Erlent
Á þriðja tug látnir eftir uppþot í fangelsi Að minnsta kosti 28 létust uppþoti í fangelsi norðurvesturhluta Mexíkó í nótt. Ekki er vitað hvort að fangaverðir og aðrir starfsmenn fangelsisins séu í hópi hinna látnu en tveir fangaverðir særðust. Yfirvöld segja ástæðuna fyrir uppþotinu vera uppgjör milli tveggja klíka í fangelsinu. Einungis er vika síðan að fangelsisstjórinn varaði við því að illa gæti farið þar sem fangelsið væri yfirfullt. Hann óskaði jafnframt eftir því að hættulegustu fangarnir yrðu fluttir í annað fangelsi. Erlent 15.6.2010 07:22
FBI birtir leyniskjöl um Kennedy Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur birt fjölmörg leyniskjöl um Edward Kennedy, fyrrum öldungadeildarþingmann. Flest þeirra fjalla um morðhótanir gegn honum en þar er lítið að finna um bílslys þegar Edward varð valdur að dauða vinkonu sinnar í júlímánuði árið 1969. Hann fór af vettvangi án þess að tilkynna slysið, en baðst síðar afsökunar á því. Erlent 15.6.2010 07:20
Fullyrða að Pakistanar aðstoði talíbana í Afganistan Leyniþjónusta Pakistans aðstoðar talibana í Afganistan með ýmsum hætti svo þeir geti barist við hermenn NATÓ-ríkjanna og afganska lögreglu- og hermenn. Erlent 15.6.2010 07:17
Líkir mengunarslysinu við hryðjuverkin 11. september Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, líkti olíuslysinu í Mexíkóflóa við hryðjuverkin 11. september 2001 í fyrstu opinberu heimsókninni sinni á svæðinu. Obama hefur heimsótt Alabama, Missisippi og Flórída. Í viðtölum vð fjölmiðla á svæðinu hefur hann meðal annars líkt olíuslysinu við hryðjuverkaárásirnar alræmdu. Erlent 14.6.2010 19:57
Ban Ki-moon með áhyggjur af ástandinu í Kirgistan Ban Ki-moon framkvæmdastjóri Sameinuðu Þjóðanna hefur lýst miklum áhyggjum af ástandinu í Kirgistan en þar hafa Kirgisar og Úsbekar borist á banaspjót síðustu daga. Erlent 14.6.2010 11:03
Friðarsamningur Hells Angels og Bandidos í uppnámi Eftir meira en 12 ár er sögulegum friðarsamningi milli mótorhjólagengjanna Bandidos og Hells Angles í Danmörku nú lokið. Erlent 14.6.2010 08:15
Versti kynferðisafbrotamaður Noregs dæmdur í 9 ára fangelsi Versti kynferðisafbrotamaður í sögu Noregs hefur verið dæmdur í níu ára óskilorðsbundið fangelsi. Hann var dæmdur fyrir kynferðisafbrot gegn 66 drengjum undir lögaldri. Erlent 14.6.2010 08:09
FIFA íhugar að banna blásturshljóðfærið vuvuzela á HM Forráðamenn FIFA íhuga nú alvarlega að banna háværann hornablásturinn á leikjunum í Heimsmeistarakeppninni í fótbolta (HM) sem nú fer fram í Suður Afríku. Erlent 14.6.2010 07:54
Öryggissveitir bjarga tveimur úr haldi Farc Öryggissveitum í Kólómbíu hefur tekist að bjarga tveimur háttsettum meðlimum sínum úr haldi Farc skæruliðasamtakanna. Erlent 14.6.2010 07:43
Skipa nefnd til að rannsaka árásina á skipalestina til Gaza Stjórnvöld í Ísrael ætla að skipa sína eigin rannsóknarnefnd til þess að kanna árás ísraelska flotans á skipalestina til Gaza-svæðisins á dögunum þar sem 9 menn létu lífið. Erlent 14.6.2010 07:38
Hákarlar þefa uppi bráð sína Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa nú staðfest það, sem margir þóttust vita, að hákarlar beita lyktarskyni þegar þeir elta uppi bráð sína í hafinu. Erlent 14.6.2010 04:00
Milljónir tunna borist í hafið Bandaríkin, AP Nú er talið að allt frá einni milljón tunna og upp í 2,4 milljónir tunna af olíu hafi lekið út í Mexíkóflóa frá því sprenging varð í borpallinum Deepwater Horizon þann 20. apríl síðastliðinn. Erlent 14.6.2010 03:00
Tugþúsundir flýja átök í Kirgisistan Kirgisistan, ap Um 100 manns hafa látið lífið og að minnsta kosti þúsund hafa særst í átökum í Kirgisistan undanfarna daga. Þá hafa um 75 þúsund Úsbeka þurft að flýja yfir landamærin til Úsbekistan, mest eldra fólk, konur og börn. Erlent 14.6.2010 02:00
Að minnsta kosti 18 látnir eftir flóð - sex börn Lögreglan hefur staðfest að minnsta kosti þriggja er enn saknað eftir flóðið í Arkansas í Bandaríkjunum á aðfaranótt laugardags. Þá eru 20 aðrir einstaklingar sem gætu hafa tjaldað á svæðinu eða á svæðum í kring. Erlent 13.6.2010 21:30
Ætlar að reyna aftur að sigla í kringum hnöttinn Abby Sunderland, 16 ára stúlka frá Bandaríkjunum, ætlar að reyna aftur að sigla hringinn í kringum hnöttinn þrátt fyrir að seglskúta hennar fékk á sig brot á miðju Indlandshafi fyrr í vikunni. Það var fransk veiðiskip sem bjargaði henni í gær. Hún ætlaði að verða yngsta stúlkan til að sigla ein í kringum hnöttinn. Erlent 13.6.2010 20:30
