Enski boltinn

Bowler: Guðjón rétti maðurinn

John Bowler, stjórnarformaður Crewe, er virkilega ánægður með ráðningu félagsins á Guðjóni Þórðarsyni. Guðjón tekur við sem knattspyrnustjóri Crewe á næstu dögum.

Enski boltinn

Bellamy til Tottenham?

Sky greinir frá því að Tottenham eigi í viðræðum við West Ham um hugsanleg kaup á sóknarmanninum Craig Bellamy. Fjárhagsleg vandræði á Upton Park hafa vakið upp spurningar um hvort Gianfranco Zola neyðist til að selja sína bestu leikmenn.

Enski boltinn

Owen skuldar Newcastle eitt tímabil

Freddy Shepherd, fyrrum stjórnarformaður Newcastle, telur að Michael Owen skuldi félaginu allavega eitt tímabil í viðbót. Óvissa ríkir um framtíð Owen og ætlar leikmaðurinn að taka ákvörðun í lok tímabilsins.

Enski boltinn

Snýr Torres aftur um hátíðarnar?

Fernando Torres, sóknarmaður Liverpool, gæti snúið aftur á völlinn yfir hátíðarnar. Hann hefur misst af síðustu fimm leikjum liðsins vegna meiðsla sem hann hlaut í sigurleik gegn Marseille í Meistaradeildinni.

Enski boltinn

Real Madrid vill Pennant

Samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar hefur spænska stórliðið Real Madrid komið með tilboð í Jermaine Pennant, leikmann Liverpool. Þjálfarinn Juande Ramos vill bæta við vængmanni í janúar.

Enski boltinn

Fljótur að hlaupa af mér jólasteikina

Hinum nítján ára Aroni Einari Gunnarssyni hefur skotið upp á stjörnuhimininn á þessu ári þar sem hann hefur unnið sér fast sæti í A-landsliðshópi Íslands og vakið mikla athygli með Coca-Cola Championship félaginu Coventry.

Enski boltinn

Guðjón næsti stjóri Crewe

Guðjón Þórðarson hefur gengið frá samningi við enska 2. deildarliðið Crewe Alexandra. Samningur hans er út þetta tímabil til að byrja með og verður staða mála skoðuð eftir það.

Enski boltinn

Evra stefnir á þriðja bikarinn í röð

Patrice Evra hefur sett sér það markmið að vinna ensku úrvalsdeildina þriðja árið í röð með Manchester United. Rauðu djöflarnir kveðja árið 2008 sem Englandsmeistarar, Evrópumeistarar og heimsmeistarar félagsliða.

Enski boltinn

Simpson lánaður til WBA

Arsenal ætlar að lána sóknarmanninn Jay Simpson til West Bromwich Albion. Simpson er tvítugur að aldri og er í framtíðaráætlunum Arsene Wenger.

Enski boltinn

Bjartsýnn á að halda Santa Cruz

Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Blackburn, er bjartsýnn á að halda sóknarmanninum Roque Santa Cruz. Paragvæski landsliðsmaðurinn hefur stöðugt verið orðaður við brotthvarf frá Ewood Park síðustu vikur.

Enski boltinn

Figueroa skrifar undir hjá Wigan

Vinstri bakvörðurinn Maynor Figueroa hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við Wigan. Hann hefur verið á lánssamningi hjá Wigan síðasta árið frá Deportivo Olimpia í heimalandi sínu, Hondúras.

Enski boltinn

Diouf á förum í janúar?

Ricky Sbragia, bráðabirgðastjóri Sunderland, viðurkennir að El-Hadji Diouf gæti yfirgefið liðið í janúar. Diouf kom til Sunderland í sumar en hefur alls ekki náð sér á strik.

Enski boltinn

Mikið fjör í enska boltanum um jólin

Jafnasti titilslagurinn í áraraðir í ensku úrvalsdeildinni verður nákvæmlega hálfnaður á annan dag jóla. Fimm lið gera sig líkleg til að vinna titilinn og þau verða öll í eldlínunni í jólatörninni árlegu.

Enski boltinn

Fabregas úr leik í fjóra mánuði

Arsenal hefur orðið fyrir gríðarlegu áfalli eftir að ljóst varð að miðjumaðurinn Cesc Fabregas geti ekki leikið með liðinu næstu fjóra mánuðina eða svo vegna hnémeiðsla.

Enski boltinn

Simon Grayson tekur við Leeds

Leeds United hefur gengið frá ráðningu Simon Grayson í stöðu knattspyrnustjóra félagsins. Hann tekur við af Gary McAllister sem rekinn var á sunnudaginn eftir 11 mánuði í starfi.

Enski boltinn

City reyndi að fá Diarra

Lassana Diarra segir að Manchester City hafi sett sig í samband skömmu áður en hann samdi að ganga í raðir Real Madrid frá Portsmouth á dögunum.

Enski boltinn

Scolari mætti ekki á blaðamannafund

Luiz Felipe Scolari, stjóri Chelsea, sleppti því viljandi að mæta á blaðamannafund í gær eftir 0-0 jafntefli hans manna við Everton. Það gerði hann til að koma sér ekki í vandræði með óheppilegum ummælum um frammistöðu dómarans.

Enski boltinn

Hughes nýtur stuðnings hjá City

Mark Hughes knattspyrnustjóri Manchester City nýtur stuðnings stjórnar félagsins þrátt fyrir afleitt gengi liðsins í síðustu leikjum. Þetta segir Paul Aldridge framkvæmdastjóri City.

Enski boltinn

Moyes: Rétt að reka Terry af velli

David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, segir að það hafi verið rétt hjá Phil Dowd að reka John Terry af velli. Everton og Chelsea gerðu markalaust jafntefli en Terry fékk beint rautt í fyrri hálfleik.

Enski boltinn

Viduka ætlar ekki að gefast upp

Mark Viduka, sóknarmaður Newcastle segist ekkert vera farinn að íhuga það að hætta knattspynuiðkun. Viduka hefur verið að kljást við erfið meiðsli og fóru sögur í gang um að hann ætlaði að leggja skóna á hilluna næsta sumar.

Enski boltinn