Erlent

Bandarískt njósnaskip til sýnis

Bandarískt herskip, sem Norður-Kóreumenn lögðu hald á seint á sjöunda áratugnum, hefur verið málað og er nú til sýnis við höfnina í Pjongjang, höfuðborg Norður-Kóreu.

Erlent

Japanskar konur aftur langlífastar

Árið 2012 gátu japanskar konur vænst þess að verða 86,41 ára. Þær voru því aftur orðnar langlífastar kvenna, eftir að hafa verið eitt ár í öðru sæti.

Erlent

Ástvinir syrgja á Spáni

Farþegi segir lestina hafa farið of hratt í beygju. Bráðabirgðalíkhús hefur verið reist á íþróttaleikvangi í Santiago de Compostella.

Erlent

Myndband af slysinu á Spáni

Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir á Spáni eftir að 77 manns fórust þegar farþegalest fór út af sporinu nærri Santiago de Compostela í gærkvöldi. Þetta er versta lestarslys á Spáni í yfir 40 ár. Á netinu sjá hið skelfilega slys.

Erlent

Alþjóðadagur helgaður salernum

Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveðið að 19. nóvember verði alþjóðadagur salerna, til að vekja athygli á því að ekki allir hafa aðganga að slíku.

Erlent

77 farast í lestarslysi

Lestarslys varð á Spáni í nótt, það versta í 40 ár þar í landi, þegar farþegarlest fór út af spori sínu í nótt.

Erlent

Skólastjórinn handtekinn

Flúði eftir að tugir barna veiktust af matareitrun eftir að hafa lagt sér til munns skólamáltíð í síðustu viku. 23 þeirra létu lífið.

Erlent

Jane Austen prýðir pundið

Jane Austen mun prýða tíu punda seðilinn eftir breytingar sem gerðar verða á breskum peningaseðlum árið 2017. Hún mun leysa Charles Darwin af hólmi.

Erlent

Prinsinn heitir George Alexander Louis

Nýfæddur sonur Vilhjálms Prins og Katrínar hertogaynju af Cambridge hefur fengið nafn. Hann heitir George Alexander Louis, sem útleggst á íslensku sem Georg Alexander Loðvík. Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja hafa tilkynnt að nýfæddur sonur þeirri muni heita Georg Alexander Luis. Georgs nafnið er sótt til George sjötta, föður Elísabetar annarar drottningar, en sjálfur heitir Vilhjálmur einnig Arthúr Filip Luis og faðir hans Karl heitir einnig Filip Arthúr Georg. George nafnið var það nafn sem breskir veðbankar töldu líklegast að yrði fyrir valinu. Ef prinsinn ungi kemst til manns og nær þeim áfanga að erfa krúnuna af föður sínum, gæti hann orðið George sjöundi (VII) konungur, nema Karl taki upp á því að velja sér George sem kónganafn þegar hann tekur við krúnunni, en þá yrði drengurinn George áttundi (VIII). Prnsinn nýfæddi verður kallaður hans hátign Georg prinsinn af Cambridge.

Erlent

Snowden fær að yfirgefa flugvöllinn

Yfirvöld í Rússlandi hafa gefið bandaríska uppljóstraranum Edward Snowden leyfi til að yfirgefa flugvöllinn í Moskvu og fara inn í landið á meðan beiðni hans um tímabundið hæli í landinu er tekin fyrir.

Erlent

Borpallur logar

Eldur kom upp í gærkvöldi í gasborpalli í Mexíkóflóa. Borpallurinn er um 85 kílómetrum frá suðurströnd Louisiana.

Erlent

Leita síðustu nasistanna

"Seint, en ekki of seint,“ stendur á auglýsingaskiltum sem stofnun Simons Wiesenthals hefur sett upp víða í Þýskalandi.

Erlent

Klámhundurinn Weiner enn í veseni

Borgarstjóraefnið í New York, Anthony Weiner, virðist ekki geta stillt sig þegar netið er annars vegar; enn hefur hann verið gripinn við þá iðju að senda konum kámfengin skilaboð og myndir á netinu.

Erlent