Enski boltinn

Sex bestu leikmenn deildarinnar að mati Sunnudagsmessunnar

Þrátt fyrir að heimsmeistaramótið í handbolta sé í gangi í Svíþjóð þá verður leikið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Í Sunnudagsmessunni var farið yfir sex bestu leikmenn deildarinnar og þar koma leikmenn frá Tottenham, Arsenal, Manchester United, Manchester City við sögu.

Enski boltinn

Bruce er ósáttur við Houllier

Steve Bruce knattspyrnustjóri Sunderland sendi Gerard Houllier knattspyrnustjóra Aston Villa kalda kveðju í enskum fjölmiðlum í gær eftir að Villa keypti framherjann Darren Bent frá liðinu. Bruce segir að Houllier beri enga virðingu fyrir starfsfélögum sínum þar sem hann hafi ekki haft samband við sig á meðan kaupin fóru fram.

Enski boltinn

Wenger: Denilson og Fabregas eru mjög góðir vinir

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir ekkert vera til í því að leikmennirnir Cesc Fabregas og Denilson eigi í einhverjum innbyrðisdeilum. Viðtal við Denilson birtist í brasilsíkum netmiðlum þar sem Denilson sagði meðal annars að Fabregas væri enginn leiðtogi.

Enski boltinn

Kenny Dalglish má eyða pening í nýja leikmenn

Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, hitti eigendur félagsins í gær þar sem hann ræddi meðal annars leikmannamál félagsins. Dalglish fékk þar fullvissu sína um að hann fái pening til þess að kaupa leikmenn áður en félagsskiptaglugganum lokar.

Enski boltinn

Fer Konchesky aftur til Fulham?

Paul Konchesky hefur ekki náð sér á strik með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni en Roy Hodgson keypti hann frá Fulham s.l. sumar fyrir um 750 milljónir kr. eða 4 milljónir punda. Í enskum fjölmiðlum er sagt frá því að forráðamenn Fulham hafi áhuga á að fá vinstri bakvörðinn að láni frá Liverpool út leiktíðina.

Enski boltinn

Lampard meiddist á æfingu hjá Chelsea

Frank Lampard leikmaður Chelsea meiddist á kálfa á æfingu liðsins í gær. Lampard, sem er 32 ára, hefur misst af fjórum mánuðum á þessu tímabili vegna meiðsla en ekki er vitað hvort meiðslin séu alvarleg að þessu sinni.

Enski boltinn

Arsenal sló Leeds út úr bikarnum á Elland Road

Arsenal komst áfram í 4. umferð ensku bikarkeppninnar með 3-1 sigri á Leeds á Elland Road í kvöld. Þetta var endurtekinn leikur eftir að liðin gerðu 1-1 jafntefli á Emirates fyrir ellefu dögum. Arsenal mætir liði Huddersfield Town í næstu umferð.

Enski boltinn

Denilson: Fabregas er enginn leiðtogi

Brasilíumaðurinn Denilson hjá Arsenal gefur ekki mikið fyrir leiðtogahæfileika Spánverjans Cesc Fabregas sem hefur verið fyrirliði liðsins undanfarin ár. Ummælum Denilson var slegið upp í The Sun í morgun.

Enski boltinn

Úrvalsdeildarliðin komust áfram í enska bikarnum

Manchester City lagði Leicester 4-2 í síðari leik liðanna í 64-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld en liðin skildu jöfn í fyrri leiknum. Man City mætir Notts County í 32-liða úrslitum. Wolves vann Doncaster 5-0 og Stoke hafði betur gegn Cardiff eftir framlengingu 2-0. Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leikmannahóp Stoke.

Enski boltinn

Ryan Babel í læknisskoðun hjá Hoffenheim

Það lítur allt út fyrir að Hollendingurinn Ryan Babel verði fljótlega orðinn liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá þýska liðinu Hoffenheim. Liverpool er tilbúið að selja leikmanninn fyrir sjö milljónir punda og hann er samkvæmt heimildum Sky Sports í læknisskoðun hjá Hoffenheim.

