Erlent

Morð og kaupæði á Oxford-stræti

Talið er að tæplega sex milljónir Breta hafi freistast til að gera góð kaup í dag, við upphaf jólaútsölunnar. Morðárás í verslun á Oxford-street í Lundúnum setti svartan blett á daginn þar ytra.

Erlent

Jólahryllingur í Texas: Morðinginn var klæddur í jólasveinabúning

Lögreglan í Grapevine í Texasfylki í Bandaríkjunum hefur staðfest við AP fréttastofuna að sá sem myrti fjölskylduna í bænum, hefði verið skyldmenni sem kom í heimsókn á jóladag. Maðurinn var klæddur í jólasveinabúning og virðist hafa skotið fjölskylduna skömmu eftir að hann kom inn á heimilið.

Erlent

Piltur myrtur á Oxford Street

Maður á tvítugsaldrinum var stunginn til bana á verslunargötunni Oxford Street í Lundúnum um hádegisbilið í dag. Lögreglan hefur handtekið nokkra aðila sem hugsanlega tengjast morðinu. Jólaútsölur eru í Bretlandi í dag. Dagurinn er kallaður Boxing day og er mesti verslunardagur Bretlands.

Erlent

Blóðug átök í Sýrlandi

Að minnsta kosti 20 hafa látist í átökum hersins í Sýrlandi og mótmælanda í dag. Reuters greinir frá því að mótmælandi hefði sett myndband á netið sem sýni þrjá skriðdreka sem halda úti linnulausri skothríð á mótmælendur.

Erlent

Uppáhaldsleikari Hitlers er látinn

Þýski leikarinn, Johannes Heesters, er látinn. Líklega vita ekki margir hver hann er, en Heesters er frægastur fyrir að hafa verið uppáhaldsleikari Adolfs Hitlers.

Erlent

Obama-hjónin óskuðu landsmönnum gleðilegra jóla

Kristnir menn um allan heim fögnuðu jólunum í dag hver með sínum hætti. Jóhanna Margrét Gísladóttir segir okkur nú meðal annars frá fólki í jólaskapi á sundskýlu í Ástralíu og Þýskalandi, jólahaldi hermanna í Afganistan og jólaávarpi forseta Bandaríkjanna.

Erlent

Segja Rússa ekki líða spillingu lengur

Tugir þúsunda komu saman í Moskvu í gær til að vekja athygli á meintu kosningasvindli í þingkosningunum fyrr í þessum mánuði. Skipuleggjendur mótmælana segja Rússa ekki líða spillingu lengur.

Erlent

Þessi er alveg með'etta

Dýrin geta verið alveg yndisleg og þessi voffi er engin undantekning á því. Hann hlustar sko á tónlist, og það er ekki annað að sjá en að hann brosi út að eyrum þegar eigandi hans spilar á gítarinn. En um leið og hann hættir, þá fer brosið. Sjón er sögu ríkari.

Erlent

Hneykslaður á markaðsvæðingu jólanna

Benedikt XVI páfi hneykslaðist á markaðsvæðingu jólanna í jólamessu í Péturskirkjunni í Róm í gærkvöld. Hann hvatti fólk til þess að horfa framhjá “yfirborðskenndu glysi jólahátíðarinnar og finna barnið sem lagt var í jötu í Betlehem.” Í predikun sinni harmaði páfinn líka ofbeldið í heiminum og bað fyrir þeim sem búa við fátækt.

Erlent

Alþjóðalögreglan gefur út handtökuskipun á sílikonframleiðanda

Alþjóðalögreglan, Interpol, hefur gefið út handtökuskipun á hendur yfirmanni franska fyrirtækisins sem framleiddi gallaða sílikonpúða í brjóst. Sílikonpúðarnir hafa valdið mikilli skelfingu á meðal kvenna í vikunni eftir að það kvisaðist út að þeir gætu sprungið og jafnvel valdið krabbameini.

Erlent

Þúsundir flykkjast til Betlehem

Þúsundir kristinna manna, hvaðanæva að úr heiminum, flykkjast til Betlehem, fæðingarborgar Frelsarans, á hverju ári þegar jólahátíðin gengur í garð. Vænst er þess að um 90 þúsund manns ferðist þangað um þessi jól. Fjöldi tónleika verður haldinn og að sjálfsögðu verður messað í hinni 1700 ára gömlu Fæðingarkirkju sem byggð er á staðnum þar sem talið er að Jesús hafi fæðst.

Erlent

Drottningin heimsótti eiginmann sinn á spítala

Elísabet II Bretadrottning heimsótti í dag Fillipus, eiginmann sinn, á spítala þar sem hann dvelur vegna kransæðastíflu. Filipus er orðinn 90 ára gamall. Hann gekkst undir hjartaþræðingu. Í tilkynningu frá konungshöllinni segir að líðan Filipusar sé góð en grannt sé fylgst með honum á Papworth spítalanum. Þegar drottningin heimsótti Filipus í morgun var hún í fylgd barna sinna Edward, Andrew og Anne.

Erlent

Íslenski jólasveinninn sá fimmti versti í heimi

Íslenski jólasveinninn er sá fimmti versti í heimi samkvæmt óvisindalegri úttekt danska blaðsins Jyllands Posten. Í umsögn blaðsins segir að á Íslandi séu þrettán jólasveinar sem séu vondir, bæði við dýr og menn. Einstakur kvikyndisskapur einkenni hvern og einn þeirra. Einn þeirra sé gluggagæir, annar bjúguþjófur og sá þriðji skelfi konur með því að kíkja undir kjólinn þeirra. Þá segir að jólasveinarnir þrettán eigi vonda móður, sem heiti Grýla og eigi jólakött. Grýla hati börn sem fái ekki ný föt í jólagjöf. Hún sigi því jólaketttinum á börnin og setji þau svo í pokann sinn.

Erlent

Gorbachev skammast sín fyrir Putin

Mikhail Gorbachev, fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna, segist skammast sín fyrir Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands, vegna viðbragða þess síðarnefnda við mótmælendum sem krefjast úrbóta hjá rússneskum stjórnvöldum.

Erlent

Láta 2900 fanga lausa

Stjórnvöld í Kúbu ætla að láta 2900 fanga lausa á næstu dögum, þar á meðal nokkra sem dæmdir hafa verið fyrir pólitíska glæpi. Raul Castro, forseti Kúbu, segir að þetta sé gert til að sýna góðvilja í verki eftir að hafa fengið nokkrar óskir frá ættingjum og trúarsamtökum.

Erlent

Amagermaður í lífstíðarfangelsi

Amagermaðurinn, Marcel Lychau Hansen, var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi. Á 23ja ára tímabili myrti hann tvær konur og nauðgaði sex öðrum, síðast táningsstúlku á síðasta ári.

Erlent

Beinast gegn leyniþjónustunni

Tugir manna fórust í tveimur sjálfsvígsárásum í Damaskus, höfuðborg Sýrlands. Árásirnar beindust að höfuð stöðvum lögreglu og leyniþjónustu í borginni. Yfir hundrað manns eru særðir.

Erlent

Sakar Frakka um þjóðarmorð

„Talið er að Frakkar hafi frá 1945 drepið um 15 prósent alsírsku þjóðarinnar. Það er þjóðarmorð,“ segir Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands.

Erlent