Fótbolti

Aron byrjar á bekknum

Aron Jóhannsson byrjar á varamannabekknum í leik Bandaríkjanna og Belgíu í 16-liða úrslitum Heimsmeistarakeppninnar.

Fótbolti

Hazard finnur ekki fyrir aukinni pressu

Eden Hazard veit að hann hefur ekki verið upp á sitt besta hingað til í keppninni þrátt fyrir að Belgar hafi unnið alla leiki sína til þessa. Telur hann að hann geti gert helmingi betur í útsláttarkeppninni sem hefst í dag þegar Belgar mæta Bandaríkjunum.

Fótbolti

HM-draumur Arons og félaga á enda - Belgar unnu í framlengingu

Kevin De Bruyne og varamaðurinn Romelu Lukaku tryggðu Belgum 2-1 sigur á Bandaríkjamönnum í lokaleik sextán liða úrslita HM í fótbolta í Brasilíu í kvöld. Þetta var fimmti leikur sextán liða úrslitanna sem fór í framlengingu og annað kvöldið í röð þar sem þrjú mörk voru skoruð í framlengingu.

Fótbolti

Zubizarreta hrósaði Suárez

Yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona, Andoni Zubizarreta, hrósaði Luis Suárez eftir afsökunarbeiðni Suárez í gær. Suárez hefur verið orðaður við Barcelona undanfarnar vikur.

Enski boltinn