Enski boltinn

Balotelli: Mourinho þarf að læra kurteisi og mannasiði

Mario Balotelli, framherji Manchester City og fyrrum lærisveinn Jose Mourinho hjá Inter, er einn af fáum leikmönnum portúgalska stjórans sem talar ekki vel um þjálfarann. Það var mjög stormasamt sambandið á milli þeirra Balotelli og Mourinho þessi tvö ár þeirra saman á Ítalíu.

Enski boltinn

Tottenham og Liverpool berjast um Luis Suárez

Úrúgvæinn Luis Suárez er líklega á leiðinni í ensku úrvalsdeildina ef marka má nýjustu fréttir enskra miðla. Guardian segir frá því að Tottenham og Liverpool séu bæði spennt fyrir því að kaupa framherjann frá hollenska liðinu Ajax.

Enski boltinn

Martin O'Neill er hættur við að taka við West Ham

Framhaldssagan af Avram Grant knattspyrnustjóra West Ham heldur áfram en hann er án efa í ótryggasta starfi Englands. Grant virtist vera búinn að missa starf sitt hjá botnliðinu í gær þegar fregnir bárust af því að Martin O'Neill myndi taka við liðinu. O'Neill er hinsvegar búinn að taka ákvörðun – og hann vill ekki starfið á Upton Park.

Enski boltinn

Liverpool að reyna að fá Downing frá Aston Villa

Liverpool er að reyna að kaupa enska landsliðsvængmanninn Stewart Downing frá Aston Villa samkvæmt heimildum Skysports. Downing er markahæsti leikmaður Aston Villa á tímabilinu með fimm mörk og hefur verið með í öllum leikjum liðsins á leiktíðinni.

Enski boltinn

Redknapp: Við höfum ekki efni á Andy Carroll

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, segir engar líkur á því að Tottenham kaupi Andy Carroll, framherja Newcastle, eins og hefur verið orðrómur um í ensku blöðunum. Carroll er núbúinn að framlengja við sitt æskufélag en ensku blöðin keppast engu að síður um að velta sér upp úr hugsanlegum kaupendum á þessum stóra og sterka framherja.

Enski boltinn

Konchesky og Poulsen eiga báðir möguleika hjá Kenny Dalglish

Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, segist eiga mikið verk fyrir höndum í að reyna að byggja upp sjálfstraust og orðspor margra af reyndari leikmanna liðsins. Hann nefndi sérstaklega bakvörðinn Paul Konchesky og danska miðjumanninn Christian Poulsen en Roy Hodgson keypti þá báða til liðsins.

Enski boltinn

Darren Bent á leið til Aston Villa fyrir 18 milljónir punda?

Guardian segir frá því að Steve Bruce, stjóri Sunderland og stjórnarformaðurinn Niall Quinn hafi samþykkt 18 milljóna tilboð Aston Villa í framherjann Darren Bent. Upphæðin gæti á endanum farið allt upp í 24 milljónir punda sem myndi vera hæsta upphæð sem Aston Villa hefur greitt fyrir leikmann.

Enski boltinn

Eru PSV Eindhoven og Ajax að slást um Eið Smára?

Enska blaðið The Mirror segir frá því í morgun að hollensku liðin PSV Eindhoven og Ajax séu fremst í flokki í kapphlaupinu um að fá Eið Smára Guðjohnsen til sín en Stoke er tilbúið að selja íslenska framherjann í þessum félagsskiptaglugga.

Enski boltinn

Torres er viss um að Liverpool nái sér á strik

Spænski framherjinn Fernando Torres segir að Liverpool eigi eftir að ná sér á strik undir stjórn Kenny Dalglish. Liverpool hefur byrjað leiktíðina afar illa og er liðið 19 stigum á eftir erkifjendunum – Manchester United sem er á toppi deildarinnar með 45 stig.

Enski boltinn