við friðarverðlaunum Nóbels í Ósló.

Erlent

Obama varði stríðsrekstur Bandaríkjanna

Það hefur sjálfsagt verið mörgum ofarlega í huga í Osló dag að ekki eru liðnir nema níu dagar frá því maðurinn sem var kominn til þess að taka við friðarverðlaunum Nóbels fyrirskipaði að þrjátíu

Erlent

Óttast 100 ára barnaníðing

Árið 1999 var Theodore Sypnier ákærður fyrir að nauðga tveimur systrum í bænum Buffalo í Bandaríkjunum. Þær voru fjögurra og sjö ára gamlar.

Erlent

Dularfullt ljós yfir Noregi

Einn sjónarvotta í Noregi sagði að ljósið hafi myndað einhverskonar risastóran marglaga hring sem sendi frá sér bláan geisla til jarðar. Fyrirbærið var sýnilegt í margar mínútur.

Erlent

Eldri borgari lumbraði á hnífamanni

Tæplega sjötugur íbúi í Frederiksberg á Sjálandi kom í veg fyrir rán á heimili sínu í gærkvöldi og stökkti ræningjanum á flótta. Þegar dyrabjöllu mannsins var hringt stóð þar fyrir utan stórvaxinn maður með hníf sem hann otaði að íbúanum.

Erlent

Minnst 40 ár fyrir að skipuleggja hryðjuverk

Tuttugu og tveggja ára gamall breskur múslimi, Adam Khatib, var í gær fundinn sekur um að hafa, við fjórða mann, lagt á ráðin um að sprengja í loft upp farþegaþotu yfir Atlantshafi, á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna.

Erlent

Tilvist eyjanna ræðst á ráðstefnunni

Fulltrúi Kyrrahafsríkisins Tuvalu hafði ekki erindi sem erfiði á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn. Tillaga hans um að ríki heims setji sér strangari markmið varðandi samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fékk lítinn hljómgrunn.

Erlent

Landtökumenn mótmæltu við heimili Netanyahu

Ísraelskir landtökumenn og stuðningsmenn þeirra komu í kvöld saman fyrir utan heimili Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra, og mótmæltu nýlegri ákvörðun ísraelsku ríkisstjórnarinnar sem bannaði allar framkvæmdir á landtökusvæðunum á Vesturbakkanum.

Erlent

Erlendir aðilar aðstoðuðu árásarmennina

Nuri al Maliki, forsætisráðherra Íraks, fullyrðir að árásarmennirnir sem bera ábyrgð á sprengjuárásunum í Bagdad í gærmorgun hafa notið aðstoðar frá aðilum utan Íraks. Talsmaður íraska hersins sagði aftur á móti í gær árásirnar væru runnar undan rifjum Al Kaída og meðlima í Baath-flokknum, sem var stjórnarflokkur Saddams Hussein.

Erlent