Fótbolti
Eyjasigur í Kópavogi - myndir ÍBV er einu stigi á eftir KR á toppi Pepsi-deildar karla eftir 2-1 sigur á Breiðabliki í Kópavoginum í gær. KR á þó tvo leiki til góða á Eyjamenn. Íslenski boltinn 16.8.2011 06:00
Stjóri Blackburn drukkinn undir stýri - missti prófið í 18 mánuði Steve Kean, knattspyrnustjóri Blackburn Rovers, verður bílprófslaus næstu 18 mánuðina. Kean var fundinn sekur um að hafa ekið undir áhrifum áfengis í maí síðastliðnum. Enski boltinn 15.8.2011 23:30
Umfjöllun Vísis um leiki kvöldsins Fimm leikir fóru fram í Pepsi-deild karla í kvöld og var mikið um að vera. Hér má finna alla umfjöllun Vísis um leikina á einum stað. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:58
Ólafur Páll: Sýnir getuna í liðinu Ólafur Páll Snorrason sagði FH-inga hafa sýnt getuna í liðinu manni færri gegn Víkingum í kvöld. Hann sagði lukku vera með FH-ingum þessa dagana. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:55
Ólafur Örn: Aðalmálið að fá stig Ólafur Örn Bjarnason, þjálfari Grindavíkur, var augljóslega létt eftir sigurinn á Keflavík í kvöld þar sem liðið náði átta stiga forystu á Víking og Fram í fallsæti auk þess að ná Breiðabliki að stigum og vera aðeins stigi á eftir Þór og Keflavík. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:50
Willum: Sárt að kasta stigum frá sér Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, var skiljanlega ósáttur við að lið hans hafi ekki nýtt yfirburði sína í seinni hálfleik gegn Grindavík í kvöld og kastað frá sér í það minnsta jafnteflinu með því að fá á sig mark á lokamínútunum. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:48
Bjarnólfur: Hefðu gott af því að svara fyrir þennan skít Bjarnólfur Lárusson, þjálfari Víkings, var afar ósáttur við sína menn í kvöld. Hann sagði vanta alla baráttu í sína menn. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:45
Þorvaldur: Staðan er mjög slæm „Við fáum færi í fyrri hálfleik til að klára þennan leik en eins og þetta hefur verið að spilast í sumar þá höfum við ekki verið að nýta okkar sénsa. Þegar menn eru ekki að klára leikina og ná í þessi stig þá erum við ekki ofar í deildinni. Það er bara þannig,“ sagði svekktur Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, eftir 2-2 jafnteflið við Stjörnuna í kvöld. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:43
Garðar: Áttum ekkert skilið „Við vorum bara lélegir í dag og áttum ekkert skilið. Ekki einu sinni þetta stig. Ég held að þeir hafi átt fleiri skot á markið og fleiri dauðafæri en við,“ sagði Garðar Jóhannsson markamaskínan í liði Stjörnunnar. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:41
Halldór Orri: Þetta var lélegur leikur „Mér fannst þetta lélegur leikur. Mér fannst bæði lið vera léleg. Mér fannst við vilja þetta meira en við klikkum úr nokkrum dauðafærum, þar á meðal ég,“ sagði hetjan Halldór Orri Björnsson eftir jafnteflið við Fram 2-2. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:38
Heimir: Pétur á að vita betur Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, var ánægður með sína menn en sagði Pétur Viðarsson leikmann sinn eiga að vita betur en að láta reka sig útaf. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:37
Þórarinn: Þurfum að vinna alla leiki sem eftir er „Þetta var mjög mikilvægur sigur fyrir okkur eins og allir sigrar,“ sagði Þórarinn Ingi Valdimarsson, leikmaður ÍBV, eftir leikinn í kvöld gegn Blikum. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:31
Heimir: Eigum enn möguleika "Við erum að rembast og reyna að vera með í þessari baráttu um Íslandsmeistaratitilinn, því var þessu sigur virkilega mikilvægur,“ sagði Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, eftir leikinn í kvöld. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:23
Guðjón: Kolbeinn var búinn að vera setja mörg mörk á æfingum Guðjón Pétur Lýðsson og félagar í Val fögnuðu vel eftir 3-1 sigur á Fylki í Pepsi-deildinni í kvöld en þetta var fyrsti sigur liðsins síðan í byrjun júli. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:20
Kári: Það vantar þéttleika í liðið „Það er gríðarlega svekkjandi að tapa þessum leik,“ sagði Kári Ársælsson, fyrirliði Blika, eftir ósigurinn gegn Eyjamönnum í kvöld. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:18