Bjórinn rýkur út í Suður-Afríku Það er hátíð hjá eigendum öldurhúsa og veitingastaða í Suður-Afríku því sala á bjór hefur stóraukist í landinu í kjölfar heimsmeistaramótsins í knattspyrnu þar sem tugir þúsunda aðdáenda liðanna sötra mjöðinn á meðan þeir hvetja sína menn áfram. Erlent 13.6.2010 18:45
Átján létust í rútuslysi á Filippseyjum Átján létust og að minnsta kosti þrjátíu slösuðust þegar rúta með írönskum læknanemum fór útaf fjallavegi í Cebuhéraði á Filippseyjum í dag. Erlent 13.6.2010 18:24
Skotárás í Bretlandi - fjórir á sjúkrahúsi Fjórir, þrír karlar og ein kona, liggja á sjúkrahúsi eftir að hafa orðið fyrir skotárás á næturklúbbi í Birgmingham í Bretlandi. Erlent 13.6.2010 16:17
Að minnsta kosti 15 látnir eftir sprengju í Bagdad Að minnsta kosti fimmtán eru látnir eftir að sprengja sprakk fyrir framan Seðlabanka Íraks í höfuðborginni Bagdad í dag. Sprengjan sprakk þegar starfsmenn bankans voru að yfirgefa staðinn. Erlent 13.6.2010 15:04
Rændi og nauðgaði 10 ára stúlku Kevin Holmes, frá Crosby nálægt Liverpool, hefur verið handtekinn grunaður um að hafa rænt og nauðgað tíu ára stúlku. Erlent 13.6.2010 13:52
Eymdin algjör í Kirgistan Svo virðist sem vopnuð gengi Kirgista gangi um og skjóti allt sem hreyfist, en lýsing sjónarvotta á aðstæðum í suðurhluta landsins er skelfileg. Einn sjónarvottur lýsir því þannig í samtali við Reuters fréttastofuna að gengi Kirgista skjóti Úsbeka eins og dýr. Þá er borgin Osh, sem er þungamiðja átakanna og önnur stærsta borgin, í rúst. Erlent 13.6.2010 13:24
Stjórnvöld gefa leyfi til að drepa Stjórnvöld í Kirgistan hafa gefið öryggissveitum landsins leyfi til þess að drepa í tilraun til þess að stöðva uppþot þjóðarbrota í borginni Osh sem hefur tekið nærri áttatíu líf. Erlent 13.6.2010 09:51
Flóðbylgjuviðvörun afturkölluð Öflugur jarðskjálfti varð í gærkvöldi við Nicobar eyjar á Indlandshafi. Skjálftinn mældist 7,5 á richter. Óttast var að skjálftinn myndi koma af stað flóðbylgju og var flóðbylgjuviðvörun gefin út í gærkvöldi. Hún var svo afturkölluð. Upptök skjálftans voru neðansjávar, um 150 kílómetrum vestur af Misha á Nicobar eyjum. Erlent 13.6.2010 09:38
Handtóku ísraelskan njósnara í Póllandi Pólsk yfirvöld handtóku mann í byrjun júní sem þau gruna að sé njósnari á vegum Ísraelsmanna. Hann er grunaður um að tengjast morðinu á Hamasliðanum Mahmoud al-Mabhouh í Dubaí í janúar á þessu ári. Erlent 12.6.2010 22:15
Obama ræddi við Cameron um olíulekann Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, ræddu saman í dag um olíulekann á Mexíkóflóa í dag. Obama hefur gagnrýnt breska olíufélagið BP mikið fyrir hvernig staðið var að málum eftir að olían tók að leka úr olíulindinni á botni Mexíkóflóa. Erlent 12.6.2010 19:01
Rússar hjálpa ekki Kirgistan Dimitri Medved, forseti Rússlands, sagðist í dag ekki geta sent her til Kirgistan til að kveða niður óeirðir í suðurhluta landsins. Það var bráðabirgðastjórn í Kirgistan sem leitaði til forsetans um aðstoðina. Erlent 12.6.2010 15:49
Að minnsta kosti 16 létu lífið í flóðum í Bandaríkjunum Að minnsta kosti 16 manns hafa látið lífið og 73 eru enn saknað eftir flóð á tjaldstæði í Ouachita fjöllum í Arkansas í Bandaríkjunum í morgun. Flóðið skall á tjaldsvæðið meðan fólkið var sofandi en mikil rigning hefur verið á svæðinu undanfarið. Erlent 12.6.2010 15:36
Búið að bjarga skútuskvísunni Abby Sunderland, sem lenti í vandræðum með að verða yngsta manneskjan til að sigla í kringum jörðina, var bjargað á Indlandshafi í hádeginu. Erlent 12.6.2010 14:01
Fjörutíu manns létu lífið í byssubardögum í Mexíkó Hátt í fjörutíu manns létu lífið í byssubardögum milli glæpagengja í tveimur borgum Mexíkó á fimmtudag. Þá gengu byssumenn berserskgang í borginni Chihuahua þar sem 19 manns létu lífið og fjórir særðust. Tuttugu aðrir létu lífið eftir að vopnaðir menn létu til skara skríða í borginni Ciudad Madero sama dag. Erlent 12.6.2010 13:19
Franskt veiðiskip skútuskvísu til hjálpar Talið er að hjálpræði muni berast sextán ára stúlku, sem lenti í hremmingum á Indlandshafi, þegar franskt veiðiskip nær til hennar seinnipartinn í dag. Stúlkan, sem heitir Abby Sunderland og er frá Bandaríkjunum, ætlaði sér að verða yngsti siglingakappinn til að sigla ein umhverfis heiminn. Erlent 12.6.2010 13:15