Erlent

Gore og vorið

Bill Clinton gerði góðlátlegt grín að sjálfum sér og öðrum þekktum mönnum þegar hann flutti erindi í Gridiron klúbbi blaðamanna í Washington um helgina.

Erlent

Tók leigubíl frá flugslysi

Átta manna áhöfn var um borð í Tupolev þotu rússneska flugfélagsins Aviastar-TU sem brotlenti einn kílómetra frá flugvelli í Moskvu í gær.

Erlent

Fá ekki að selja fílabein

Sameinuðu þjóðirnar hafa synjað beiðni Tanzaníu um að selja um 90 tonn af fílabeini sem fallið hefur til á undanförnum árum.

Erlent

Ráðherra vildi selja áhrif sín

Fyrrverandi breskur ráðherra hefur haft samband við siðanefnd breska þingsins vegna ásakana um að hann hafi boðist til þess að beita áhrifum sínum í ríkisstjórninni gegn greiðslu.

Erlent

Sonarsonur forseta handtekinn

Írönsk fréttastofa segir að sonarsonur fyrrverandi forseta landsins hafi verið handtekinn þegar hann kom til Teherans frá Lundúnum í gær.

Erlent

Barnamorðingi skorinn á háls

Ian Huntley, breski barnamorðinginn sem myrti hinar 10 ára gömlu Holly Wells og Jessicu Chapman í breska bænum Soham árið 2002 var skorinn á háls í fangelsi sínu í gær.

Erlent

Kaupmannahafnarháskóli fær risastyrk

Kaupmannarhafnarháskóli tekur í dag á móti gríðarstórum styrk frá lyfjafyrirtækinu Novo Nordisk. Styrkupphæðin nemur 885 milljónum danskra króna eða ríflega 20 milljörðum íslenskra króna og á að koma skólanum í fararbrodd við rannsóknir á lífstílssjúkdómum á borð við sykursýki 2.

Erlent

Afganar enn beðnir að sýna þolinmæði

Afganistan, AP Ættarhöfðingjar Pastúna í Afganistan nörtuðu í súkkulaðitertu og ávexti sem bornir höfðu verið á borð meðan þeir hlustuðu kurteislega á ræður bandarískra herforingja um nýtt fyrirkomulag. Það gerir öldungum afganskra þorpa kleift að fá fanga leysta úr haldi Bandaríkjamanna ef þeir í staðinn lofa að bera ábyrgð á þeim.

Erlent

Forsetinn vill að talið sé á ný

írak, ap Jalal Talabani, forseti Íraks, krafðist þess í gær að atkvæði yrðu talin á ný, en kosið var til þings í Írak 7. mars. Talningu atkvæða er ekki lokið og hefur ríkt pólitísk óvissa í landinu frá kosningum.

Erlent

Ögra dönsku samfélagi

Vítisenglar ögra danska samfélaginu stórkostlega með því að opna stuðningsmannahóp fyrir unglinga á aldrinum 14 - 18 ára, segir Lars Barfoed, dómsmálaráðherra Danmerkur, í samtali við fréttastofu Danmarks Radio.

Erlent

Danskir Vítisenglar stofna unglingaklúbb

Vélhjólaklúbburinn Vítisenglar í Danmörku stofnar í dag sérstakan hóp fyrir unglinga undir 18 ára aldri. Hópurinn mun bera titilinn Varnarhópur víkinga, segir Berlingske Tiderne.

Erlent

Vilja syni og eiginmenn lausa

Undanfarna daga hefur hópur kvenna á Kúbu krafist þess að synir þeirra, eiginmenn og aðrir ástvinir verði látnir lausir úr fangelsi. Þeir voru handteknir fyrir sjö árum fyrir andóf gegn stjórnvöldum.

Erlent

Næsti forseti Bandaríkanna hugsanlega hershöfðingi

Þó svo að tvö ár eru í næstu forsetakosningarnar í Bandaríkjunum þá eru Repúblikanar engu að síður farnir að leita að nýrri vonarstjörnu. Sá sem þykir líklegur þessa stundina til þess að sækjast eftir útnefningu flokksins til þess að bjóða til fram til forseta undir þeirra merkjum er hershöfðinginn David Petraeus.

Erlent

Áralöng barnamisnotkun innan skátanna afhjúpuð

Svo virðist sem Kaþólska kirkjan sé ekki eina stofnunin sem hefur slæma samvisku vegna barnaníðinga innan sinna raða því lögfræðingur í Portland í Bandaríkjunum segist vera með yfir þúsund skýrslur sem greina frá barnamisnotkun innan skátanna þar í landi samkvæmt New York Post.

Erlent

Flugfreyjurnar farnar

Síðasta tilraun til þess að miðla málum í kjaradeilu flugfreyja hjá British Airways runnu út í sandinn í dag. Þriggja daga verkfall hefst því á miðnætti.

Erlent

Varasamt að fara í Bláa lónið

Danskur verkalýðsforkólfur á í nokkrum vanda eftir heimsókn í Bláa lónið á Íslandi. Danskir fjölmiðlar hafa upplýst um það sem þeir kalla lúxuslíf Sörens Fibigere Olesen.

Erlent

Hvar er kúlan mín?

Þegar kaupsýslumaðurinn Hong Kee Siong sló golfkúlu út í tjörn á golfvelli í Malasíu rölti hann niður að tjörninni til þess að kíkja eftir henni.

Erlent

Handtökur talíbana spilla viðræðum

Fyrrverandi erindreki Sameinuðu þjóðanna í Afganistan hefur harðlega gagnrýnt handtökur pakistanskra yfirvalda á háttsettum talíbönum. Norðmaðurinn Kai Eide segir í viðtali við BBC að handtökur undanfarinna vikna á háttsettum talíbönum hafi gjörsamlega eyðilagt allar samskiptaleiðir Sameinuðu þjóðanna við talíbana og spillt fyrir friðarviðræðum sem hafnar hefðu verið.

Erlent

Loftárásir á Gaza

Ísraelar gerðu í nótt árásir á Gaza ströndinni en áður hafði eldflaugum verið skotið á landnemabyggð í nágrenninu. Í eldflaugaárásinni lést ísraelskur bóndi en að sögn Hamas slösuðust þrír í loftárásunum.

Erlent

Reynt að koma í veg fyrir verkfall

Samningaviðræður hófust á ný í gær á milli yfirmanna British Airways og starfsmanna fyrirtækisins. Viðræðurnar halda áfram í dag en yfirvofandi er verkfall sem gæti lamað félagið að mestu leyti.

Erlent