„Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ Valur Páll Eiríksson skrifar 12. apríl 2026 23:30 Rory McIlroy í græna jakkanum, annað árið í röð. Andrew Redington/Getty Images Rory McIlroy segist vart trúa því að hann hafi varið titil sinn á Masters-mótinu í golfi. Hann tjáði sig í viðtali við CBS eftir sigurinn.
McIlroy er sá fjórði í sögunni til að verja titil sinn á Masters-mótinu á eftir Tiger Woods, Nick Faldo og Jack Nicklaus. Enginn hafði varið titil sinn síðan Tiger Woods gerði það árið 2002. McIlroy hafði elst við Masters-titilinn árum saman og átt marga erfiða daga á Augusta-vellinum í Georgíu áður en kom að langþráðum sigri í fyrra. Sérstakt sé fyrir hann að verja titilinn í ár. „Ég trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir því að fá einn grænan jakka og fái núna tvo í röð. Seiglan á þessum velli síðustu ár held ég sé loksins farin að borga sig. Þetta var erfið helgi. Ég gerði megn vinnunnar á fimmtudag og föstudag og ég svo hamingjusamur að hafa hangið á þessu,“ segir McIlroy. Ósvikin gleði á lokaholunni.Maddie Meyer/Getty Images Hann byrjaði hringinn á skramba og skolla en fékk í kjölfarið nokkra fugla í röð og spilaði óaðfinnanlega á síðari hluta hringsins. „Þetta var svipuð tilfinning og í fyrra. Ég fékk skramba snemma, eins og í fyrra, og svo spilaði ég fullkomið golf eftir það. Fjórir fuglar og engir skollar þangað til á lokaholunni. Það var þægilegt að hafa tveggja högga forystu þar, að hafa skekkjumörkin, annað en í fyrra,“ segir McIlroy. McIlroy segist einnig hafa verið glaður að hafa foreldra sína á staðnum í ár en þeir voru fjarverandi í fyrra. Þeir hafi velt fyrir sér hvort þau hafi átt að mæta, að það væri happa í fyrra að þau væru ekki á staðnum. Það sé sérstakt fyrir hann að þau hafi verið á staðnum og hann kveðst munu fagna vel með foreldrum sínum í kvöld.
Masters-mótið Mest lesið Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Fótbolti Heimsmeistarinn óvænt úr leik í fyrstu umferð Sport Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino Fótbolti Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn Golf Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Fótbolti Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Íslenski boltinn „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Íslenski boltinn Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Íslenski boltinn „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Fótbolti Fleiri fréttir Sigurinn sögulegi breytt miklu fyrir Ólíver: „Mjög mikill heiður“ Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn McIlroy áhyggjufullur eftir erfiða reynslu Óliver var með funheitan pútter Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Óliver Elí vann Opna breska áhugamannamót pilta Óliver Elí vann Evrópumeistarann og komst í úrslit Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Óliver kominn í undanúrslit á sterku móti Efnilegur ástralskur kylfingur lést aðeins átján ára Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Hlynur byrjaði betur en Íslandsmeistarinn Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti „Þegar ég var yngri var bara gert grín að mér að ég væri í golfi“ Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Amateur Vann LIV-mótaröðina annað árið í röð Íslandsmeistari annað árið í röð eftir algjöra yfirburði Guðrún Brá Íslandsmeistari og föðurbetrungur Gífurleg spenna á Íslandsmótinu í golfi 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Guðrún Brá lék best alla og er komin í efsta sætið Dagbjartur áfram í frábærum gír í titilvörninni „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Íslandsmeistarinn byrjar best allra á Íslandsmótinu í golfi Elsa Maren með sex fugla á síðustu sjö holunum Sjá meira