Tryggvi: Setjum pressu á KR "Þetta var erfiður leikur í kvöld enda eru Blikar með flott lið þó taflan sýni annað,“ sagði Tryggvi Guðmundsson, leikmaður ÍBV, eftir sigurinn á Breiðablik í kvöld. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:15
Ólafur: Þetta þriðja mark slátraði leiknum Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, þurfti enn á ný að öskra á sína menn í hálfleik eftir slakan fyrri hálfleik þegar Fylkisliðið tapaði 1-3 á móti Val á Hlíðarenda í kvöld. Fylkismenn voru komnir 0-3 undir í hálfleik og leikurinn var í raun tapaður. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:07
Kristján: Við erum búnir að vinna vel í hans málum Kristján Guðmundsson, þjálfari Vals, fór nýjar leiðir í kvöld þegar hann stillti upp byrjunarliðinu sínu í 3-1 sigri á Fylki. Kristján henti nýliðanum Kolbeini Kárasyni í fremstu víglínu og var með Andra Fannar Stefánsson fremstan á miðjunni. Þetta heppnaðist frábærlega og Valsmenn unnu sinn fyrsta sigur síðan í byrjun júlí. Íslenski boltinn 15.8.2011 22:01
Miðstöð Boltavaktarinnar - allt á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í Pepsi-deild karla samtímis. Íslenski boltinn 15.8.2011 18:30
Agüero með tvö er City fór illa með nýliðana Sergio Agüero hóf feril sinn í ensku úrvalsdeildinni vel í kvöld er hann skoraði tvö mörk fyrir Manchester City í 4-0 sigri á nýliðum Swansea. Enski boltinn 15.8.2011 16:55
Kolo Touré má byrja að æfa með City áður en bannið rennur út Kolo Touré hefur fengið sérstakt leyfi frá enska knattspyrnusambandinu til þess að fá að byrja að æfa með Manchester City áður en leikbannið hans rennur út. Touré féll á lyfjaprófi í upphafi ársins og er í leikbanni til 2. september næstkomandi. Enski boltinn 15.8.2011 16:45
Sá nýi númer fjögur hjá Barcelona-liðinu - myndir Cesc Fabregas baðaði sig í sviðsljósinu í dag þegar hann var kynntur til leiks sem nýr leikmaður Barcelona. Fabregas skrifaði undir nýjan fimm ára samning og mun spila í treyju númer fjögur alveg eins og hjá Arsenal. Fótbolti 15.8.2011 15:30
Umfjöllun: Eyjamenn setja pressu á KR-inga Eyjamenn unnu nokkuð sannfærandi sigur á Blikum, 2-1, á Kópavogsvelli í kvöld, en það virðist lítið ganga hjá Íslandsmeisturunum þessa daganna. Íslenski boltinn 15.8.2011 15:06
Umfjöllun: Grindvík fjarlægist fallsætið Grindavík vann dramatískan sigur á nágrönum sínum í Keflavík í kvöld, 2-1, með marki mínútu fyrir leikslok. Keflavík situr eftir með sárt ennið þrátt fyrir töluverða yfirburði úti á vellinum í seinni hálfleik en Grindavík skoraði úr eina skoti sínu í hálfleiknum. Íslenski boltinn 15.8.2011 14:57
Umfjöllun: Sanngjarn sigur FH gegn Víkingi FH-ingar sýndu frábæra takta í 3-1 sigri á Víkingum í Fossvoginum í kvöld. Annan leikinn í röð léku Víkingar manni fleiri stóran hluta leiksins en áttu fá svör við góðri spilamennsku Hafnfirðinga. Íslenski boltinn 15.8.2011 14:51
Zlatan meiddist á móti æskufélaginu sínu Zlatan Ibrahimovic meiddist á ökkla í æfingaleik AC Milan á móti æskufélagi sínu Malmö FF í gær en liðin gerðu 2-2 jafntefli í þessum leik. Antonio Cassano kom AC Milan í 1-0 en Svíarnir svöruðu með tveimur mörkum áður en Kevin Boateng tryggði Milanó-liðinu jafntefli í lokin. Fótbolti 15.8.2011 14:45
Umfjöllun: Kolbeinn með tvö mörk í fyrsta leiknum með Val Nýliðinn Kolbeinn Kárason sýndi félögum sínum hvernig á að skora mörkin í 3-1 sigri Valsmanna á Fylki í Pepsi-deild karla í kvöld. Kolbeinn skoraði tvö mörk í sínum fyrsta hálfleik og var maðurinn á bak við það að Valsmenn voru 3-0 yfir í hálfleik. Íslenski boltinn 15.8.2011 14:42
Umfjöllun: Halldór Orri sendi Fram nánast niður um deild Þegar 89 mínútur voru komnar á klukkuna í Garðabænum var staðan 2-1 fyrir Fram og allt í blóma. En Halldór Orri Björnsson tók sig þá til og komst einhvern veginn með boltann inn í teiginn þar sem hann stóð allt í einu gapandi frír og skoraði jöfnunarmarkið. Íslenski boltinn 15.8.2011 14:39
Shevchenko kjálkabrotnaði um helgina Andriy Shevchenko, fyrrum leikmaður Chelsea og núverandi leikmaður Dynamo Kiev, fór illa út úr leik liðsins um helgina. Shevchenko hefur verið óheppinn með meiðsli á tímabilinu en hann varð fyrir því að kjálkabrotna í deildarleik um helgina. Fótbolti 15.8.2011 14:30
Öllum leikjum helgarinnar gerð skil á Vísi Eins og ávallt má sjá samantektir úr öllum leikjum helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni á Sjónvarpsvef Vísis. Enski boltinn 15.8.2011 13:33